Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Síða 14
Nokian Hakkapeliitta 7 er besta
nagladekkið í snjó og á ís sem völ er
á. Það fær hæstu einkunn fyrir akst-
urstilfinningu og örugga aksturs-
eiginleika, í vandaðri prófun systur-
félags FÍB í Noregi. Á blautu malbiki
og í krapi er dekkið ekki alveg eins
gott og þau sem best skora við þau
skilyrði. Dekkið er engu að síður
jafngott í flestum greinum en er þó
háværara en þau allra hljóðlátustu.
Umfangsmikið próf
DV birtir í dag, með góðfúslegu leyfi
FÍB, niðurstöður úr árlegri dekkja-
prófun sem Motor, blað á vegum
systurfélags FÍB í Noregi, stóð fyr-
ir. Prófunin er ákaflega vönduð en
finnska fyrirtækið TestWorld fram-
kvæmir prófið á reynsluaksturssvæði
sínu í Ivalo í Norður-Finnlandi. Að
því er segir í blaði FÍB er um að ræða
eitt stærsta og umfangsmesta vetrar-
dekkjapróf sem gert er í Evrópu. Það
er gert til að kanna virkni vetrarhjól-
barða á norðlægum slóðum en að
þessu sinni voru 22 tegundir nýrra
negldra og ónegldra vetrardekkja
kannaðar. Þá voru nýju dekkin borin
saman við notuð dekk en niðurstöð-
urnar má sjá hér til hliðar á opnunni.
Besta dekkið á tilboði
Eins og áður segir kom Nokian
Hakkapeliitta 7 best út af öllum
dekkjunum – fær 8,4 í heildarein-
kunn eftir prófanir á ís, snjó, blautu
malbiki, þurru malbiki, krapi auk
þess sem tekið er tillit til veghljóðs og
núningsmótstöðu. Í töflunni má sjá
nákvæmlega hvað dekkið fær í ein-
kunn í hverjum þætti.
Max 1 flytur inn dekkin og sam-
kvæmt upplýsingum þaðan eru 15
tommu dekk (195-65-15) á 20 pró-
senta afslætti til næsta laugardags,
16. október. Stykkið kostar rétt rúmar
17 þúsund krónur fram að þeim tíma
en eftir það kostar dekkið rúmlega 21
þúsund krónur. Nú er því hægt að fá
umganginn á um 68 þúsund krónur
en þá á vitanlega eftir að greiða fyrir
umfelgun, þar sem það á við.
Greinið þarfir ykkar
Fast á hæla Nokian Hakkapelliitta 7
kemur dekk frá Continental, það fær
8,3 í einkunn og þykir sérstaklega
gott í ís og snjó. „Contiice gefur góða
og örugga aksturstilfinningu, er rás-
fast og hljóðlátt af negldu dekki að
vera,“ segir í umsögn um dekkið.
Í þriðja sæti hafnaði dekk frá
Bridgestone sem þykir framúrskar-
andi á ís og enn fremur besta dekkið
þegar ekið er í krapi.
FÍB ráðleggur fólki að framkvæma
þarfagreiningu fyrir eigin notkun
áður en fjárfest er í dekkjum. „Ráð
okkar er því það að hver og einn geri
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 190,6 kr. verð á lítra 193,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 194,9 kr. verð á lítra 195,7 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 193,3 kr. verð á lítra 194,3 kr.
Melabraut verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,6 kr. verð á lítra 194,6 kr.
Leitið áLitS
þriðjA AðiLA
Flest fjármögnunarfyrirtækin hafa
lokið við að endurreikna einföld-
ustu gengistryggðu bílasamning-
ana. SP-fjármögnun greindi frá því
fyrir helgi að sjö þúsund endur-
útreikningar samninga hafi verið
sendir viðskiptavinum og að þeir
bærust þeim á næstu dögum. Hægt
er að skoða endurútreikningana
SP á sp.is en Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, ráðleggur fólki
í samtali við DV að leita til þriðja
aðila ef það vantreystir útreikning-
um fjármögnunarfyrirtækjanna.
Hann bendir á að Sparnaður sé á
meðal þeirra sem bjóða upp á slíka
þjónustu.
Seinir Að opnA
hóLfin
n „Hólfin í miðri nýju stúkunni voru
orðin þétt setin og ekki nokkur leið
að fá þar samliggjandi sæti fyrir
fjóra. Samt vildu þeir ekki opna
ysta hólfið í nýju stúkunni,“ sagði
óánægður viðskiptavinur KSÍ. Hann
fór á landsleik Íslands og Skotlands
í síðustu viku, eins og 7.200 manns,
og missti af þjóðsöngv-
unum og fyrstu mín-
útunum vegna þess
að KSÍ þráaðist við að
opna öll hólfin þar
sem áhorfendur sitja.
Það gerðu þeir þó að lokum,
enda aðsóknin frábær.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
novA bráSt við
n Lofið fær Nova fyrir að bregaðst
við lasti. DV greindi frá því í síð-
ustu viku að viðskiptavinur, sem
sendi son sinn í fyrsta sinn einan
til útlanda, hefði aldrei getað náð
sambandi við soninn, þrátt fyrir fyr-
irheit um að síminn ætti að virka.
Nova hafði samband við DV
sem hafði milligöngu um
að koma viðskiptavininum
í samband við fyrirtækið.
Nova vildi fyrir alla
muni koma til móts
við viðskiptavininn og
soninn og fær fyrirtæk-
ið lof fyrir þau viðbrögð.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: BaldUr GUðmUndsson baldur@dv.is 11. október 2010 mánudagur
SpArAðu í AkSTri margt er hægt að gera til að draga úr
eldsneytisnotkun bílsins. munið að hraðakstur eykur bensíneyðslu og
veldur umhverfisspjöllum. Sparaðu inngjöfina og forðastu snögghemlun
en með því sparar þú eldsneytið og dregur úr mengun. Stöðvaðu hreyfil-
inn ef bíllinn er í hægagangi meira en eina mínútu því hægagangur í eina
mínútu er bensínfrekari en gangsetning. Þá getur þú sparað á því að hafa
loftþrýsting í dekkjum eins mikinn og ráðlagt er samkvæmt framleið-
anda. Gættu þess líka að aka ekki um með óþarfa hluti sem þyngja bílinn.
Hvert kíló eykur bensínnotkun.e
L
d
S
n
e
y
T
i
NokiaN-NagladekkiN best
Nokian, Continental og Bridgestone
koma best út í árlegri prófun á nýjum
vetrardekkjum. Nokian Hakkapeliitta
7 er besta dekkið en það má nú fá á 20
prósenta afslætti hjá Max 1 út þessa viku.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda ráðlegg-
ur fólki að greina þarfir sínar áður en
ákveðið er hvernig dekk eru keypt.
BaldUr GUðmUndsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
FÍB ráðleggur fólki að fram-
kvæma þarfagreiningu
fyrir eigin notkun áður
en fjárfest er í dekkj-
um.
n Til að fá marktæka niðurstöðu fyrir
hverja hjólbarðategund í einstökum
prófunar þáttum, t.d. í prófunarliðnum
„Hemlun á ís“, eru gerðar milli 16 og
20 hemlunarprófanir, allar á sléttum
og óupprifnum ís. Allt prófið í heild
sinni er endurtekið þrisvar sinnum á
jafnmörgum dögum. með reglulegu
millibili er svo farið í gegn um
prófið á sérstöku samanburðardekki
til að mæla hugsanleg frávik í prófun-
araðstæðunum sjálfum. Þessi frávik eru
svo reiknuð inn í sjálft prófið til leiðrétt-
ingar á hugsanlegum skekkjum. Öll eru
dekkin prófuð undir einum og sama
bílnum af öllum reynsluökumönnun-
um sem að prófunaarverkefninu koma.
Í bílnum er RaceLogic
Vboks III GPS tæki sem mælir
hemlunarvegalengdir, hröðun, hraða,
hemlun, brautartíma o.s.frv. Þau próf
sem gefið er fyrir eftir tilfinningu
ökumannanna eru framkvæmd sem
blindpróf þriggja ökumanna. Þeir vita
aldrei hvaða dekk eru undir bílnum
hverju sinni þegar þeir gefa einkunnir
sínar. Þessar einkunnir eru frá 4 (lélegt)
upp í 10 (ágætt). Úr FÍB-BlaðinU
SvonA er prófið frAMkvæMt
Slitin og ónegld vetrardekk bremsa betur á ís en slitin nagladekk:
nAgLADekkin enDASt iLLA
Könnun sem birtist í norska blaðinu Motor, á vegum norsks systurfélags FÍB.
sína eigin þarfagreiningu út frá þeim
aðstæðum sem hann ekur í dagsdag-
lega og átti sig á því hvaða eiginleik-
ar dekkjanna er honum nauðsynleg-
astir. Eins og lesa má út úr töflunum
í þessari könnun er það algengt að
þau dekk sem best eru í snjó og á
ís séu síðri á auðu og ekki síst votu
malbiki. Margir dekkjaframleiðend-
ur leitast mjög við að fá fram góða
og jafna eiginleika við flestar eða all-
ar vetraraðstæður á okkar norðlægu
slóðum. Kannski henta slík dekk best
á suðvesturhorninu þar sem bleyta
og regn og vott malbik eru ríkjandi
akstursaðstæður langtímum saman,“
segir í FÍB-blaðinu um dekkjakönn-
unina.
Ónegldu dekkin
Þegar röðin kemur að ónegldum
dekkjum kemur Goodyear ultra grip
ice+ best út. Það fær 7,4 í heildarein-
kunn. Dekkið sigrar vegna þess að að
eiginleikar þess eru jafn góðir í öllu,
segir í niðurstöðunum. Það kemur
best allra dekkja (líka nagladekkja)
út þegar ekið er í krapi og er á meðal
þeirra bestu á votu og þurru malbiki.
Dekkið er enn fremur hljóðlátt.
Önnur góð ónegld dekk koma
frá Nokian og Continental; fram-
leiðenda sem skora líka best í flokki
negldra dekkja.
nagladekk gegn banaslysum
Vert er þó að minna á að niðurstöð-
ur umferðaröryggistofnunarinnar
Trafikverket á öryggi nagladekkja og
ónegldra dekkja leiða í ljós að öku-
menn eru 42 prósent ólíklegri til að
lenda í banaslysi ef þeir eru á nagla-
dekkjum. Hins vegar gerir ESC-
skriðvörn í bílum ónegldu dekkin
nánast eins örugg og nagladekkin.
Þetta er þvert á niðurstöður rann-
sókna stofnunarinnar undanfarin ár.
Stefán Ásgrímsson hjá FÍB seg-
ir þó að rannsóknin leiði í ljós að
þeir bílar sem eru með áðurnefnda
ESC-skriðvörn séu nánast jafn vel
settir hvort sem þeir eru á negldum
eða ónegldum dekkjum. „Þetta kerfi
er komið í vel flesta nýja bíla í dag,“
segir Stefán en þess bera að geta að
innflutningur á nýjum bílum hef-
ur verið í algjöru lágmarki frá efna-
hagshruni. Þetta hafi þó verið komið
í marga nýja bíla áður en hagkerfið
fór á hliðina. ESC stendur fyrir Elect-
ronic Stability Control en er kallað
mismunandi nöfnum eftir framleið-
endum. Stefán segir rannsóknina
leiða í ljós að skriðvörnin slagi hátt í
að vera jafn mikilvægur öryggisbún-
aður og bílbeltin.
Í fyrsta skipti hafa prófanir verið gerðar á veggripi slitinna vetrardekkja.
Það er systurfélag FÍB í Noregi sem framkvæmdi könnunina. Óhætt
er að segja að niðurstöðurnar hafi komið á óvart. Ný negld vetrardekk
eru betri en þau ónegldu, bæði þegar kemur að hemlunarvegalengd
og veggripi þegar ekið er á ísilögðu yfirborði. Þegar kemur að akstri í
snjó er munurinn enginn og raunar skiptir tegund dekkjanna litlu máli.
Mynstur á nýju vetrardekki er um 9 millimetrar á dýpt. Þegar rákirnar
í dekkjunum eru orðnar 6 millimetrar er niðurstaðan sú að ónegldu
dekkin hafa styttri hemlunarvegalengd á ís en þau negldu. Munurinn
verður enn meiri þegar mynstrið er komið niður í 3 millimetra. Helm-
unarvegalengd nýrra nagladekkja á ís er að jafnaði 55 metrar, ef brems-
að er á 50 kílómetra hraða á klukkustund. Óneglt vetrardekk, með 3
millimetra mynstri, hefur hemlunarvegalengd upp á 90,7 metra á ís.
Nagladekk sem er jafnmikið slitið stöðvar hins vegar eftir 97,4 metra.
ÁreiðanleG prÓFUn Dekkin eru
prófið við ýmsar vetraraðstæður á
sérhönnuðu tilraunasvæði í Norður-
Finnlandi. Tuttugu og tvær tegundir
dekkja voru prófaðar að þessu sinni.