Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2010, Page 29
MÁNUDAGUR 11. október 2010 SVIÐSLJÓS 29
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
DANSAR
Á MILLI ATRIÐA
Reese Witherspoon:
Leikkonan Reese Wither-spoon átti ekki erfitt með að skemmta sér við tökur á myndinni This Means
War í síðustu viku. Þegar tökur
lágu niðri á milli atriða skellti leik-
konan á sig heyrnartólum og dans-
aði eins og hún væri ein í heimin-
um. Reese var í miklu stuði og lét
fólkið í kringum sig ekki trufla sig.
Tökur á This Means War fara
fram í Vancouver en þar leikur hin
34 ára gamla Reese konu sem tveir
vinir berjast um. Vinina leika þeir
Tom Hardy og Chris Pine.
Reese Witherspoon
Skemmti sér vel á tökustað.
100.000
Á DAG EN ENGIN NEKT
Áttburamömmunni Nad-yu Suleman hefur enn á ný verið boðin vinna í klámbransanum. Í þetta
sinn er henni þó ekki boðið að leika
heldur að gerast aðstoðarkona
framleiðanda á tökustað. Það er
Steve Hirsch, stjórnarmaður klám-
myndaframleiðandans Vivid, sem
býður Nadyu starfið en hún hefur
verið mikið í fjölmiðlum undanfar-
ið vegna fjárhagserfiðleika. Enda er
hún einstæð móðir með 14 börn.
Launin sem Hirsch lofar Nadyu
er ekki af verri endanum, eða 1.000
dollarar á dag. Það gerir um 111.000
krónur. Í bréfi sem Hirsch sendi
Nadyu segir meðal annars: „Þú
þarft ekki að stunda kynlíf eða sýna
nekt af neinu tagi í þessu starfi.
Þetta gæti verið upphafið að nýj-
um ferli hjá þér þar sem þú myndir
læra allt um framleiðslu mynda af
þessu tagi. Þú myndir starfa náið
með framleiðslustjóra og tryggja
það að hæfileikafólkið og leikstjór-
inn fái allt sem þau þurfa fyrir og
eftir framleiðslu.“
Frá því að áttburamamman steig
fram í sviðsljósið hafa ýmsar fréttir
borist af henni. Því er meðal annars
haldið fram að hún liggi á miklum
peningum og þykist vera mun fátæk-
ari en hún í raun er. Þá hafa henni
verið boðnir peningar fyrir alls kon-
ar undarlega hluti. Einn maður vildi
til dæmis borga henni rúmar tvær
milljónir fyrir að fá að kitla hana.
Áttburamömmunni boðið að vinna við gerð klámmynda:
STEVE HIRSCH
Einn af stjórnendum
Vivid Entertainment.
NADYA SULEMAN
Henni eru boðin himinhá
laun fyrir að starfa á
tökustað klámmynda. Jessica Simpson átti ekki sjö dag-ana sæla þegar hún flaug alla leið til Persaflóa til þess að skemmta her-
mönnum um borð í flugmóðurskip-
inu USS Harry S. Truman.
Í þyrlunni á leiðinni á skipið drakk Jess-
ica þrjár dósir af orkudrykknum Red Bull
en hún kvartaði sáran yfir hita. Í ljós kom
svo að söngkonan hafði ofþornað í hitan-
um og sennilega hefur þetta magn af Red
Bull ekki hjálpað til. Hún fékk næringu í
æð og var ráðlagt að fara ekki upp á svið.
Jessica lét sér þó ekki segjast og tók
sviðið enda komin alla þessa leið. Jessica
náði aðeins að syngja eitt lag áður en hún
ældi og þurfti að hætta.
Söng og ældi
Jessica Simpson skemmti hermönnum:
JESSICA SIMPSON
Drakk of mikið af Red Bull.