Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Page 22
22 lífsstíll 11. október 2010 mánudagur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formað-ur Framsóknarflokksins, gekk að eiga unnustu sína, Önnu Sigurlaugu Pálsdótt-ur mannfræðing og fjárfesti, í fallegri at-
höfn í Dómkirkjunni á sunnudag en það var séra
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur sem púss-
aði parið saman. Hamingjan skein úr andlitum
brúðhjónanna og aðstandenda þeirra og dag-
urinn virtist fullkominn í hlýrri haustsólinni og
logninu í miðborginni en söngkonan Diddú var á
meðal þeirra listamanna sem sungu í athöfninni.
Sigmundi Davíð skaut upp á stjörnuhimin
stjórnmálanna í janúar í fyrra þegar hann var
kjörinn formaður Framsóknarflokksins eftir um
mánaðar stjórnmálaferil. Foreldrar hans eru
Gunnlaugur M. Sigmundsson, framkvæmda-
stjóri og fyrrverandi alþingismaður, og Sigríður
Guðbjörg Sigurbjörnsdóttir lífeindafræðingur.
Anna Sigurlaug er dóttir Páls Samúelssonar, fyrr-
verandi forstjóra Toyota, og Elínar Jóhannesdótt-
ur húsmóður.
Í viðtali við DV í janúar í fyrra rifjaði Sigmund-
ur upp fyrstu kynni þeirra Önnu Sigurlaugar en
þau hittust í boði fyrir rúmum átta árum. „Það er
í raun ekki mikið um það að segja, nema að við
hittumst í áramótaboði, smullum vel saman og
höfum verið saman síðan,“ sagði Sigmundur í
viðtalinu og bætti við hálfskömmustulega að það
stæði til bóta að vera ekki búinn að biðja hennar.
„Við förum ekki í fjölskylduboð án þess að frænk-
urnar bendi okkur á þá staðreynd að við séum
enn barnlaus. Við sjáum hvað framtíðin ber í
skauti sér,“ sagði hann einnig í viðtalinu. Spurður
um hlutverk sinn innan heimilisins sagðist hann
ekki ætla að ljúga neinu til um það. „Ég get engan
veginn bjargað mér út úr þessu. Ég er lítið heima
og hef því lítinn tíma til að sinna heimilinu eða
eldamennskunni. Það eru svona ákveðnir hlut-
ir sem ég sé um, eins og að hella upp á kaffi, en
þessum hlutum er ég stöðugt að vinna í að fjölga.“
indiana@dv.is
„Smullum vel saman“
sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, gekk að eiga unnustu sína til
átta ára, Önnu sigurlaugu Pálsdóttur, mann-
fræðing og fjárfesti, í fallegri athöfn í dómkirkjunni á
sunnudaginn. Brúðkaupsdagurinn var hinn yndisleg-
asti í fallegu haustveðri og ekki skyggði dagsetningin
á hátíðleikann. 10.10.10 var vinsæll brúðkaupsdagur
víða um heiminn.
Hrísgrjónum rigndi Athöfnin fór fram
í blíðskaparveðri í miðborg Reykjavíkur.
myndir sigtryggur ari
nýgift Sigmundur Davíð og Anna
Sigurlaug hafa verið saman í rúm átta ár.