Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Side 26
Magnús Bess og Maggi Mix hjá Audda og Sveppa: NafNar pósuðu samaN 26 fólkið 11. október 2010 mánudAgur Sóli fór á kostum n Eftirherman og rithöfundurinn Sólmundur Hólm fór á kostum í þrítugsafmæli Hjörvars Hafliða- sonar sem haldið var á skemmti- staðnum Players á laugardags- kvöldið. Sólmundur fékk það erfiða verkefni að vera síðastur á svið, rétt eftir að Herbert Guð- mundsson hafði rifið þakið af húsinu með sínum helstu slögur- um. Sólmundur aftur á móti gerði allt vitlaust með eftirhermum sínum en hann tók Herbert sjálf- an, söngvarann Shaggy, Gylfa Ægis og ritstjórann Jónas Kristj- ánsson. Einnig gerði hann óborg- anlegt grín að afar misheppnuð- um bröndurum prestsins Ólafs Jóhanns Ólafssonar úr þættinum Hringekjunni sem vakti gífurlega lukku. Dömusiðir Tobbu n Tobba Marinósdóttir, rithöf- undur og fyrrverandi blaðamað- ur á Séð og heyrt, sendir aðra bók sína í prentun um helgina. Bókin heitir Dömusiðir og geymir upp- lýsingar um allt milli himins og jarðar. Þar má meðal annars læra hvernig á að heilla karlmenn, elda sykurlausa eftirrétti, skipta um dekk og njóta sín í botn. Fysta bók Tobbu, Makalaus, seldist mjög vel en hún fjallar um unga, einhleypa konu og samskipti hennar við hitt kynið. Nú er Tobba komin á fast og það er spurning hvort fram- haldið af Makalaus muni fjalla um unga konu í föstu sambandi og allt sem því fylgir. „Þetta var bara fíflagangur í þætt- inum hjá Audda og Sveppa á sín- um tíma,“ segir vaxtarræktartröllið Magnús Bess Júlíusson um mynd af honum og nafna hans Mix. Þeir félagar hafi mætt saman sem gest- ir í þáttinn hjá strákunum þar sem þeir hafi pósað saman. „Þetta var bara fíflagangur eins og Sveppa og Audda einum er lagið. Ég var þarna á leiðinni á mót og var í mínu besta formi,“ segir Magnús sem þessa dagana æfir fyrir Norðurlandamót- ið í Finnlandi. „Svo er það stórmót hér heima í nóvember, Icelandic Expo, og svo fer ég á heimsmeist- aramótið í desember. Þar stefni ég á að komast í úrslit, það væri geð- veikt að ná þeim árangri,“ seg- ir Magnús en sambýliskona hans, Katrín Eva Auðunsdóttir, mun ekki keppa á næstunni þar sem parið á von á sínu fyrsta barni en Maggi á tvær dætur af fyrra sambandi. Ljóst er að barn þeirra mun eiga mikla möguleika í vaxtarrækt í framtíð- inni ef eitthvað er að marka gen- in. „Það verður allavega ungt þeg- ar það kemur í lyftingasalinn. Bara um leið og það fer að ganga,“ segir Magnús hlæjandi. Þegar Magnús er beðinn um ráð fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í vaxtarrækt segir hann agann mikilvægastan. „Aginn verður að vera til staðar, bæði varðandi æf- ingar og mataræði. Það þýðir ekk- ert að svindla,“ segir hann og bæt- ir við að sjálfur ætli hann að taka góða pásu yfir jólin. „Ég kem af heimsmeistaramótinu beint heim í steikina. Annars held ég alltaf mínu striki. Það er miklu meiri vinna að þurfa að ná sér aftur niður eft- ir mikið sukk,“ segir Magnús sem byrjaði að æfa 14 ára. indiana@dv.is Tveir MaGGar Magnús Bess segir myndatökuna hafa verið fíflagang í Audda og Sveppa. fögNuðu 70 ára afmæli Lennons Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, og sonur hennar Sean Ono Lennon tróðu upp í Háskólabíói á laugardagskvöld á tónleikum Plastic Ono Band. Bítillinn ringo Starr söng með mæðginunum auk þess sem borgarstjórinn í reykjavík tók lagið. Sjötíu ár eru síðan John Lennon fæddist. plastic oNo baNd: Sami afmælisdagur Sean Ono Lennon blæs hér á kerti á afmælistertunni en hann varð 35 ára um helgina. Tveir góðir Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, skröfuðu saman í Höfða þar sem Yoko Ono afhenti fjórum útvöldum friðarverðlaun. Myndir eGGerT JÓHanneSSon Lét ekki sitt eftir liggja Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, tók lagið með mæðginunum. Flottur hópur Það seldist upp á tónleikana á örfáum mínútum. Í stuði Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon og eiginkona hans, Birna Rún, ásamt vinkonu. Tónlistarfjölskylda Íslands Bó Halldórs og föruneyti létu sig að sjálfsögðu ekki vanta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.