Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Qupperneq 19
Svissnesk vinkona mín benti mér á í mánudagsmót- mælunum síðast- liðnum að þetta væri í fyrsta sinn sem hún hefði séð álíka samkomu þar sem engin sla- gorð heyrðust og sárafá kröfuspjöld sáust. Enda var þetta ekki kröfu- ganga, þetta voru mótmæli. Það er ekki endilega hlut- verk almennings að finna lausnir á vandamálum ríkissjóðs. Það er hins vegar hlutverk almennings að láta óánægju sína í ljós sé honum misboð- ið. Og það var gert með áþreifanlegum hætti þetta mánudagskvöld. Mótmælin voru því nauðsynleg, þó að markmiðin hafi verið mismun- andi hjá þeim sem mættu og ekki alltaf skýr. Það er ráðamönnum hollt að vera minntir reglulega á í hverra umboði þeir starfa. Það að setja ráðamenn af með valdi í beinni byltingu getur aldrei verið nema algert neyðarúrræði. En það úrræði má aldrei alveg detta af borðinu heldur. Því eins og Thomas Jefferson sagði er þjóðfélag þar sem ráðamenn óttast almenning lýðræði, en þjóðfélag þar sem almenningur ótt- ast ráðamenn er harðstjórn. Úrbætur á leiðinni? Mótmælin voru þó ekki bara táknræn, heldur skiluðu þau meira að segja ein- hvers konar árangri með stofnun sér- stakrar nefndar ráðherra og stjórnar- andstöðuformanna til þess að ráða bót á vanda heimilanna. En er þá von á úr- bótum? Svo virðist ekki vera, því allt stoppar þar sem það stoppar vanalega, á Sjálf- stæðisflokknum. Ákvörðun sjálfstæð- ismanna um að taka ekki þátt í lausn húsnæðisvandans er í raun mjög skilj- anleg. Ef ríkisstjórninni tækist að ráða fram úr vandanum, jafnvel þó það væri með aðstoð stjórnarandstöðu, þá væri það henni til mikils álitsauka. Þetta geta sjálfstæðismenn ekki þolað, jafn- vel þó það myndi bjarga einhverjum fjölskyldum frá því að enda á götunni. Því taka þeir pólitíska flokkshagsmuni fram yfir þjóðarhag eina ferðina enn. Í þessu eru þeir fyllilega samkvæmir sjálfum sér. Bylting sjálfstæðismanna? Það er þó afskaplega hæpið að sjálf- stæðismenn vilji aðra búsáhaldabylt- ingu sér í hag. Það er ekki þeirra stíll að taka við krúnunni úr ræsinu. Ef Sjálf- stæðisflokkurinn kæmist til valda eft- ir stórfengleg fjöldamótmæli, eins og núverandi ríkisstjórn gerði, þá væri hann með áþreifanlegum hætti að þiggja umboð sitt frá fólkinu. Það gætu þeir ekki liðið. Sjálfstæðismenn eru höfðingjar, og höfðingjar stjórna í sínu eigin nafni. Fólki er frjálst að koma fram á fjögurra ára fresti og kjósa þá, en allir fá það samt á tilfinninguna að það skipti varla máli hvort þeir kjósa þá eður ei. Sjálfstæðismenn eru höfð- ingjastéttin, það er nánast náttúrulög- mál að þeir fái að ráða. Að öllu jöfnu kýs um þriðjungur þjóðarinnar Sjálfstæðisflokkinn, hefur farið lægst niður í 25 og hæst í vel yfir 40 prósent. Þetta er ekki jafn stór kosn- ing og ægivald hans yfir þjóðinni gef- ur til kynna. Á hinn bóginn er flokksagi þessa meinta einstaklingshyggjuflokks svo gríðarlegur að allir marséra í takt, á meðan einstaka þingmenn hinna flokkanna er líklegri til að segja sína skoðun þó það gangi gegn hagsmun- um flokksins. Þessi slagkraftur gerir það að verkum að Sjálfstæðisflokkur- inn getur oftast dómínerað samstarfs- flokk sinn og Alþingi allt. Því erum við nánast að tala um einræði minnihlut- ans. Lýðræði hinna fáu Málið vandast þó enn, því að það er ekki nema um tíundi hluti sjálfstæð- ismanna sem hefur hag af flokknum. Þetta eru hinir raunverulegu höfðingj- ar. Hinir eru það sem í fræðunum eru stundum kallaðir „nytsöm fífl“, fólk sem í þessu tilfelli vill tilheyra höfð- ingjastéttinni án þess að vera innli- mað í hana í raun. En það fær að vinna flokksstarf og það fær að kjósa Sjálf- stæðisflokkinn, sama hvað á dynur. Í staðinn fá þeir þakkir höfðingjanna sem senda þeim einu sinni á ári und- irrituð jólakort, án þess að gera neitt fyrir þá í raun. Þessi ægilega flokks- hollusta gerir það að verkum að Sjálf- stæðisflokkurinn getur neitað að taka þátt í að bjarga heimilum landsins, án þess að eiga á hættu að missa fylgi. Þannig stjórna um þrjú prósent þjóð- arinnar öllum hinum. Þessi flokksholl- usta ógnar ekki bara heimilunum nú um stundir. Í raun ógnar hún lýðræð- inu líka. ALmArr OrmArssOn, knatt- spyrnumaður og íslenskunemi í Háskóla Íslands, skoraði sigurmarkið gegn Skotum í landsleik U21 á dögunum. Hann segir það hafa verið æðislega tilfinningu að skora sigurmarkið og er mikill aðdáandi Ryans Giggs. „Við erum með sterk- ara lið en skotar“ 1 Solomon Burke látinn Bandaríski söngvarinn Solomon Burke lést úr hjartaáfalli á sunnudag. 2 Gjaldþrot er ekki heimSendir Lára Ómarsdóttir lét gjaldþrot árið 2002 ekki stöðva sig. 3 FjölSkylduhjálpin óSkar eFtir aðStoð Auglýst var eftir sjálfboðaliðum við að taka upp kartöflur. 4 öGmundur tók Valtý á teppið Ríkissaksóknari fór á fund Ögmund- ar vegna ummæla sem hann lét falla í DV. 5 þriGGja ára hetja á raFmaGnShjólaStól Ragnar Emil Hallgrímsson, sem þjáist af hrörnunarsjúkdómi, fékk nýlega rafmagnshjólastól sem hann stýrir sjálfur. 6 arFtakinn hylltur í norður-kóreu Kim Jong-Il kom fram opinberlega í sjónvarpi ásamt syni sínum og arftaka, Kim-Jong-Un, um helgina. 7 réðuSt að Gay pride-GönGu í SerBíu Hópur óeirðaseggja slóst við lögreglu í Belgrad í Serbíu vegna Gay Pride-göngu í borginni. mest lesið á dv.is myndin Hver er maðurinn? „Almarr Ormars- son, knattspyrnumaður og íslenskunemi í Háskóla Íslands.“ Hvað drífur þig áfram? „Metnaður og það að vilja standa mig.“ Hvar ertu uppalinn.? „ Á Akureyri.“ Hver eru þín helstu áhugamál? „Það er auðvitað fótbolti og íþróttir, en líka tónlist.“ Hvernig tilfinning var það að skora sigurmarkið gegn skotum? „Það var æðisleg tilfinning, engri lík.“ Hefur þú hitt hann svona vel áður? „Kannski ekki svona vel. Ég hef nú verið svo heppinn að hafa skorað nokkur ágætis mörk á ferlinum, en þetta var held ég það besta.“ Hvernig er tilfinningin fyrir seinni leiknum? „Hún er mjög góð, ég tel okkur eiga bullandi séns. Við erum með sterkara lið en Skotar, en þetta verður auðvitað erfiður leikur.“ Getur þú ímyndað þér hvernig það er að spila á Em? „Nei, eiginlega ekki, maður hefur aldrei þorað að láta sig dreyma um eitthvað svoleiðis. Enþað hlýtur að vera stórkostlegt að fá að spila fyrir framan enn fleiri áhorfendur og á svona stóru móti.“ Ertu sáttur eftir yfirstaðið tímabil hjá Fram? „Nei, ég hefði viljað fara hærra. Ég er svo sem sáttur við margt, en þetta hefði mátt fara betur.“ með hvaða liði heldur þú í enska boltanum? „Það er Manchester United.“ Fylgist þú með fleiri íþróttum en fótbolta? „Bara svona með öðru auganu við og við, ég er nú ekkert djúpt sokkinn í neinar aðrar íþróttir.“ Áttu þér fyrirmynd í lífinu? „Það eru þá helst fótboltamenn, ég er mikill aðdáandi Ryans Giggs.“ maður dagsins „Ég missti af henni. Við vorum í útilegu.“ stEinGrímur stEFnissOn 57 ÁRA VEItINGAMAðUR „Ég sá helminginn. Þetta lofar góðu.“ AndrEA HELGAdóttir 32 ÁRA HúSMÓðIR „Ég horfði ekki á hana og saknaði þess ekki.“ HAFdís inGA HArALdsdóttir 37 ÁRA KENNARI „Mér fannst hún góð. Öðruvísi en jafnvel betri.“ AntOn inGi ÞOrstEinssOn 35 ÁRA PRENtARI „Ég horfði ekki og reikna ekki með að eiga eftir að fylgjast með. Ég sætti mig ekki við að þurfa að borga þessa upphæð fyrir Stöð 2. Það væri miklu gáfulegra að lækka áskriftargjaldið um helming. Þá myndu allir kaupa.“ BALdur HELGAsOn 54 ÁRA PÍPARI hVerniG FannSt þér SpauGStoFan? dómstóll götunnar mánudagur 11. október 2010 umræða 19 Hvers vegna vilja sjálfstæðis- menn ekki vera með? Ákvörðun sjálf-stæðismanna um að taka ekki þátt í lausn húsnæðisvandans er í raun mjög skiljanleg. kjallari Valur gunnarsson rithöfundur skrifar Beðið eftir Yoko Fjölmiðlafólk hvaðanæva að beið þess með eftirvæntingu að Yoko Ono og föruneyti hennar létu sjá sig í Höfða á laugardag. Forseti lýðveldisins slóst þarna í hópinn og lét lítið fyrir sér fara. mYnd EGGErt jóHAnnEssOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.