Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 11. október 2010 mánudagur
„Við lögðum fram kröfu um að málið
yrði sent svo fá megi ráðgefandi álit
EFTA-dómstólsins,“ segir viðskipta-
fræðingurinn og háskólaneminn
Sveinn Óskar Sigurðsson. Hann hef-
ur stefnt Frjálsa fjárfestingarbankan-
um vegna innheimtu gengistryggðs
láns í erlendri mynt.
Ofgreiddi bankanum
Sveinn segir málsóknina tilkomna
vegna þess að Frjálsi fjárfestingar-
bankinn haldi því fram að höfuð-
stóll erlends gengistryggðs láns hafi
hækkað í krónum talið vegna geng-
ishruns krónunnar. Fyrir vikið hafi
hann ofgreitt bankanum á ákveðnu
tímabili. Málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag-
inn en afstaða til kröfunnar um að
málið verði sent EFTA-dómstólnum
verður tekin 5. nóvember.
Varði sig fyrir falli krónunnar
Eins og kunnugt er kvað Hæstirétt-
ur upp þann dóm í sumar að gengis-
tryggð lán vegna skuldbindingar í ís-
lenskum krónum væru ólögleg. Hið
sama þarf ekki að gilda um geng-
istryggð lán vegna skuldbinding-
ar í erlendri mynt. Sveinn, sem tók
ásamt eiginkonu sinni hefðbund-
ið gengistryggt húsnæðislán, segist
hafa tekið lán í erlendum myntum
og að Frjálsi fjárfestingarbankinn
hafi raunar viðurkennt það í apríl á
þessu ári, nokkrum mánuðum áður
en dæmt var í málum sem snúa
að gengistryggðum lánum. Hann
bendir einnig á að árið 2006 hafi
Frjálsi fjárfestingarbankinn sagt í
auglýsingu á heimasíðu bankans að
erlendur höfuðstóll gengistryggðra
myntkörfulána tæki breytingum í
samræmi við þróun erlendra gjald-
miðla gagnvart íslensku krónunni –
en ekki öfugt.
Sveinn heldur því fram að vegna
þess að hann hafi tekið erlendar
myntir að láni með gengistryggingu,
að jafnvirði fastrar krónufjárhæð-
ar eins og segir í veðskuldabréfinu
sjálfu, hafi hann með því tryggt sig
fyrir falli krónunnar. „Ef þú tekur
til dæmis erlent lán að jafnvirði 10
milljóna króna, þar sem evran kost-
ar 100 krónur, þá ertu að taka 100.000
evrur að láni. Segjum að krónan falli
í verði og gengið verði 150 krónur á
hverja evru þá gerist það að þessar 10
milljónir standa óbreyttar en höfuð-
stóllinn verður 67 þúsund evrur. 67
þúsund evrur eru þá ígildi 10 millj-
óna króna,“ segir Sveinn Óskar og
bendir á að Hæstiréttur hafi bannað
gengistrygginguna eins og bankarn-
ir hafi viljað reiknað hana. Bannað sé
að reikna þetta þannig út að höfuð-
stóllinn hækki í 15 milljónir, miðað
við þessar gefnu forsendur. „Svo er
vissulega litið til vaxtaþáttarins sem
spilar vissulega þarna stóran þátt,“
segir hann.
Varaði við hruninu
Sveinn segir að Frjálsi fjárfestingar-
bankinn beri því við í málsvörn sinni
að þau hjónin séu vel menntuð og
hafi mátt sjá fyrir hvernig færi fyrir
krónunni. Sveinn segir að það sé rétt.
Hann hafi ítrekað varað við hruninu
á opinberum vettvangi og bent á þær
hættur sem fylgdu óheftri erlendri
skuldasöfnun fjármálakerfisins sem
gæti leitt til falls krónunnar og til-
svarandi kjara- og eignarýrnunar.
Í grein sem hann skrifaði og fékk
birta í Morgunblaðinu í apríl 2004,
undir fyrirsögninni „Krónan er dauð-
vona“, bendir hann á að óbreytt krón-
ustefna og skuldasöfnun fjármála-
fyrirtækja erlendis geti leitt síðar til
kjaraskerðingar fyrir heimlin og að ár-
angurinn sem náðst hafi á fyrstu árum
aldarinnar verði að engu ef ekkert
verði að gert. Árið 2007 ritaði hann svo
grein til að ítreka það sem hann benti
á árið 2004 auk þess sem líta bæri til
þess að ræða af skynsemi upptöku
evrunnar. Einnig kom fram í grein-
unum að Seðlabanki Íslands virtist
stefna peningamálum þjóðarinnar í
hættu með óbreyttri peningamála-
stjórn. Sveinn segir að þessar viðvar-
anir hafi verið virtar að vettugi. Hann
hafi talið hættu steðja að krónunni
og því ákveðið að verja sig gegn falli
hennar, með því að taka erlent geng-
istryggt lán þegar það bauðst og eins
og það var kynnt af Frjálsa fjárfesting-
arbankanum. Greinarnar hyggst hann
leggja fram í aðalmeðferð málsins.
Leiðréttingin fyrir
fjármálastofnanir
Sveinn segir að þau hjónin hafi
keypt eign á sínum tíma án þess
að takast að selja þá sem þau áttu
fyrir. Þau hafi hins vegar ekki leit-
að til umboðsmanns skuldara, sem
aðstoðar fólk í þeirri stöðu, vegna
þess að þau hafi varið sig fyrir falli
krónunnar og vilja að bankinn
standi við samninga. Þau ættu því
að vera í ágætum málum. „Við sjá-
um ekki ástæðu til að sækja leið-
réttinguna sem er frekar fyrir fjár-
málastofnanirnar,“ segir hann og
ítrekar að hann hafi tekið geng-
istryggt erlent lán. „Síðustu grein
minni í Mogganum lauk með þeim
orðum að réttlætisgyðjurnar væru
ekki sáttar og að dómur Hæstarétt-
ar í þessum málum væri ekki sal-
ómonsdómur,“ segir hann en þess
má geta að Sveinn vinnur þessi
dægrin að lokaverkefni í Háskóla
Íslands þar sem hann kryfur verð-
trygginguna til mergjar. „Þar er ég
að taka vísitölu neysluverðs fyrir,“
segir hann að lokum.
Sveinn segir að þessar viðvaran-
ir hafi bankinn virt að
vettugi.
Varaði Við hruni og
Vill lækkun á láni
Sveinn Óskar Sigurðsson viðskiptafræðingur hefur höfðað mál
á hendur Frjálsa fjárfestingarbankanum vegna gengistryggðs
láns. Hann varaði opinberlega og ítrekað við efnahagshruninu
löngu fyrir hrun og segir að gengistryggð lán í erlendri mynt
eigi að hafa lækkað en ekki hækkað. Hann hafi tryggt sig gegn
falli krónunnar með því að taka lán í erlendum myntum – það
hafi bankinn sjálfur viðurkennt.
baLdur guðmundSSOn
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Varaði við hruninu „Krónanerdauðvona,“sagðiSveinnÓskarárið2004.
Sækir á bankann SveinnÓskarsegisthafa
ofgreittFrjálsafjárfestingarbankanumafgengis-
tryggðuláni.Hannhefuróskaðeftirúrskurðifrá
EFTA-dómstólnum.