Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Síða 6
6 Fréttir 25. júní 2012 Mánudagur
S
íðastliðinn fimmtudag sam
þykkti Þingvallanefnd að
hefja gjaldheimtu af köfur
um sem kafa í gjánni Silfru.
Þetta samþykkti nefndin í
samráði við þjónustuaðila á svæðinu
en íslenskir sportkafarar hafa lýst yfir
óánægju með ákvörðunina. Gjaldið
verður innheimt frá og með 1. júlí og
verður 750 krónur í fyrstu.
Var lofað að ekki yrði rukkað
Hauki Einarssyni, formanni Sport
kafarafélags Íslands, þykir gjaldið
ósanngjarnt. „Allir sportkafarar eru
mjög ósáttir,“ segir hann og bætir við:
„Okkur fyndist þá réttlátast að allir
sem koma inn í þjóðgarðinn þyrftu
að borga. Það á jafnt að ganga yfir
alla.“
Óánægjan er meðal annars
sprott in af því hve skammur fyrir vari
er gefinn auk þess sem tekið var sér
staklega fram á fundum Þing valla
nefndar í vetur að íslenskir sport
kafarar þyrftu ekki að borga gjald í
gjána. Þá stóð aðeins til að rukka kaf
ara á vegum köfunarfyrirtækjanna
sem bjóða upp á köfun í Silfru.
Ætla að mótmæla
Haukur segir jafnframt: „Við hjá
Sport kafarafélagi Íslands höfum
boð að til almenns félagsfundar þar
sem við ætlum að ræða þetta mál.
Við komum til með að senda út ein
hvers konar mótmælapóst til þeirra
aðila sem að þessu koma.“
Ólafur Örn Haraldsson, þjóð
garðsvörður á Þingvöllum og forseti
Ferðafélags Íslands, segir að gjaldið
sé vegna þjónustu sem veitt er við
Silfru og um það hafi ríkt nokkur
sátt. „Köfunin í Silfru er komin á það
stig að það þarf að veita þarna miklu
betri þjónustu. Það þarf að koma upp
bílaplani og salernum, bæta öryggis
mál og svo framvegis.“
Óheimilt að mismuna
Þegar Ólafur er spurður hvers vegna
Þingvallanefnd hafi ekki staðið við
orð sín um að sportkafarar sem kafa
í Silfru á eigin vegum þyrftu ekki að
borga segir hann: „Það var sannar
lega vilji nefndarinnar – minn og
allra – að þeir þyrftu ekki að borga.
Með þetta í huga finnst okkur að
Þingvellir séu staður almennings og
best væri að menn gætu verið þar
sem frjálsastir. Það kom hinsvegar
í ljós, illu heilli, þegar lögfræðingar
lögðust yfir þetta mál að það er al
gjörlega óheimilt að mismuna
mönnum eftir því hvort þeir eru á
vegum köfunarþjónustu eða í sport
köfun á eigin vegum.“
„Af heilum hug hefðum við vilj
að standa við það sem áður var sagt.
En við bara megum það ekki,“ seg
ir Ólafur. Hann segir ennfremur að
gjaldið sé haft í algjöru lágmarki.
„Ég skil alveg að þeir séu leiðir yfir
þessu, sportkafararnir. Við erum það
líka.“ Ólafur segir að nefndin hafi
boðað sportkafara til fundar í vik
unni þar sem farið verður betur yfir
þessi mál.
„Allir sportkafarar
eru mjög ósáttir“
n Þingvallanefnd leggur gjald á köfun í Silfru n Formaðurinn skilur ósættið
Ósáttur Hauki Einarssyni,
formanni Sportkafara
félags Íslands, finnst gjaldið
ósanngjarnt.
„Okkur fyndist
þá réttlátast
að allir sem koma
inn í þjóðgarðinn
þyrftu að borga
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Gjaldið í lágmarki Ólafur Örn skilur
óánægju sportkafara.
HÍ í leiðandi
hlutverki
Metfjöldi útskrifaðist frá Há
skóla Íslands á laugardag, eða
um 1.900 kandídatar. Kristín Ing
ólfsdóttir kynnti í ræðu sinni nýtt
meistaranám í endurnýjanlegri
orkuvinnslu og nýtingu. Námið
er byggt upp í samráði við orku
fyrirtækin í landinu og er hluti af
áherslu háskólans á nánara sam
starf við atvinnulífið og mark
vissari sókn til verðmætasköpun
ar. Rektor greindi frá því við þetta
tækifæri að Háskóli Íslands verði
í leiðandi hlutverki í gríðarstóru
samstarfsverkefni evrópskra há
skóla á sviði orkurannsókna, sem
verið er að hleypa af stokkun
um. „Á næstu fjórum áratugum, á
starfsævi þeirra sem nú útskrif
ast, mun jarðarbúum fjölga um
2 milljarða. Það hlýtur að vera
sameiginlegt viðfangsefni að leysa
vandamál sem slík fjölgun leiðir
af sér á sama tíma og gengið er á
auðlindir,“ sagði Kristín.
Búslóð ruplað
Búslóð ungrar konu sem er
á leið út í nám hvarf í heild
sinni úr bílskúr föður henn
ar í iðnaðarhverfi í Mosfellsbæ.
Í samtali við DV segist kon
an telja að þjófarnir hafi fylgst
með þegar hún flutti húsgögn
in inn í bílskúrinn fyrir um viku
síðan. Á meðal þess sem hvarf
var þvottavél, ísskápur, rúm og
mublur en konan telur verð
mæti húsgagnanna vera hátt í
milljón krónur. „Fyrst varð ég
brjáluð,“ segir konan í sam
tali við DV en bætir við að hún
hafi róast síðan þá. „Hvað getur
maður gert?“ Lögreglan kom á
vettvang þjófnaðarins í gær og
er málið til rannsóknar.
Aðspurð um það hvort þessi
leiðinlegi atburður hafi sett
strik í reikninginn þegar kemur
að námsferðinni segir hún það
ekki vera. „Nei alls ekki, þetta
er það dýrt og flott nám, ég skil
bara vandræðin eftir heima hjá
mömmu og pabba, þau verða
bara að klára þetta.“ Ekki náð
ist í varðstjóra lögreglunnar á
Krókhálsi þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
Konu og börn-
um bjargað
Á laugardag var Björgunarsveitin
Dagrenning á Hvolsvelli kölluð
út þegar tilkynning barst um að
kona og tvö börn sætu föst í bíl í
Gilsá, sem er norðan Markarfljóts
til móts við Húsadal í Þórsmörk.
Konan hugðist aka bílnum yfir
vað í ánni en var ekki komin alla
leið yfir þegar bíllinn stöðvaðist.
Hópur björgunarsveitafólks úr
Flugbjörgunarsveitinni í Reykja
vík, sem staddur var í Básum, var
einnig kallaður til.
Konan beið með börnunum í
bílnum eftir aðstoð, þrátt fyrir að
töluvert flæddi inn í hann. Björg
unarsveitin var komin á staðinn
og búin að ná fólkinu í land um
45 mínútum eftir að útkall barst.
Voru allir heilir á húfi. Slysavarna
félagið Landsbjörg minnir ferða
fólk á að fara varlega þegar ár eru
þveraðar. Þær eru oft vatnsmeiri
seinni part dags og á kvöldin, ekki
síst þegar veður er gott og sól skín.
Framtíðin björt eins og sumarnótt
n Karl Sigurbjörnsson myrkur í máli og viðhafði varnaðarráð n Agnes bjartsýn
A
gnes M. Sigurðardóttir var í
gær, sunnudag, vígð til biskups
Íslands í Hallgrímskirkju. Agn
es er fyrsta konan sem gegn
ir embættinu. Karl Sigurbjörnsson,
sem hefur verið biskup frá árinu 1998,
vígði Agnesi. Við vígsluna gaf hann
Agnesi ráð og mörg þeirra sneru að
gagnrýninni umræðu um störf bisk
ups. Sagði hann biskupinn verða fyr
ir deyðandi gagnrýni, einkum ef hann
vogaði sér að andæva ráðandi öfl
um og áhrifastraumum. „Kastljósin
munu beinast að þér meir en þú hef
ur áður þekkt, orð þín og atferli veg
in og metin,“ sagði hann en Karl hefur
áður sagt ærumeiðingar og mann
orðsmorð vera daglegt brauð í orð
ræðu á Íslandi og telur slíkt alvarlegt
samfélagsmein. Í embættistíð Karls
varð hann fyrir mikilli gagnrýni vegna
viðbragða kirkjunnar við frásögn
um kvenna af kynferðisbrotum Ólafs
heitins Skúlasonar.
Agnes var bjartari í tali og sagði
framtíðina jafn bjarta og sumar
nóttina. „Framtíð okkar er því björt
eins og sumarnóttin og jafnvel þó
við villumst af leið um stund verður
að okkur leitað þar til við finnumst.
Hið sama á við í lífi okkar. Ef við leit
um þá finnum við því frelsari okk
ar gengur með okkur veginn og
sendir okkur vini til hjálpar,“ sagði
Agnes í ræðu sinni. Í samtali við
blaðamann sagðist hún hafa tek
ið varnaðarráðum Karls vel. „Þetta
er það sem hann hefur lært og vildi
miðla áfram. Talandi um gagn
rýni þá finnst mér að maður eigi að
taka henni málefnalega og aldrei
persónulega.“
Meðal þeirra sem sáu um ritn
ingarlestur í athöfninni voru Sofie
Petersen, Grænlandsbiskup. Fjöldi
erlendra biskupa var meðal vígslu
votta, þar á meðal Michael Jackson,
erkibiskupinn í Dublin, og Jógvan
Fríðriksson, Færeyjabiskup.
kristjana@dv.is
Fyrsti kvenbiskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir var vígð til biskups. Mynd preSSphotoS.biz