Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Page 11
Fréttir 11Mánudagur 25. júní 2012
Sparisjóður Mýrarsýslu:
„Engin saknæm háttsemi“
E
ngin saknæm háttsemi virð-
ist hafa átt sér í stað í rekstri
Sparisjóðs Mýrarsýslu í Borg-
arnesi í aðdraganda falls
hans eftir fjármálahrunið
um haustið 2008. Sparisjóðurinn var
yfirtekinn af Arion banka árið 2009
eftir að gengið hafði verið frá sölu
eigna hans inn í sjóðinn það árið.
Heimildarmaður DV um sjóðinn
segir að þó setja megi spurninga-
merki við ýmislegt í rekstri hans,
meðal annars fjárfestingu hans í Ex-
ista, þá sé ekkert sem bendi til að
stjórnendur hans hafi gerst brot-
legir við lög. „Engin saknæm hátt-
semi virðist hafa átt sér stað í rekstri
sjóðsins. Ég tel að ein af ástæðun-
um fyrir þessu sé sú að stjórnend-
ur sparisjóðsins voru ekki að reyna
að bjarga sjálfum sér og eigin fjár-
festingum í sjóðnum með því að
leyna raunverulegi stöðu hans,“ seg-
ir heimildarmaður DV.
Ekkert um óeðlilegar lán-
veitingar til stjórnenda
Heimildarmaðurinn segir að stjórn-
endur sjóðsins hafi ekki látið hann
lána sér eða tengdum aðilum fjár-
muni til einkaneyslu eða stofnfjár-
kaupa í sjóðnum, líkt og til dæm-
is gerðist í Sparisjóðnum í Keflavík.
Ítarlega hefur verið fjallað um mál-
efni Sparisjóðsins í Keflavík á liðn-
um vikum í ljósi svartrar skýrslu
sem endurskoðunarfyrirtækið PWC
vann um sjóðinn – RÚV hefur birt
fréttir um skýrsluna – og tap skatt-
greiðenda vegna hans. DV hefur
heyrt af því að Sparisjóður Mýrar-
sýslu hafi stundum verið nefnd-
ur í sömu andrá og Sparisjóðurinn
í Keflavík þegar rætt er um illa rek-
in fjármálafyrirtæki. Í haust er von
á skýrslu um starfsemi íslenskra
sparisjóða sem unnin var fyrir til-
stuðlan Alþingis og verður fjallað
um báða þessa sparisjóði þar.
Þokkalegar endurheimtur
Viðmælandi DV vill hins vegar
meina að ekki sé hægt að bera þessa
tvo sjóði saman þar sem engar sann-
anir hafa fundist fyrir lögbrotum í
Sparisjóði Mýrarsýslu en að upp-
lýsingar um starfsemi Sparisjóðs
Keflavíkur bendi til að lögbrot hafi
verið framin í þeim sjóði. Þá seg-
ir hann að staða Sparisjóðs Mýrar-
sýslu hafi ekki verið verri en það að
kröfuhafar sjóðsins hafi fengið 67
prósent upp í kröfur sínar í kjölfar
nauðasamninga sparisjóðsins. Þetta
þýðir að kröfuhafarnir fengu 67
krónur til baka af hverjum 100 sem
sparisjóðurinn fékk að láni.
Exista var gullkálfurinn
Sú ákvörðun sem heimildarmaður
DV bendir sérstaklega á sem slæma
í rekstrarsögu Sparisjóðs Mýrarsýslu
er sú ákvörðun að fjárfesta í Ex-
istu, eignarhaldsfélagi Bakkavarar-
bræðra. Hlutabréf Sparisjóðs
Mýrarsýslu í Existu voru inni í Fjár-
festingarfélagi Kistu. Kista var fjár-
festingarfélag í eigu Sparisjóðsins í
Keflavík, SPRON, Sparisjóðs Svarf-
dæla og Sparisjóðsins í Mýrasýslu.
Hlutabréfaeign Kistu í Existu nam
rúmlega 20 milljörðum króna í árs-
lok 2007. Kista skuldar tæplega 13,4
milljarða króna en á einungis eign-
ir upp á um 1,3 milljarða króna. Fé-
lagið hefur tapað rúmlega 12 millj-
örðum króna frá bankahruninu árið
2008.
Viðmælandi DV segir að á góð-
ærisárunum hafi sparisjóðirnir
malað gull á Existu en að svo hafi
þetta breyst í aðdraganda hruns-
ins þegar byrjaði að halla und-
an fæti í íslensku efnahagslífinu.
Þá hafi sjóðirnir byrjað að tapa
gríðarlegum fjárhæðum á Existu
sem var stærsti hluthafi Kaup-
þings.
„Ég tel að ein af
ástæðunum fyrir
þessu sé sú að stjórnendur
sparisjóðsins voru ekki að
reyna að bjarga sjálfum sér“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Fjárfestingin í Existu slæm n Kröfuhafar fengu 67 prósent endurheimtur
Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.iswww.honda.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbær, Bernhard, sími 421 7800 • Akranes, Bílver, sími 431 1985 • Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjar, Bragginn, sími 481 1535
B
irt m
eð
fyrirvara um
p
rentvillur o
g
m
ynd
ab
reng
l.
Komdu og skoðaðu úrvalið af Honda mótorhjólum.
Erum í sumarskapi, allt að 75% fjármögnun.
CB1000R
Tilboð kr. 1.690.000
VT750C Shadow
Tilboð kr. 1.490.000
CBR1000RR
Tilboð kr. 2.390.000
VT1300CX
Tilboð kr. 2.650.000
PCX
Tilboð kr. 569.000
VT750C Black Spirit
Tilboð kr. 1.690.000CROSSTOURER
VFR1200X
Sumartilboð á völdum hjólum
Sparisjóðstjórinn Gísli Kjartansson var sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Mýrarsýslu. Heimildir
DV herma að ekkert bendi til að lögbrot hafi verið framin í rekstri sjóðsins þó ýmislegt hafi
verið athugavert við rekstur hans.