Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Page 8
8 Fréttir H ann á konu og ungt barn og reynir að vera fjölskyldunni góður og er það stundum en ég held hann kunni ekki á lífið,“ segir einn þeirra heimildarmanna sem varð fyrir svör- um um líf Barkar Birgissonar. Enginn heimildarmanna kem- ur fram undir nafni og bera við ótta um eigið öryggi. „Honum leið alls ekki vel í skóla. Ég held hann hafi átt erfitt með nám. Og hann var til dæm- is oft niðurlægður og lagður í einelti. Kannski var það þess vegna sem það gerðist að þegar hann fór að drekka braust út þessi þvílíka reiði. Hann fór að venja komur sínar á veitingastað í Hafnarfirði sem unglingur og þegar hann var í glasi varð hann oft ofbeld- ishneigður,“ segir sá sami sem þekkir Börk frá æskuslóðum hans í Hafnar- firði. Afbrotaferillinn hófst snemma Börkur, sem er fæddur 1979, á langan sakaferil að baki sem má rekja allt til ársins 1996, en þá var hann aðeins 17 ára gamall og réðst grímuklædd- ur á afgreiðslukonu í sjoppu og lamdi hana í höfuðið með hamri. Hún hlaut alvarlega áverka á höfði, höfuðkúpu- brotnaði meðal annars. Fyrir tilviljun kom maður inn í söluturninn með- an á árásinni stóð og veitti Berki eft- irför þar sem hann flúði af vettvangi og hann náðist í kjölfarið. Konan sagði í viðtali við DV á sínum tíma að ef maðurinn hefði ekki komið inn í söluturninn þá hefði hann líklega drepið hana. Tilraun til manndráps Ofbeldisverk Barkar urðu sífellt gróf- ari. Árið 2005 var hann dæmdur til 7 og hálfs árs fangelsisvistar fyrir til- raun til manndráps á veitingastaðn- um A. Hansen í Hafnarfirði. Hann réðist að manni vopnaður öxi og hjó hann í höfuðið. Hann hafði að auki rifbeinsbrotið tengdaföður sinn og ráðist á fjóra aðra karlmenn. Þá var hann einnig dæmdur fyrir ólöglegan vopnaburð og umferðarlagabrot. Að mati Héraðsdóms Reykjaness átti Börkur sér engar málsbætur og var árás hans með öxinni sérstaklega ófyrirleitin þar sem tilviljun ein réð því að fórnarlambið komst lífs af. Þá segir að önnur brot hafi verið fólsku- leg, yfirleitt án aðdraganda og beinst að höfði eða andliti þeirra sem fyr- ir þeim urðu. Áður hafði Börkur þrí- vegis verið dæmdur í fangelsi fyr- ir ofbeldisbrot. Meðan á afplánun stóð gerðist hann sekur um alvarleg agabrot og var vistaður í einangrun vegna þeirra. DV greindi frá því árið 2008 að Börkur hefði bæði ráðist á fangaverði og samfanga sína. Nefbraut samfanga Börkur var dæmdur 2007 fyrir að hafa árið áður slegið samfanga sinn á Litla-Hrauni með hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að hann nef- brotnaði. Atvikið átti sér stað á fót- boltavelli við fangelsið í útivistartíma fanga. Hann hlaut einnig dóm fyrir að hafa fíkniefni undir höndum inn- an fangelsisins. Fíkniefnin sem voru gerð upptæk voru 5,5 grömm af hassi sem fundust í klefa hans. Samkvæmt heimildum DV urðu Annþór og Börkur vinir þegar þeir sátu inni á Litla Hrauni. Eftir að hafa hlotið reynslulausn eiga þeir í sameiningu að hafa verið umsvifa- miklir í undirheimum Reykjavíkur. Þeir eru meðstjórnendur í fyrirtæk- inu Mebbakk sem var stofnað í apr- íl í fyrra en Mebbakk rekur meðal annars sólbaðsstofuna Bahamas á Grensásvegi. Annþór sagður stjórna Berki Heimildarmaður DV, kunnur rekstri sólbaðsstofunnar, segir Annþór stýra Berki. Annþór standi á hliðarlínunni þegar Börkur láti til skarar skríða. Hann sé klárari en Börkur og sé stjórnsamur. „Það eru margir hrædd- ir við Börk en það eru líka margir hræddir við Annþór því hann virð- ist stjórna öllu sem hann vill. Líka meðan hann sat inni, bæði föngum og fangaverði. Annþór og Börkur eru hættulegt teymi og enginn óskar sér þess að eiga þá fyrir óvini.“ Sami heimildarmaður segist ekki vilja koma fram undir nafni vegna þess að honum er annt um líf sitt. „Ég vil lifa lengur, þannig er það nú. Ég vil taka það fram að þeir eru fínir strákar þegar þeir eru ekki í neyslu. Í neysl- unni verða þeir stórhættulegir og ég held að hún hafi tekið völdin. Undir restina fór allt í bull.“ „Hann svífst einskis“ Einstaklingur sem þekkir til Barkar segir í samtali við DV að Börkur hafi stundað handrukkun og sé þekktur fyrir að búa til skuldir á fólk, jafnvel á þá sem séu minni máttar. Hann svíf- ist einskis. Sem dæmi um þetta snýr ein af ákærunum á hendur Berki og öðrum þekktum ofbeldismanni, Annþóri Kristjáni Karlssyni, meðal annars að fjárkúgun en í ákæru segir að Börk- ur og Annþór í félagi við aðra menn hafi ráðist með ofbeldi á þrjá einstak- linga, haldið þeim nauðugum og krafist þess að einn mannanna borg- aði þeim hálfa milljón króna daginn eftir en annar var krafinn um að greiða þeim 200 þúsund á mánuði um ótiltekinn tíma. Var mönnun- um hótað frekara ofbeldi ef þeir yrðu ekki við kröfum þeirra. Segir einnig í ákærunni að þremenningarnir, sem urðu fyrir árásinni, hafi ekki átt þess kost að komast út úr íbúðinni vegna hótana, ógnana, nauðungar og ofbeldis. Voru þeir þarna inni í allt að klukkutíma en árásarmennirn- ir yfirgáfu ekki staðinn fyrir en fórn- arlömbin samþykktu að verða við kröfum þeirra um greiðslu fjárins. Margar ákærur Börkur situr nú í einangrun á Litla Hrauni ásamt Annþóri vegna gruns um að þeir hafi orðið samfanga sín- um að bana í maí síðastliðnum. Þessa nýja kæra bætist því í safn mála sem Börkur á yfir höfði sér en hann er ásamt Annþóri meðal annars ákærður fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir, ólögmæta nauðung, frelsissviptingu og tilraunir til fjár- kúgunar. Hrækti á dómara Annþór og Börkur voru handtekn- ir eftir umfangsmikla rassíu lög- reglunnar í undirheimum Reykja- víkur og úrskurðaði héraðsdómur að þeir skyldu afplána eftirstöðvar dóma sem þeir hlutu fyrir nokkrum árum. Við það tækifæri hrækti Börk- ur að dómara og hótaði honum. Börkur hefur enn ekki verið ákærður fyrir athæfið en að hrækja á dómara í starfi flokkast undir brot gegn vald- stjórninni og geta viðurlög við slíku broti varðað allt að sex ára fangels- isvist. Berki er gefið að sök að hafa tvisvar við dómsuppkvaðningu þann 27. apríl síðastliðinn hafa hóstað út úr sér orðunum tussa. Börkur játaði að hafa sagt orðið tussa tvisvar en ekki að hafa beint þeim gegn dóm- aranum heldur hafi þau beinst gegn annarri manneskju í salnum. Ósáttur við dóminn Berki var einnig gefið að sök að hafa hrækt á Söndru Baldvinsdóttur, dómara og viðurkenndi hann það. Hann sagðist hafa gert það vegna þess að með dómi sínum væri dóm- arinn að koma í veg fyrir það að hann kæmist heim til konu sinnar og barns. „Ég var að lýsa vanþóknun minni á þessa ákvörðun dómarans. Í stað þess að fara heim til konunnar minnar og barns klukkan fjögur þá myndi ég fara heim eftir tvö og hálft ár. Eftir að hafa setið saklaus inni í mánuð,“ sagði hann. Hnerraði aftur tussa Sandra sagðist svo hafa verið hálfn- uð með að lesa upp dómsupp- skurðinn þegar Börkur hefði tekið upp á því að hnerra eða hósta orðin tussa í tvígang. Þegar hún hafði svo slitið þinghaldi og var að ganga í átt að dyrum dómaraherbergisins þá hefði hún skynjað að eitthvað væri í uppsiglingu. Ritari við Héraðsdóm Reykjaness, sem bar einnig vitni, sagðist hafa heyrt hann gefa frá sér hljóð sem gaf til kynna að hann væri að fara hrækja og hún hefði beygt sig niður til þess að forðast að fá hrák- ann framan í sig. Sandra sagði svo að Börkur hefði hrækt á sig og hrák- inn lent á hægra handarbaki henn- ar og neðarlega á dómaraskikkjunni. Hráki lenti einnig á andliti verjanda Barkar. Börkur sagðist ekki hafa haft uppi ógnandi tilburði í garð dómarans. „Nei, ég var ekki að ógna henni eða neitt slíkt enda hafði ég ekki í hyggju að gera henni neitt. Ef mig hefði langað þá hefði ég hlaupið til hennar og knúsað hana.“ n var Lagður í eineLti í æsku n Börkur Birgisson sagður svífast einskis n Annþór sagður stýra Berki til illra verka Álit sálfræðings: „Kannski hefur hann engu að tapa“ „Þetta lýsir gríðarlegum dómgreindarbresti og hann er að vanvirða réttinn,“ segir sál- fræðingur aðspurður um hegðun Barkar í réttinum. Hann tekur fram að hann þekki ekki feril Barkar Birgissonar persónulega en metur þetta einungis út frá þeirri lýsingu sem hann fékk af hegðun Barkar í þessum tveimur fyrrgreindum réttarhöldum. „Kannski hefur hann engu að tapa. Kannski hefur hann gengið svo langt að hann hefur bara engu að tapa og hegðar sér þess vegna svona. Af þessum lýsingum að dæma þá er þetta lítilsvirðing við réttinn og ef hann er margdæmdur þá ætti hann að þekkja reglur réttarins og vita hvernig á að haga sér þar,“ segir sálfræðingurinn. „Hann lítilsvirðir vitnin með því að vera með einhver hljóð meðan á vitnisburði þeirra stendur þegar algjör þögn á að ríkja.“ Hann tekur þó fram að hann hafi ekki kynnt sér málið í þaula. „Þetta er ekkert annað en túlkun en miðað við lýsingar þá hagaði hann sér á óvirðulegan hátt.“ „Hann reynir að vera góður fjöl- skyldunni og er það stundum en ég held hann kunni ekki á lífið. Ósáttur við dóminn Börkur segist hafa hrækt á dómarann því hann hafi verið ósáttur við það að fá ekki fara heim til konu og barns. 25. júní 2012 Mánudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.