Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Page 13
mánudagur 11. október 2010 fréttir 13
meinslyfja, sem bráðadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Ísafirði tók
í notkun á dögunum, myndi þá
standa ónotaður. Skurðstofunni
yrði lokað að mestu eða öllu leyti
og maga- og ristilspeglanir legð-
ust af.
Svæðið verður ófýsilegt til
búsetu
Fyrir utan augljóst hrun í heil-
brigðisþjónustu á Vestfjörðum
þá geta samfélagsleg áhrif nið-
urskurðarins orðið mjög mikil,
að mati Eiríks. Fjöldi sjúklinga í
byggðum Ísafjarðarbæjar myndi
þurfa að leita til Reykjavíkur í stað
Ísafjarðar og sjúkraflug myndi
aukast gífurlega. Það telst ekki
fýsilegt í ljósi þess hve samgöngur
geta verið ótryggar á Vestfjörðum,
sérstaklega yfir vetrarmánuðina.
Ferðalög til Reykjavíkur orsaka
vinnutap og fjarveru frá heim-
ili og ættingjum og hætta er á að
sjúklingar og aðstandendur þeirra
flytji burt vegna skorts á þjónustu.
Þá munu, að öllum líkindum, 12
læknar og fagmenntað heilbrigð-
isstarfsfólk missa vinnuna. Eiríkur
bendir á að allir þessir þættir geri
svæðið í heild sinni ófýsilegt til bú-
setu.
Borgarafundur var haldinn á
Ísafirði síðastliðið fimmtudags-
kvöld. Á honum var um 1.600
manns og enn fleiri fylgdust með
honum í beinni útsendingu á net-
inu.
Sjúkrasvið lögð niður
Ljóst er að boðaður niðurskurður
í heilbrigðiskerfinu kemur mjög
illa við íbúa á norðanverðum
Vestfjörðum, enda langt að fara
til Reykjavíkur að leita sér lækn-
isaðstoðar. Vestfirðingar eru þó
ekki einir um að fá slæma útreið
í fjárlögum næsta árs, enda eins
á áður sagði, skorið niður í heil-
brigðiskerfinu um allt land. Nið-
urskurðurinn er nánast undan-
tekningalaust mestur á sjúkrasviði
heilbrigðisstofnana.
Ef fjárveitingar á milli ára eru
skoðaðar sést meðal annars að
sjúkrasvið Heilbrigðisstofnunar
Sauðárkróks og Heilbrigðisstofn-
unar Þingeyinga, sem staðsett er á
Húsavík, verða nánast lögð niður.
Íbúar á þessum svæðum þurfa þá
að sækja sér ýmsa læknisþjónustu
til Akureyrar eða Reykjavíkur. Þess
má geta að á milli Sauðárkróks og
Akureyrar er um tveggja tíma akst-
ur og um klukkutíma akstur á milli
Húsavíkur og Akureyrar.
Nýuppgerð fæðingardeild
lögð niður
„Þetta er bara fáránlegt,“ segir Lára
Ósk Pétursdóttir um væntanleg-
an niðurskurð á fjárveitingum til
Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Hún býr á Þingeyri ásamt manni
sínum og tveimur ungum dætr-
um og þekkir af eigin reynslu bæði
hvernig það er að eiga barn á Ísa-
firði, nálægt sínum heimabæ, og
hvernig það er að þurfa að fara til
Reykjavíkur að eiga barn.
Fæðingardeildin á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísafirði var tekin í
gegn fyrir rétt um ári og var Lára
fyrsta konan til að eiga barn á ný-
vígðri fæðingardeild þar í nóvem-
ber í fyrra. „Það er búið að eyða
þvílíkum fjármunum í að gera spít-
alann fínan og taka inn fullt af nýj-
um tækjum,“ segir Lára og á varla
til orð yfir tilvonandi ástandi. „Ef
ómskoðun leggst af, hvert eiga
þessar konur að fara í skoðun?
Þær þurfa þá alltaf að fara suð-
ur,“ segir Lára og bendir á sumar
konur gangi svokallaða áhættu-
meðgöngu og þurfi að vera undir
strangara eftirliti en aðrar óléttar
konur og fara því oftar í skoðun.
Öryggisleysi fyrir
þungaðar konur
Sjálf þekkir Lára af eigin raun
hvernig það er að þurfa að vera
undir ströngu eftirliti á meðgöngu,
þó það hafi ekki verið flokkað sem
áhættumeðganga, og getur ekki
ímyndað sér hvernig það hefði ver-
ið ef hún hefði alltaf þurft að fara
til Reykjavíkur í skoðun. Það hefði
verið henni ansi kostnaðarsamt
svo ekki sé minnst á óþægindin
sem því hefðu fylgt. Lára bendir á
þá staðreynd að konur megi ekki
fljúga eftir 35. viku meðgöngu og
sjálf myndi hún ekki vilja dröslast
margoft kasólétt í bíl á milli Reykja-
víkur og Þingeyrar. Fyrir þær kon-
ur sem þurfa á strangara eftirliti
að halda væri þá líklega það eina
í stöðunni að vera í Reykjavík
seinnihluta meðgöngunnar, fjarri
heimili og ættingjum.
„Þetta er gífurlegt öryggis-
leysi,“ segir Lára og veltir upp erf-
iðum aðstæðum sem geta komið
upp hjá þunguðum konum, bæði
á meðgöngu og í fæðingu. „Það er
nú ekki alltaf flogið hérna, það er
alltaf verið að aflýsa flugi hérna á
veturna og ef fólk kemst ekki land-
leiðina, hvað þá?,“ segir Lára og vill
varla hugsa þá hugsun til enda.
Frábær fæðingarþjónusta á
Ísafirði
Þegar Lára átti eldri dóttur sína
voru aðstæður á sjúkrahúsinu á
Ísafirði þannig hún þurfti að fara
með sjúkraflugi til Reykjavíkur og
hún segir það skelfilega lífsreynslu.
„Mér var troðið inn í pínulitla rellu
kasólétt og með hríðir,“ rifjar hún
upp með hryllingi. Hún segir varla
hægt að bera þá lífsreynslu saman
við fæðingu seinni dóttur sinnar
sem hún átti á nýuppgerðri fæð-
ingardeildinni á Ísafirði. „Það var
æðislegt að eiga á Ísafirði,“ segir
hún en þar var dekrað við hana og
hún umkringd fjölskyldunni sinni.
„Það eru allir rosalega reiðir,
fólki finnst bara eins og sé verið
að leggja landsbyggðina af,“ segir
Lára aðspurð um viðbrögð fólks í
kringum hana. „Það þarf virkilega
að endurskoða þetta, annars flyt-
ur fólk bara í burtu,“ segir Lára en
bendir jafnframt á að það sé hæg-
ara sagt en gert að fara burt og ef
fer sem horfir í niðurskurðarmál-
um verður vonlaust að losna við
húseignir á Vestfjörðum. Lára vill
að lokum skora á stjórnvöld að
endurskoða boðaðan niðurskurð
í heilbrigðismálum og vill að hætt
verði að setja landsbyggðina í ann-
að sæti.
„Verið að leggja landsbyggðina af“
Kortið sýnir í prósentum niðurskurð í heilbrigðiskerfinu
á landsbyggðinni á milli áranna 2010 og 2011.
niðurskurður í
heilbrigðiskerfinu
Heildarniðurskurður niðurskurður á sjúkrasviði
Ísafjarðarbær
17%
40%
Sauðárkrókur
30%
68%
Húsavík
40%
73%
Fjarðabyggð
22%
50%
reykjanesbær
22%
50%
árborg
35%
42%
Vestmannaeyjar
23%
35% Það er nú ekki alltaf flogið
hérna, það er alltaf ver-
ið að aflýsa flugi hérna
á veturna og ef fólk
kemst ekki landleiðina,
hvað þá?
Biðlar til stjórnvalda Lára
Ósk Pétursdóttir er hér með
yngri dóttur sinni, Katrínu
Júlíu, sem var fyrsta barnið
sem fæddist á nýuppgerðri
fæðingardeild á Ísafirði fyrir
tæplega ári. MyNd úr eiNkaSaFNi