Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Page 4
4 Fréttir 25. júní 2012 Mánudagur
Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn
!
Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu!
Opið alla daga frá 11:30–21:30
www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885
Læti í partý-
gestum og
gæsum
Rólegt var hjá Lögreglunni á höf
uðborgarsvæðinu um helgina.
Skömmu fyrir miðnætti á laugar
dag var tilkynnt um slasaða konu
í hlíðum Esjunnar. Björgunarsveit
fór á vettvang til aðstoðar. Konan
reyndist fótbrotin á hægri sköfl
ungi og var flutt með þyrlu á slysa
deild.
Þá voru fjórir ökumenn tekn
ir grunaðir um ölvun við akstur
og einn ökumaður grunaður um
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Einn ökumaður var stöðvaður
en hann reyndist próflaus og var
með fíkniefni meðferðis. Þó ekki
grunaður um að vera undir áhrif
um fíkniefna.
Lögreglan hafði einnig í nógu
að snúast að róa niður partýglaða
en margar tilkynningar voru um
hávaða og ölvun í heimahúsum
og þurfti lögregla að gera sér ferð
þangað og biðja fólk um að lækka.
Í austurbænum urðu svo þau
tíðindi að gæsir gerðu sig heima
komnar á hárgreiðslustofu á
laugardag. „Í austurbænum komu
gæsir með börn sín í klippingu en
fengu ekki umbeðna þjónustu þar
sem þær voru fiðraðar, starfsfólkið
og kúnnarnir ekki alveg sáttir við
ástandið og kallaði á lögregluna,“
segir í tilkynningu frá lögreglu.
Bið eftir leik-
skólaplássi
Útlit er fyrir að börn fædd árið
2011 fái ekki pláss á leikskólum
borgarinnar fyrr en í fyrsta lagi
á næsta ári vegna sparnaðar.
Þetta segir borgarfulltrúi Besta
flokksins, Eva Einarsdóttir.
Þetta kom fram í kvöldfréttum
Stöðvar 2.
Eins og fram kom í frétt
Stöðvar 2 er Reykjavíkurborg
þessa dagana að ljúka innritun
þeirra sautján hundruð barna
sem fædd eru árið 2010 og
hefja leikskólagöngu með
haustinu. Börnin hafa mörg
hver verið lengi á biðlista. Þrátt
fyrir að sum þeirra hafi verið
orðin 18 mánaða síðasta haust.
„Að svo stöddu lítur það
þannig út en við erum ennþá
að skoða það,“ sagði Eva
Einarsdóttir, borgarfulltrúi
Besta flokksins. Þá sagði hún
öruggt að börnin fái pláss á
næsta ári.
Á
vefsíðu Þóru Arnórsdóttur
koma fram upplýsingar
um heildarstyrki til fram
boðsins, en þeir nema nú
11,8 milljónum króna. Að
sögn annarra frambjóðenda eru
heildarstyrkir þeirra miklu lægri, en
ekki fengust upplýsingar um styrk
veitingar til Ólafs Ragnars Gríms
sonar þegar eftir þeim var leitað.
Enn hvílir því nokkur leynd yfir því
hverjir styrkja þá frambjóðendur
sem samkvæmt skoðanakönnun
um eru líklegastir til að sigra kosn
ingarnar komandi laugardag.
Vilja opið bókhald
Andrea J. Ólafsdóttir forsetafram
bjóðandi skoraði um helgina á aðra
forsetaframbjóðendur að opna bók
hald kosningasjóða sinna. Sjálf birtir
hún bókhald sitt þar sem fram kem
ur að tveir aðilar hafi styrkt hana
um samtals 26 þúsund krónur. Her
dís Þorgeirsdóttir hefur áður tek
ið í sama streng og birti um helgina
eigið bókhald á Facebook síðu sinni.
Þar kemur fram að ríflega hálf millj
ón hefur safnast henni til stuðnings.
Í yfirlýsingunni segir Andrea: „Á
lokaspretti kosningabaráttunnar aug
lýsir einn frambjóðandi mjög víða. Það
er eðlileg krafa kjós enda að vita hvað
an peningarnir koma sem greiða svo
dýrkeyptar auglýsingar til að styðja
þann frambjóðanda í embætti forseta.“
Hér á Andrea að öllum líkindum við
Þóru Arnórsdóttur sem hefur á síðustu
dögum sett aukinn kraft í auglýsinga
herferð sína.
Hefur safnað 11 milljónum
Á vefsíðu Þóru kemur fram að tæp
lega 12 milljónum hafi verið safn
að í kosningasjóð hennar fram til 19.
júní. Á vefsíðu Þóru kemur einnig
fram að 94 prósent framlaganna
komi frá einstaklingum sem lögum
samkvæmt mega ekki styrkja fram
boðið um meira en 400 þúsund hver.
Hin 6 prósentin koma frá rekstrar
aðilum.
„Ég geri ráð fyrir að þetta verði
rætt í kvöld [sunnudagskvöld]. Þá
mun Þóra lýsa afstöðu sinni til máls
ins,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson
ráðgjafi Þóru er hann var inntur eft
ir því hvort til stæði að verða við
áskorun Andreu og Herdísar um að
opna bókhaldið fyrir kjördag. Þó það
verði ekki gert verður bókhaldið sent
til ríkisendurskoðanda með öllum
kennitölum og upphæðum að kosn
ingunum loknum eins og lög kveða á
um.
Friðjón bætir síðan við: „Fimm
aðilar hafa styrkt framboðið um
meira en 200 þúsund krónur. Við
munum leitast eftir samþykki frá
þessum aðilum fyrir því að birta nöfn
þeirra áður en kosningabaráttan er á
enda.“
Gefur ekki upp fjárhagsstöðu
Í yfirlýsingu Andreu segir einnig:
„Eins hljóta kjósendur að eiga kröfu
á að vita hvaðan peningar til sitjandi
forseta koma. Aðrir frambjóðendur
hafa eflaust minna fjármagn á bakvið
sig, en eðlilegt að allir gefi það upp.“
Samkvæmt Ólafíu B. Rafnsdóttur
kosningastjóra Ólafs Ragnars Gríms
sonar hefur engin ákvörðun ver
ið tekin um að opna bókhald fram
boðsins fyrir kosningar. Hún segist
þó ekki ósammála Andreu um að
sanngjarnt sé að kjósendur viti hvað
an fjármagn frambjóðenda kem
ur. Sú fjárhæð sem safnast hefur til
stuðnings Ólafi er ekki opinber en
samkvæmt frétt á Vísi.is frá 11. mars
safnaði hann rúmlega 90 milljónum
fyrir kosningarnar árið 1996 ef kostn
aður er uppreiknaður á núvirði.
Ekki fengust svör úr herbúðum
Ólafs um fjárhagsstöðu framboðsins,
en blaðamanni var tjáð að heildar
upphæðin yrði líklega gefin upp í
vikunni.
„Hef ekki tekið við
einni einustu krónu“
Hannes Bjarnason sagði í samtali við
DV að hann hygðist opna bókhaldið
sitt eftir helgi. Hann fullyrðir þó að
hann hafi ekki tekið við einni einustu
krónu og framboð hans sé ekki drif
ið áfram af neinum fjármagnsöflum.
Ari Trausti segist ætla að feta hina
lögboðnu leið og opna bókhaldið eft
ir kosningarnar. Hann hafi ekki ráð
rúm til að safna saman nöfnum allra
þeirra sem styrkt hafi framboðið
hans og biðja hvern og einn um leyfi
fyrir því að nöfnin verði birt. Hins
vegar kom fram í samtali við Rúnar
Þór Guðbrandsson, sem heldur utan
um fjármál Ara Trausta, að í kosn
ingasjóð hans hafi safnast um það
bil 600 þúsund krónur og séu nær öll
framlögin frá einstaklingum.
„Það er
eðlileg
krafa kjósenda
að vita hvaðan
peningarnir koma
Leynistyrkir
tiL forsetaframbjóðenda
n Þóra hefur safnað 11 milljónum n Fjárhagsstaða Ólafs Ragnars á huldu
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Lög um
framlög
Samkvæmt lögum um fjármál fram-
bjóðenda sem sett voru árið 2006 má
styrkur einstaklinga nema að hámarki
400 þúsundum króna og tengdra aðila
500 þúsundum. Öll framlög umfram
200 þúsund krónur skulu gerð opinber
og gilda lögin bæði um þingkosningar og
forsetakosningar.
Lögin í Bandaríkjunum
Lög um kosningasjóði í Bandaríkjunum
eru talsvert frábrugðin þeim íslensku,
en þar má styrkur einstaklinga til
þing- og forsetaframbjóðenda nema að
hámarki 2.500 dollurum sem jafngilda
315 þúsund íslenskum krónum. Þá
skulu öll framlög umfram 200 dollara
gerð opinber, en 200 dollarar eru
25 þúsund íslenskar krónur. Hvorki
fyrirtæki né verkalýðssamtök mega
styrkja frambjóðendur vestanhafs, en
fjársterkum aðilum tekst þó ósjaldan að
komast fram hjá lögunum. Reglur um
upplýsingaskyldu þykja einnig loðnar og
hafa þingmenn demókrata reynt án ár-
angurs að breyta þeim, gegn atkvæðum
repúblikana. Lagt er blátt bann við því
að erlendir ríkisborgarar styrki framboð
í Bandaríkjunum, en slíkar reglur er ekki
að finna hér á landi.
Hannes
Bjarnason
Upphæð
0 kr.
Gefur upp
gjafara? Nei
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Nei
Ólafur Ragnar
Grímsson
Upphæð
Gefur ekki upp
Gefur upp
gjafara? Nei
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Nei
Ari Trausti
Guðmundsson
Upphæð
600 þúsund kr. (u.þ.b.)
Gefur upp gjafara?
Eftir kosningar
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Nei
Andrea J.
Ólafsdóttir
Upphæð
26 þúsund kr.
Gefur upp
gjafara? Já
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Nei
Þóra
Arnórsdóttir
Upphæð
11 milljónir kr. (u.þ.b.)
Gefur upp gjafara?
Eftir kosningar
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Já
Herdís Þor-
geirsdóttir
Upphæð
500 þúsund kr. (u.þ.b.)
Gefur upp
gjafara? Já
Þiggur frá fyrir-
tækjum? Já