Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Page 2
2 fréttir 11. október 2010 mánudagur
Bein afskipti
af fréttaBlaðinu
Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi
fjölmiðlafyrirtækisins 365, krafð-
ist þess í september í fyrra að ung-
ur blaðamaður á Fréttablaðinu, Atli
Fannar Bjarkason, yrði umsvifalaust
rekinn. Ástæðan fyrir því var sú að
Atli Fannar hafði á Facebook lýst
áhyggjum af fjárhag Jóns Ásgeirs eft-
ir bankahrunið og hvatt til þess að
safnað yrði fé fyrir hann. Skrif Atla
Fannars voru augljóslega grín og háð
sem Jón Ásgeir undi ekki. Þann 12.
september í fyrra ritaði hann stjórn-
endum 365 tölvupóst þar sem hann
krafðist þess að Atli Fannar yrði um-
svifalaust látinn fara. „Hann verður
ekki í mínum húsum.“ Atli Fannar
mætti hæðast að honum að vild. „En
að ég ætli að borga honum laun fyrir
það no way,“ segir í tölvupóstum sem
DV hefur undir höndum.
Tölvupóstarnir sýna samskipti
Jóns Ásgeirs, Ingibjargar Pálmadótt-
ur, Ara Edwald, forstjóra 365, og Jóns
Kaldal, þáverandi ritstjóra Frétta-
blaðsins.
Baugshataramaskínan fer á
fullt
Ari Edwald varaði Jón Ásgeir við
því að hrapa að ákvörðunum sem
kynnu að verða notaðar gegn hon-
um. Í tölvupósti til Jóns Ásgeirs 12.
september í fyrra segir Ari að veru-
legar líkur séu á því að sjálfstæðar
fréttir yrðu sagðar af því að blaða-
maður hefði verið rekinn af Frétta-
blaðinu fyrir að fara í taugarnar á
„JÁJ“. „Hugsadu tad adeins, thetta
verdur notad eins og vidbrogdin vid
akærunni og greininn daginn eftir.
Endalaust tuggid a thessu a blm viti
ad eitt ord sem styggi JAJ tydi brott-
rekstur um hæl. Allt kann sa sem
bida kann. Oll Baugshatara-maskin-
an fer i overdrive. Hann fer tad er
klart. Bara spurning um adferd og
tima.“
Atli Fannar enn að en Jón
Kaldal farinn
Svo vill til að Atli Fannar vinnur enn
á Fréttablaðinu. Ari Edwald, forstjóri
365, benti á þessa staðreynd þegar
málið var borið undir hann. „Ef við
hefðum viljað reka Atla Fannar, þá
væri hann varla blaðamaður ennþá á
Fréttablaðinu. Er það?“
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins,
lýsti í löngu svari sínu til Jóns Ásgeirs
andstöðu við að reka blaðamanninn
unga. Hann vísaði meðal annars til
þess að á ferli sínum hjá Fréttablaðinu
hefðu eigendur ekki blandað sér í dag-
leg störf ritstjórnarinnar að öðru leyti
en að ræða dreifingu, stærð ritstjórnar,
upplag og þess háttar. „Skeytið frá þér
í gær eru því vonbrigði.“
Ljóst er af bréfinu að í odda skarst
milli Jóns Ásgeirs og Ara annars veg-
ar og Jóns Kaldal hins vegar. Um 5
mánuðum eftir þessi bréfaskipti var
Jón Kaldal látinn taka pokann sinn
sem ritstjóri Fréttablaðsins og við tók
Ólafur Stephensen, fyrrverandi rit-
stjóri Morgunblaðsins. Það gerðist í
lok febrúar á þessu ári.
Eins og fram kemur í tölvupóst-
unum, sem birtir eru hér í opnunni,
andmælti Jón Kaldal því eindregið
að hagsmunir fjölmiðla 365 yrðu á
nokkurn hátt látnir ráða fréttaskrif-
um eða fréttamati Fréttablaðsins.
„Fréttablaðið mun ekki ástunda slík
vinnubrögð undir minni stjórn. Það
er enginn efi í mínum huga um að
þau myndu hafa mjög neikvæð áhrif
Í tölvupósti til Jóns Ásgeirs 12. september í fyrra segir Ari að
verulegar líkur séu á því að sjálfstæðar
fréttir yrðu sagðar af því að blaðamaður
hefði verið rekinn af Fréttablaðinu fyrir
að fara í taugarnar á „JÁJ“.
JóhAnn hAuKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Jón Ásgeir Jóhannesson krafðist þess að ungur blaðamaður yrði
umsvifalaust rekinn af Fréttablaðinu fyrir að gera grín að honum.
Jón Kaldal ritstjóri tók til varna. Blaðamaðurinn er enn í vinnu
á Fréttablaðinu en Jón Kaldal var rekinn. Ari Edwald, forstjóri
365, kannast ekki við að reka hafi átt blaðamanninn og bendir á
að hann sé enn að störfum. Jón Kaldal staðfestir að tölvupóstar,
sem DV hefur undir höndum, hafi gengið milli sín, Ara og Jóns
Ásgeirs fyrir liðlega ári.
Blaðamaðurinn
ungi AtliFannar
Bjarkason,blaðamaður
áFréttablaðinu,vildi
safnaféhandaJóni
Ásgeiri.JónÁsgeirvildi
rekahann.
of langt gengið? JónÁsgeirJóhannesson,
aðaleigandi365,sagðiaðAtliFannargæti
hæðstaðséreinsoghannvildi.„Enaðég
ætliaðborgahonumlaunfyrirþaðnoway.“
sammála eigandanum „Hannfer,
þaðerklárt.Baraspurningumaðferð
ogtíma,“sagðiAriEdwaldítölvupóstitil
JónsÁsgeirsogáttiþarviðAtlaFannar.
Aðaleigendur 365 „Enþaðersérstakt
aðnýráðinndrengurlátisvona,“sagði
IngibjörgPálmadóttirítölvupóstitilAra,
JónsÁsgeirsogJónsKaldal.