Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Blaðsíða 11
mánudagur 11. október 2010 fréttir 11 „Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að auka þorskkvótann um 20 þúsund tonn nú þegar og að ríkið leigi hann út sem neyðarráðstöfun til þess að lina sársaukann af óumflýjanlegum niðurskurði,“ segir Ólína Þorvarð- ardóttir, Samfylkingunni, í samtali við DV. Ólína var meðal gesta á allt að 1.400 manna borgarafundi á Ísa- firði síðastliðið fimmtudagskvöld þar sem mótmælt var alvarlegum og sársaukafullum niðurskurði hjá heilbrigðisstofnunum í Ísafjarðar- bæ. Á fundinum taldi Ólína af og frá að fallast á fyrirætlanir í fjárlaga- frumvarpinu um niðurskurð í heil- brigðisstofnunum á landsbyggð- inni. „Það er líka hægt að hugsa sér að auka tekjur ríkissjóðs með eins- konar tímabundnum neyðarráð- stöfunum. Það má gera með því að auka þorskkvótann strax og sömu- leiðis ufsa- og ýsukvóta og nota tekjurnar til að létta þjóðinni að komast yfir þungbæran niðurskurð velferðarkerfisins í kjölfar banka- hrunsins. Ég minni á að ég mælti fyrir vísindaveiðum á þorski á síð- asta ári en það fékk dræmar undir- tektir. Ég tel að ríkið geti gert þetta með lagasetningu og í raun hefðu útgerðarmenn ekkert um það að segja þótt ríkið aflaði sér aukatekna með aukningu kvóta og tímabund- inni útleigu hans.“ Stjórnin veltir aukningu fyrir sér Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir allar leiðir til skoðunar en vildi ekkert tjá sig um tímabundna aukningu kvótans þegar DV hafði samband við hann. „Ég tel að skoða verði alla mögu- leika til tekjuöflunar til þess að mæta svo alvarlegum niðurskurði velferðarkerfisins. Ég tel vel koma til greina að kanna það hvort ekki sé rétt að auka þorskkvótann tíma- bundið og innan öryggismarka,“ segir Guðbjartur Hannesson, ráð- herra heilbrigðis- og félagsmála- ráðherra, en hann var jafnframt formaður kvótanefndar sjávarút- vegsráðherra sem skilað hefur nið- urstöðum um efndurskoðun kvóta- kerfisins. Mikil þorskgengd Margir sjómenn og útgerðarmenn fullyrða að þorskgengd á miðunum fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi sé afar mikil um þessar mundir. Dæmi eru þess að handfærabátar komi inn með 2 tonn af þorski eftir nokkra klukkustunda langar veiði- ferðir undan Vestfjörðum, en að- eins er unnt að veiða á handfæri þegar bjart er. Á sama tíma og þetta gerist er nær ómögulegt að kaupa þorsk- eða ýsukvóta hvað þá að leigja kvóta til sín til að mæta aukn- um meðafla. Þetta hamlar ekki síst veiðum á úthafsrækju fyrir Norð- urlandi þar sem meðafli þorsks fer vaxandi. Dæmi eru þó þess að ýsu- kvóti hafi verið boðinn til leigu á liðlega 200 krónur kílóið. Það þyk- ir stjarnfræðilega hátt í ljósi þess að kílóið selst hugsanlega á 250 krón- ur kílóið. Ófremdarástand Óskar Gíslason, útgerðarmaður á Patreksfirði, hefur gert út fiski- skipið Valgerði BA 45 frá haustinu 2007. Hann ritaði Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra bréf fyrir um hálfum mánuði og gerði grein fyr- ir vanda útgerðarinnar. Svör hefur hann engin fengið ennþá. „Þetta hefur gengið ágætlega þótt ég hafi að mestu þurft að leigja veiðiheim- ildir. Útgerð mín hefur staðið undir um 20 ársverkum hér á Patreksfirði og á Suðureyri. Nú er skipið bund- ið við bryggju og við höfum ekkert að gera því engan leigukvóta er að hafa og engan kvóta hægt að kaupa. Ég hef því sagt mannskapnum upp störfum. Í bréfi mínu til sjávarút- vegsráðherra geri ég grein fyrir ástandinu. Ég hef fé til að greiða af lánum næstu mánuðina. En þegar sjóðurinn er þurrausinn vandast málið og ég vil fá svör sjávarútvegs- ráðherrans. Á ég að skila lyklunum í bankann eftir þann tíma? Megum við búast við einhverjum breyting- um eða úrbótum? Og ef svo; hvers megum við þá vænta?“ Óskar kveðst glaður leigja þorskkvóta beint af ríkinu ef ekki með hefðbundnum hætti, til dæm- is á 150 krónur kílóið. 200 þúsund tonn í lagi „Vð teljum óhætt að fara með árs- aflann á þorski upp í að minnsta kosti 180 þúsund tonn og jafn- vel 200 þúsund tonn jafnframt því sem nýtingarstefnan verður endur- skoðuð,“ segir Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri Lands- sambands íslenskra útvegsmanna. Hann vísar jafnframt til þess að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hafi nýverið skipað Skúla Skúlason Hólarektor til þess að leiða endur- skoðun nýtingarstefnunnar. Hafrannsóknastofnun taldi ráð- legt að veiða ekki meira en 160 þús- und tonn á yfirstandandi fiskveiði- ári. Stofnunin gerir þó ráð fyrir óvissu og að veiðistofninn sé mun stærri meðal annars vegna Græn- landsgöngu og annarra atriða. Á það er einnig bent að hrygningar- stofninn mælist nú um 300 þúsund tonn. Geta má þess að árið 1993 mældist hann aðeins 120 þúsund tonn og er því nú tvisvar til þrisvar sinnum stærri en þá. Telja verður vaxandi líkur á að þorskveiðar verði auknar á yfir- standandi fiskveiðiári af ofan- greindum ástæðum. Aukning- in kæmi sér vissulega vel þegar íslenska efnahagslífið hefur sjald- an eða aldrei þurft á aukatekjum að halda til að mæta áfölllum rík- issjóðs vegna bankahrunsins árið 2008. Miðað við þær forsendur sem fyrir liggja má því ætla að líkur á aukningu kvóta hefði vel komið til greina óháð gríðarlegri þörf efna- hagslífsins fyrir meiri tekjur. Ljóst er að 20 þúsund tonna aukakvóti af þorski gæti skilað þjóðarbúinu á annan tug milljarða króna auka- tekjum í þjóðarbúið. Ófriður um aðferð? Lítil von er til þess að friður yrði um að ríkið héldi 20 þúsund tonna aukakvóta af þorski hjá sér og leigði hann á uppboðsmarkaði eða föstu verði. Útvegsmenn börðust með kjafti og klóm gegn 2.000 tonna skötuselskvóta sem Jón Bjarnason gaf út til bráðabirgða til tveggja ára undir þeim formerkjum að rík- ið leigði hann út á 120 krónur kíló- ið. Töldu þeir að ráðherrann væri með þessu að hefja innlausn kvót- ans í anda fyrningarleiðarinnar en hún varð undir í meðförum kvóta- nefndar Guðbjarts Hannessonar. Útvegsmenn höfðu vannýtt út- gefinn úthafsrækjukvótann mörg undanfarin ár. Af þeim sökum setti sjávarútvegsráðherra úthafsrækju ekki undir aflamark að þessu sinni. Forsvarsmenn LÍÚ kunna þessu illa, telja þetta brot á lögum og hóta að lögsækja ráðherrann. Vilji er til þess innan ríkisstjórnarinnar og meðal stjórnarliða að auka þorskkvótann, jafnvel um 20 þúsund tonn. LÍÚ er sama sinnis og telur óhætt að veiða allt að 200 þúsund tonn. Ófriður gæti brotist út um málið ef ríkið eykur þorskkvótann og leigir hann út í stað þess að útdeila honum til kvótahafa. Ólína Þovarðardótt- ir, Samfylkingunni, telur þetta vel koma til greina og segir útgerðarmenn ekkert hafa um málið að segja. Aukinn þorsk- kvóti á döfinni jÓhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Það má gera með því að auka þorsk- kvótann strax og sömu- leiðis ufsa- og ýsukvóta og nota tekjurnar til að létta þjóðinni að komast yfir þungbæran niður- skurð velferðarkerfisins í kjölfar bankahrunsins. Verst frétta JónBjarnasonætlaraðendurskoðanýtingarstefnunaenvillekki segjaneittafdráttarlaustumþaðhvortþorskkvótinnverðiaukinn. Útvegsmenn vilja meiri afla Friðrik J.Arngrímssonframkvæmdastjóri LÍÚteluróhættaðveiðaalltað200 þúsundtonnafþorskijafnframtþvísem nýtingarstefnanverðiendurskoðuð. aukum kvótann strax ÓlínaÞorvarðar- dóttirmæltifyrirvísindaveiðumáþorskií fyrra.Húnvillaukaþorskkvótannstraxog dragaumleiðúráföllumvelferðarkerfisins. Valgerður Ba 45 SkipÓskarsGíslasonarliggurbundiðviðbryggjuen20manns hafahaftvinnubeintogóbeintviðútgerðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.