Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2010, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 12. apríl 2010 MÁNUDAGUR 9 „Við finnum að það er rosalegur með- byr með okkur og til marks um það hef- ur áskrifendum fjölgað verulega síðan nýir eigendur tóku við blaðinu,“ seg- ir Bogi Örn Emilsson, framkvæmda- stjóri DV. Bogi stóð vaktina í Smáralind um helgina og kynnti DV fyrir vegfar- endum, ásamt Reyni Traustasyni, rit- stjóra DV, Lilju Skaftadóttur stjórnar- formanni og blaðamönnum blaðsins. Gestum og gangandi í Smáralind gafst færi á því um helgina að hitta rit- stjóra og aðra þá sem standa að baki DV og DV.is í Smáralind. Gátu áhuga- samir kynnt sér stefnu blaðsins, rætt við aðstandendur blaðsins og keypt áskrift. Á miðvikudag var tilkynnt um nýja eigendur DV og DV.is en miðlarnir munu héðan í frá vera gefnir út und- ir dreifðri eignaraðild. Þannig mynda tæplega tuttugu manns hluthafahóp- inn sem keypti blaðið og vefmiðilinn af Birtíngi útgáfufélagi. Bogi segir að áskrifendum hafi fjölgað verulega að undanförnu en ljóst sé að fleiri áskrifendur þurfi að bætast í hópinn. „Við erum mjög þakk- lát fyrir þann stuðning sem fólk er að sýna okkur en það er ljóst að það við þurfum að fjölga áskrifendum meira. Fyrsta skrefið í því er að vera í Smára- lindinni að hitta fólk og safna áskrif- endum.“ Ritstjóri og forsvarsmenn DV stóðu vaktina í Smáralind: Mikil fjölgun áskrifenda DV Stjórnarformaður seldi áskriftir Lilja Skaftadóttir, stjórnarformaður DV ehf., seldi áskriftir í Smáralind um helgina. Mikil fjölgun áskrifenda hefur orðið upp á síðkastið. MYND REYNIR TRAUSTASON AUÐMENN HRÆÐA BLAÐAMENN eignaverkefnum tengdum íslensku útrásinni. Eiður telur að blaðamenn DV hafi ekki rétt á að skyggnast inn í einkalíf hans á þennan hátt. Hræða blaðamenn Svavar Halldórsson hefur sagt að til- gangur auðmanna með málarekstri, á borð við ofantaldar stefnur, sé að hræða blaðamenn frá því að skrifa um aðdraganda hrunsins. Þorbjörn Broddason er sammála þeirri skýr- ingu. „Þetta er ekki til annars en að hrekja menn frá því að fjalla um óþægileg mál. Þetta er til þess fall- ið að hræða og til að ná sér niður á mönnum. En aftur á móti gildir um blaðamenn eins og alla aðra að vara- samt er að segja meira en maður get- ur staðið við, hvort sem auðmenn eða aðrir eiga í hlut. Auðmenn vilja ekki, líkt og allir aðrir, að æra þeirra sé hrakin með lygum og ósannind- um,“ segir Þorbjörn. Óviðfelldin viðleitni Hann segir þekkt fyrirbæri erlend- is að fjársterkir einstaklingar hafi þaggað niður í fjölmiðlum með lögsóknum og hafi það verið einna verst í Bretlandi. Fyrirbærið sé kom- ið til Íslands. „Meginmarkmiðið virðist vera að reyna að venja menn af því að fjalla um eitthvað sem auð- mönnunum líkar ekki. Þetta er ákaf- lega óviðfelldin viðleitni af þeirra hálfu til að þagga niður umræðu. En það breytir því hins vegar ekki að þessir menn, eins og allir aðrir, eiga rétt á að bornar séu ekki upp á þá lognar sakir. Og við fólkið hljót- um að gera þá kröfu til fjölmiðla að þeir sýni af sér ítrustu ábyrgð. Þetta eru alveg stórkostlega alvarleg mál. Það spillir umræðunni mjög mik- ið ef menn fara offari. Við gerum þá kröfu að blaðamenn fari ekki með annað en það sem þeir hafa fengið staðfest og síðan verða hinir svoköll- uðu auðmenn bara að sætta sig við það,“ segir Þorbjörn Óréttlæti Þorbjörn segir að mikið ójafnvægi sé á milli auðmanna og óbreyttra blaðamanna í slíkum málum. Auð- velt sé fyrir þá efnuðu að greiða fyr- ir lögfræðikostnað og annað um- stang sem fylgir málarekstrinum. Blaðamenn lendi hins vegar í mikl- um fjárhagslegum vandræðum og eyði miklum tíma samfara dóms- meðferðinni. „Það er ólíku saman að jafna að vera með stórrekstur og ráða lögfræðing í vinnu fyrir sig og að vera blaðamaður. Það þekkist ekki að fólk úr alþýðustétt fari í mál við fjölmiðla vegna þess að þeir hafi sagt eitthvað um það. Og það segir okkur mjög mikla sögu. Þarna ríkir gróf mismunun. Á endanum þurfa menn að hafa efni á því að leita rétt- ar síns. Venjulegu fólki er það bók- staflega um megn að fara í slík mál. Það er ekki jafnrétti,“ segir hann. Karl, Björgólfur, Magnús og Björgólfur Thor Krefjast einnar milljónar hver frá fréttamönnum vegna fréttar Stöðvar 2. Þetta er ákaflega óviðfelldin við- leitni af þeirra hálfu til að þagga niður umræðu. Pálmi stefnir Svavari Pálmi Haraldsson vill fá 3 milljónir frá Svavari Halldórssyni, fréttamanni Ríkisútvarpsins. MYND KARL PETERSSON www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi Minnistöflur 2 dálkar = 9,9 *10 nýjar vörur vorbæklingurinn kominn Opið: má-fö. 12-18 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is í bústaðinn - á heimilið OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar DETOX 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.