Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Side 6
6 FRÉTTIR 11. október 2010 MÁNUDAGUR
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
ÞÆGILEGIR & LÉTTIR
www.gabor.is
Sérverslun með
Stærðir 35-42
Verð kr. 16.495.-
Eigendur eignarhaldsfélagsins
Bore as Capital ehf. greiddu sér tæp-
ar hundrað milljónir króna í arð
á síðasta ári vegna rekstrarársins
2008. Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi sjóðsins fyrir árið 2009 sem
skilað var til ársreikningaskrár rík-
isskattstjóra í lok september síðast-
liðins. Félagið rekur vogunarsjóð-
inn Boreas Capital Fund sem ekki er
skráður hér á landi. Vogunarsjóður-
inn var stofnaður árið 2007.
Eigendur eignarhaldsfélagsins
og starfsmenn vogunarsjóðsins,
Ragnar Þórisson, Tómas Áki Gests-
son, Frank Pitt og Gunnar Fjalar
Helgason, tengjast Björgólfi Thor
Björgólfssyni með ýmsu móti. Frank
Pitt er æskuvinur Björgólfs og var
Björgólfur meðal annars í ábyrgð
fyrir skuldum hans hjá Landsbank-
anum upp á 51 milljón króna, og
Ragnar og Tómas eru fyrrverandi
starfsmenn Straums-Burðaráss, en
Björgólfur var stærsti hluthafi hans.
Boreas Capital Fund var jafnframt
vistaður hjá Landsvaka, félagi sem
var í eigu Landsbankans sem ann-
aðist rekstur verðbréfa- og fjárfest-
ingarsjóða. Boreas Capital var auk
þess hluthafi í Straumi og átti meðal
annars um 400 milljóna króna hlut
í fjárfestingarbankanum haustið
2008.
Landsbankinn og Straumur
stærstu eigendur
Fjármálafyrirtæki sem Björgólfur
Thor átti og stýrði, Landsbankinn og
Straumur, voru þar að auki stærstu
eigendur Boreas Capital Fund. Um
mitt ár 2008 höfðu fjármálafyrir-
tækin tvö lagt um 7 milljarða króna
í vogunarsjóðinn. BYGG Invest, fjár-
festingarfélag í eigu Gunnars og
Gylfa hjá verktakafyrirtækinu BYGG,
fjárfesti einnig í sjóðnum með lána-
fyrirgreiðslu frá Landsbankanum í
júlí 2007, samkvæmt því sem kem-
ur fram í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis.
Því er það svo að stærstu eigend-
ur Boreas Capital Fund, vogunar-
sjóðsins sem var í eigu vina og við-
skiptafélaga Björgólfs Thors, voru
fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors og
var sjóðurinn jafnframt vistaður
meðal annarra sjóða Landsbankans.
Reyndar mun það einnig hafa verið
svo að þegar þeir Ragnar og Tómas
hættu störfum hjá Straumi-Burða-
rási árið 2006 aðstoðaði Björg ólfur
þá við að koma sjóðnum á laggirn-
ar. Þá ályktun hefði reyndar alveg
mátt draga eingöngu með því að
líta á helstu aðstandendur sjóðsins
og tengsl Björgólfs við starfsmenn
hans. Starfsmenn Boreas Capital
hafa því notið góðs af tengslunum
við Björgólf Thor.
Rúmlega 100 milljóna
hagnaður
Boreas Capital skilaði rúmlega 100
milljóna króna hagnaði árið 2008
og byggir arðgreiðslan árið 2009 á
rekstrarárangri þess árs. Hver eig-
andi fékk því 24 milljónir króna í
sinn hlut árið 2009. Í samanburði
má nefna að félagið skilaði einung-
is hagnaði upp á tæpar 2 milljón-
ir króna árið 2007. Arðgreiðslan í
fyrra er sú fyrsta sem fer út úr félag-
inu og til fjórmenninganna frá því
þeir byrjuðu að reka Boreas Capi-
tal.
Starfsmenn Boreas Capital, sem
eru fjórmenningarnir plús einn
starfsmaður til viðbótar, fengu
sömuleiðis heildarlaun upp á tæp-
ar 44 milljónir króna á árinu, sem
telst þó ekki mikið – rúmlega 700
þúsund krónur á mánuði að með-
altali – í samanburði við það sem
gengur og gerist í fjármálakerfinu.
Árið áður voru heildarlaunin tæpar
70 milljónir og stöðugildin 4,5, sem
þýðir að hver starfsmaður var með
tæplega 1.300 þúsund á mánuði.
Arðgreiðslan bætist svo við þetta
og má þá segja að eigendurnir fjór-
ir hafi verið með um 3,3 milljónir á
mánuði að meðaltali árið 2008.
Boreas Capital er ennþá starf-
andi og greindi Morgunblaðið frá
því fyrir rúmu ári að sjóðurinn
hefði sýnt fram á góða ávöxtun. Í
frétt blaðsins sagði: „Fjárfestingar
íslenska vogunarsjóðsins Boreas
Capital Fund hafa skilað 70 prósent
ávöxtun það sem af er þessu ári. Í
júlí var ávöxtunin 17,95, sem var
besti mánuður sjóðsins frá upphafi,
og 12,16% í ágúst.“ Þar kom fram að
sjóðurinn hygðist fjárfesta í aukn-
um mæli í Noregi.
Viðskiptafélagar og vinir Björg-
ólfs Thors hjá Boreas halda því
enn velli þrátt fyrir að fyrirtækin,
Landsbankinn og Straumur, sem
lögðu grunn að starfsemi hans séu
orðin gjaldþrota og komin í hendur
nýrra aðila.
Starfsmenn vogunarsjóðsins Boreas Capital hafa notið góðs af tengslum við Björgólf
Thor Björgólfsson fjárfesti. Félög í eigu Björgólfs Thors voru stærstu eigendur sjóðs-
ins sem er enn starfandi. Eigendur eignarhaldsfélagsins sem rekur sjóðinn greiddu sér
nærri 100 milljónir króna í arð í fyrra.
TÓKU 96 MILLJÓNIR
Í ARÐ ÁRIÐ 2009
Hver eigandi fékk því 24 millj-
ónir króna í sinn hlut
árið 2009.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Einn eigendanna EigendurBoreasCapitaleruhvaðþekktastirfyrir
aðhafafariðmeðfulltrúumFramsóknarflokksinstilNoregsífyrratil
aðbiðjaumlánhandaíslenskaríkinu.RagnarÞórissonereinnþeirra.
Fyrirtaka í máli fjögurra karlmanna
um þrítugt, sem ákærðir hafa verið
fyrir hrottalega líkamsárás, fór fram
í Héraðsdómi Reykjaness á föstudag.
Eru mennirnir ákærðir fyrir að hafa í
heimildarleysi ruðst inn á heimili 34
ára karlmanns í Hafnarfirði þann 27.
júlí árið 2008.
Samkvæmt ákæru drógu menn-
irnir manninn út úr húsinu seint um
kvöld, þvinguðu hann með ofbeldi til
að fara inn í Range Rover-bifreið. Þar
héldu fjórmenningarnir manninum
nauðugum og beittu hann ofbeldi;
kýldu hann, slógu í andlit hans og
líkama á meðan farið var með hann
upp í Heiðmörk. Samkvæmt ákæru
héldu barsmíðarnar þar áfram. Þeir
drógu hann út úr bifreiðinni, veitt-
ust að honum með ofbeldi með því
að slá hann í andlit og líkama. Afleið-
ingar árásarinnar voru þær að fórn-
arlambið hlaut brot á nefbeini, brot
á augntóft, rifbeinsbrot, yfirborðs-
áverka á höfði, mar og hrufl á ökkl-
um, baki og upphandleggjum.
Fórnarlambi árásarinnar tókst
við illan leik að koma sér sjálfur til
byggða. Hann gerði vart við sig með
því að brjóta rúðu í verslun Ikea með
þeim afleiðingum að öryggiskerfi
verslunarinnar fór í gang. Mennirnir
fjórir eru ákærðir fyrir húsbrot, frels-
issviptingu og sérstaklega hættulega
líkamsárás.
Samkvæmt upplýsingum DV fer
aðalmeðferð í málinu fram á næstu
vikum. Hafa mennirnir játað þátt
sinn í málinu að hluta. Heimildir DV
herma að mennirnir hafi deilt um
bifreið.
einar@dv.is
Fjórir menn ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás:
SkilinneftiríHeiðmörk
Heiðmörk Maðurinnvarskilinneftirí
Heiðmörkentókstviðillanleikaðkomasér
sjálfurtilbyggða.MYND STEFÁN KARLSSON
Framsókn ekki
í ríkisstjórn
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra hefur ekki áhyggjur af því að
þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar dugi
ekki til að koma fjárlagafrumvarpinu
í gegnum þingið. Þetta var haft eftir
Jóhönnu á fréttavef Vísis á sunnudag.
Nokkrir þingmenn ríkisstjórnarinnar
hafa gagnrýnt boðaðan niðurskurð í
heilbrigðismálum og því óljóst hvort
meirihluti sé fyrir fjárlagafrumvarpinu.
Jóhanna segir hins vegar að ríkisstjórn-
in vinni með stjórnarandstöðunni
við að finna lausnir á skuldavanda
heimilianna og því verði ekki fjölgað
í ríkisstjórn. Framsóknarflokkurinn
hefur heyrst nefndur í því samhengi en
Jóhanna telur að ekki sé ástæða til að
bjóða Framsókn í ríkisstjórn.
22 þúsund á
vanskilaskrá
„Úrræðin hafa ekki verið nægi-
lega mörg og ekki virkað nægi-
lega vel,“ segir Rakel Sveinsdóttir,
framkvæmdastjóri Credit Info. 22
þúsund manns eru nú á vanskila-
skrá og bendir flest til þess að fleiri
hundruð fjölskyldur muni missa
heimili sín á næstunni. Rakel sagði
í fréttum RÚV á sunnudag að ef
viðunandi úrræði hefðu kom-
ið fram fyrr væri þetta fólk ekki í
eins slæmum málum og raun ber
vitni. Credit Info heldur utan um
tölfræði sem snýr að skuldugum
heimilum á landinu. Frá hruni
hefur þeim sem eru á vanskilaskrá
fjölgað um sex þúsund.
Mótmælt á
Seyðisfirði
Tugir manna mættu á samstöðu-
fund við sjúkrahúsið á Seyðisfirði á
sunnudag til að mótmæla fyrir-
huguðum niðurskurði á svæðinu.
Mótmælendur héldust í hendur og
mynduðu hring utan um sjúkrahús-
ið og í kjölfarið var einnig samþykkt
ályktun. Þar koma meðal annars
fram efasemdir um að um raunveru-
legan sparnað sé að ræða í niður-
skurðaráætlunum ríkisins. Verði
niðurskurðurinn að veruleika muni
kostnaður við að flytja sjúklinga
margfaldast og því fari sparnaðurinn
fyrir lítið. Þá kemur fram í ályktun-
inni að verið sé að stefna grundvelli
til búsetu á svæðinu í hættu.