Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Síða 17
Borgarstjórinn í París ætlar að gera
út af við umferðarteppur með raf-
magnsbílum sem borgarbúar munu
deila með sér. Þeir sem komið hafa
til hinnar sögufrægu höfuðborgar
Frakklands eru sammála um að nán-
ast ómögulegt sé að aka um götur
borgarinnar. Borgin er til þess fallin
að ganga eða hjóla – og njóta um leið
hins gullfallega umhverfis sem borg-
in hefur upp á að bjóða. Fyrir venju-
lega Parísarbúa er eflaust annað uppi
á teningnum, þeir eru ekki ferða-
menn, fara ekki upp í Eiffel-turninn
og eru sífellt að flýta sér. Umferðar-
teppur eru daglegt brauð og ekki er
óalgengt að franskir ökumenn sem
búa í höfuðborginni eða umhverfis
hana eyði um 1–2 klukkustundum
í kyrrstöðu í bifreiðum sínum. Bert-
rand Delanoë, borgarstjóri Parísar,
ætlar nú að keyra í gang verkefnið
Autolib, en markmiðið er að minnka
bílaflota Parísar um það sem sam-
svarar 45 þúsund einkabifreiðum.
Reiðhjólaverkefni er
fyrirmyndin
Það var sumarið 2007 sem Delanoë
setti Vélib-verkefnið á laggirnar. Orð-
ið Vélib er samsett úr frönsku orðun-
um „vélo“ sem þýðir reiðhjól og „li-
berté“ sem þýðir frelsi. Í stuttu máli
gengur verkefnið út á það að á fjöl-
mörgum „stöðvum“ innan Parísar
geta vegfarendur tekið sér reiðhjól,
haldið af stað og skilað hjólinu á
þeirri stöð sem er hvað næst áfanga-
stað. Hvergi eru meira en 400 metr-
ar milli stöðva og gjaldið sem reiða
þarf fram er mjög vægt og hefur
verkefnið notið mikilla vinsælda.
Delanoë, sem er talinn líklegur sem
forsetaframbjóðandi sósíalista fyr-
ir forsetakosningar 2012, ætlar nú
að ganga skrefinu lengra og bjóða
íbúum upp á rafmagnsbíla á þar til
gerðum stöðvum. Geta Parísarbú-
ar því ekið af stað og skilað bílnum
á næstu stöð – hvar eru hlaðnir fyrir
næsta notanda.
Útgjöld eða sparnaður?
Gagnrýnendur verkefnisins hafa
látið að því liggja að það verði of
dýrt. Aðstoðarborgarstjóri Parísar,
Annick Lepetit, segir að það sé mik-
ill misskilningur: „í París kostar það
hvern bíleiganda um 7.000 evrur á
ári að reka bifreiðina, sem þýðir að
við munum spara um 315 milljón
evrur á ári. Þar fyrir utan sjáum við
fram á minni kostnað við viðhald á
vegum, minni mengun og færri um-
ferðarslys en öllum þessum atriðum
fylgir mikill kostnaður.“
Til að byrja með munu 3.000 raf-
magnsbifreiðar standa íbúum til
boða og mun áskriftin kosta 15 evr-
ur á mánuði. Búast borgaryfirvöld
við því að Parísarbúar taki framtak-
inu fagnandi.
MÁNUDAGUR 11. október 2010 ERLENT 17
Lögreglan í Ontario-fylki í Kanada
stendur frammi fyrir heldur óvenju-
legu verkefni. Í kjölfar þess að upp
komst um lottó-svindl, hvar vinn-
ingurinn nam 12,5 miljónum kan-
adískra dollara, leitar lögreglan nú
logandi ljósi að réttmætum hand-
hafa vinningsins sem dreginn var út
fyrir þremur árum. Lottó-svindl hef-
ur verið vaxandi vandamál í Ontar-
io-fylki og óttast kanadísk yfirvöld
að óprúttnir aðilar í öðrum fylkjum
fari að stunda slík uppátæki. Leit-
in að réttmæta milljónamæringnum
gengur hins vegar hægt, en þeir sem
telja sig hinn eina sanna sigurvegara
skipta auðvitað þúsundum og síminn
stoppar ekki enn hjá Ontario Lottery.
Hugvitssamt svindl
Lögreglan hefur þegar handtek-
ið búðareiganda nokkurn, konu
hans og sextugan föður búðar-
eigandans fyrir svindlið. Svindlið
gekk þannig fyrir sig að viðskipta-
vinur nokkur rétti búðareigand-
anum lottó-miða, til að sjá hvort
vinningur væri á honum. Vitandi
að svo væri tjáði búðareigandi við-
skiptavininum að engan vinning
væri að finna á þessum miða og
viðskiptavinurinn hvarf á braut.
Nokkrum vikum síðar fór búð-
areigandinn með miðann í aðra
verslun, þar sem lottó-vélin stað-
festi vinninginn. Nú hafa allar
eignir svindlaranna verið frystar,
en þeir hafa lifað í miklum vell-
ystingum undanfarin þrjú ár og
fest kaup á tveggja milljóna doll-
ara húsi, fjölda glæsibifreiða og
ógrynni af skartgripum.
Lögreglan í Ontario leitar milljónamærings sem hlaut vinning fyrir þremur árum:
Vinningshafi, en veit ekki af því
Kanadabúar Þurfa að hafa varann á þegar þeir taka þátt í lottó.
sóknir Sarrazins hafi ekki verið vand-
aðar og oftar en ekki sé um tóman upp-
spuna að ræða.
Vandamálið er eftir sem áður að
bók Sarrazins hefur verið vel tekið og
háværar gagnrýnisraddir eru byrjað-
ar að hljóðna. Angela Merkel, kansl-
ari Þýskalands, gagnrýndi bókina til
að mynda áður en hún kom út þegar
skoðanir Sarrazins tóku að birtast í við-
tölum. En á undanförnum vikum hef-
ur lítið frá henni heyrst, þó líklegt sé að
flokkur hennar, Kristilegir demókratar,
sé klofinn í skoðanaskiptum vegna
bókarinnar.
MAÐURINN SEM
KLAUF ÞÝSKALAND
Solomon Burke
kveður sviðið
Bandaríski tónlistarmaðurinn og
predikarinn Solomon Burke er lát-
inn, sjötugur að aldri. Burke hneig
niður á Schiphol-flugvellinum í
Amsterdam, en þangað var hann
kominn frá Los Angeles til að spila
á tónleikum. Burke er jafnan talinn
til fremstu sálarsöngvara poppsög-
unnar en hans verður ef til vill helst
minnst fyrir lagið Everybody Needs
Somebody (To Love) auk annarra
slagara. Sökum ofþyngdar hafði
Burke sungið sitjandi á tónleikum á
síðustu árum.
Neyðarstífla í
Ungverjalandi
Ungverskir verkamenn keppa nú við
tímann til að gera við stíflu í vestur-
hluta landsins. Gríðarlega alvarlegt
mengunarslys átti sér stað í súráls-
verksmiðju í síðustu viku í nágrenni
við bæinn Kolontar og er nú jarðveg-
ur í nágrenninu uppfullur af rauðri
eitraðri leðju. Hafa íbúar Kolontar
yfirgefið bæinn og óttast yfirvöld í
Ungverjalandi að meiri leðja kunni
að berast í Dóná og þaðan um allt
landið, sem hefði skelfilegar afleið-
ingar í för með sér.
Arftaki Kim
Jong-Il sýnir sig
Tilkomumikil afmælisveisla var
haldin Í Norður-Kóreu um helg-
ina er verkamannaflokkurinn þar í
landi varð 65 ára. Ekkert var til spar-
að þegar mikil hersýning fór fram í
Pjongjang, höfuðborg Norður-Kór-
eu. Á hersýningunni sáust sitjandi
saman feðgarnir Kim Jong-Il og Kim
Jong-Un, en látið er að því liggja að
Un muni senn taka við valdataum-
unum af föður sínum. Kim Jong-Il er
farinn að nálgast áttræðisaldurinn
og er talinn tæpur til heilsunnar.
Það eina gagnlega
sem múslimar gera
í Berlín er að selja
grænmeti og ávexti.
Borgaryfirvöld í París gætu spar-
að 315 milljónir evra
á ári með því að bjóða
borgarbúum rafmagns-
bíla til afnota.
Rafmagnsbílar verða áberandi í París á næstu árum. Borgar-
stjórinn, Bertrand Delanoë, hefur sett af stað verkefni þar sem
íbúum stendur til boða að fá bifreið að láni, sem síðan er skilað
á hleðslustöðvar sem verða staðsettar víðs vegar um borgina.
Umferðarhnútar
heyri sögunni til
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Vélib-verkefnið Hefur vakið mikla
lukku í París og er fyrirmynd nýja
verkefnisins, Autolib.