Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Síða 12
12 fréttir 11. október 2010 mánudagur Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2011 er boðaður gífurlegur niðurskurð- ur í heilbrigðiskerfinu um land allt, eða sums staðar allt að 70 pró- sent miðað við árið í ár. Mikill hiti er í íbúum á landsbyggðinni vegna þessa og hafa fjölmennir og tilfinn- ingaþrungnir borgarafundir verið haldnir víða. Fólk er reitt, áhyggju- fullt og jafnframt sorgmætt, enda vegið að búsetuskilyrðum þess. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fer ekki varhluta af þessum niður- skurði, en ef fer sem horfir og nið- urskurðurinn gengur eftir, þarf samkvæmt forsvarsmönnum stofn- unarinnar að grípa til ansi róttækra aðgerða til að mæta honum. 40 prósenta niðurskurður „Þetta er rýtingsstunga í þetta samfélag og þýðir bara hrun byggðarinnar,“ segir Eiríkur Finn- ur Greipsson, oddviti D-listans í Ísafjarðarbæ, um fyrirhugað- an niðurskurð á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Boðaður niðurskurður er mestur á sjúkrasviði stofnunarinnar, eða um 40 prósent miðað við árið í ár. Eiríkur segir að fólki í bæjarfélag- inu sé mjög misboðið og það verði að koma í veg fyrir að þessi niður- skurður gangi í gegn. Hann sat í síðustu viku, ásamt Daníel Jakobs- syni bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, fund starfsmanna á Heilbrigðis- stofnun Vestfjarða þar sem Þröst- ur Óskarsson framkvæmdastjóri fór yfir hvað niðurskurðurinn gæti þýtt fyrir heilbrigðisstofnunina. Fæðingarþjónusta leggst af Á fundinum kom fram að ef fyr- irhugaður niðurskurður gengur eftir gæti meðal annars þurft að leggja alveg af fæðingarþjónustu á Vestfjörðum, sem og ómskoð- anir á meðgöngu. Allar sem þurfa á slíkri þjónustu að halda yrðu því að leita annað. Þá hefði stofnun- in ekki lengur bolmagn til þess að gefa krabbameinssjúklingum lyf og sjúklingar yrðu því alltaf að fara burt frá heimahögum í lyfjagjaf- ir. Nýr blöndunarskápur krabba- Boðaður er gífurlegur niðurskurður á fjárveit- ingum í heilbrigðiskerfinu um allt land. Vest- firðir fara ekki varhluta af þessum niðurskurði og þarf að grípa til róttækra aðgerða svo að hægt sé að mæta honum. Meðal annars gæti þurft að leggja alfarið niður fæðingarþjónustu á Vestfjörðum. Lára Ósk Pétursdóttir ung móðir á Þingeyri segir þetta fáránlegt og biðlar til stjórn- valda að endurskoða fyrirhugaðan niðurskurð. „Verið að leggja landsbyggðina af“ SÓLrún LiLja ragnarSdÓttir blaðamaður skrifar: solrun@dv.is Þetta er rýtings-stunga í þetta samfélag og þýðir bara hrun byggðarinnar. 70 prósenta niðurskurður Niðurskurðurermesturásjúkrasviðiheilbrigðisstofnana ogsumsstaðarersjúkrasviðiðnánastlagtniður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.