Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Síða 13
100 ára fer allar
sínar ferðir á bíl
Fréttir 13Mánudagur 25. júní 2012
n Jón Hannesson lætur ekki aldurinn stöðva sig n Renndi austur fyrir fjall á dögunum
É
g keyri allt það sem ég þarf
að fara,“ segir Jón Hannes-
son sem fer allar sínar ferðir
á tólf ára gamalli Toyotu bif-
reið þrátt fyrir að vera orðinn
hundrað ára gamall. „Þetta er ekta
góður bíll,“ segir Jón sem býr í Kópa-
vogi en hann fagnaði hundrað ára
afmæli sínu þann 20. júní síðast-
liðinn.
Jón gerði sér lítið fyrir nýverið og
keyrði austur að Skógum undir Eyja-
fjöllum, sem er um 150 kílómetra
frá heimili hans í Kópavogi, þar sem
hann leit við á Byggðasafninu. Jón er
góður kunningi Þórðar Tómasson-
ar, safnvarðar Byggðasafnsins að
Skógum, en Jón segir margt forvitni-
legt þar að sjá en þar má til að
mynda finna góða fulltrúa fyrir
húsagerð fyrr á öldum. „Það er
mikið og margt að sjá.“
Aldurinn segir til sín
Jón segir lítið mál fyrir sig að
keyra slíka vegalengd. „Vegirnir
eru góðir og það er ekkert mál.
Aldurinn segir til sín, það er ekki
það. En ég er við góða heilsu og
allt hvað eina. Það stendur og
fellur með heilsunni,“ segir Jón
sem hefur ekki neinar áætlan-
ir um frekari ferðalög í sumar.
„Ég fer hingað og þangað ef ég
þarf að fara,“ segir hann sem
starfaði við rafvirkjun en hann
hugsar í dag um sig að öllu leyti
sjálfur. „Og ef mér væri fengin
manneskja til að hugsa um
mig, þá yrði það borgað sem
fullt starf. Ég hef aldrei hætt
að vinna. Ég er í fullu starfi við
að hugsa um sjálfan mig, þvo
af mér, hugsa um heimilið,
hugsa um húsið og kaupa inn.
Maður þarf ekki að vonast eft-
ir hjálp frá því opinbera. Þeir
lofa öllu fögru en svo eru efndirnar
engar,“ segir Jón sem hefur borgað í
alls kyns sjóði frá því hann var tvítug-
ur til að eiga áhyggjulausa elli.
Sinnuleysi unga
fólksins gagnvart því eldra
„En svo þegar þeir eiga að fara að
borga til baka til að hjálpa manni,
þá er engin króna til. Þetta
hefur allt horfið sporlaust,“
segir Jón sem fer ekki fögr-
um orðum um ungu kyn-
slóðina í dag sem hann seg-
ir sinnulausa gagnvart eldri
borgurum.
„Ef þið, unga fólkið,
lendið í svona þá er það bara
mátulegt á ykkur. Um leið
og þið látið fara svona með gamalt
fólk þá bíður ykkar það nákvæmlega
sama þegar þið þurfið á einhverju
að halda,“ segir Jón. Hann fer heldur
ekki fögrum orðum um stjórnendur
lífeyrissjóða. „Svo koma þessir ná-
ungar sem eru búnir að eyða pen-
ingunum sem maður var búinn að
borga í þetta og vita ekkert hvað hef-
ur orðið af peningunum og enginn
er ábyrgur. Þetta er ekki til að hrópa
húrra fyrir,“ segir hann sem segist
sjálfur vera við góða heilsu en hef-
ur áhyggjur af þeim sem eru ekki
eins heilsuhraustir. „Það hefur enga
heilsu til að bjarga sér sjálft en það
verður bara að liggja heima hjá sér
hjálparlaust,“ segir Jón sem mun
halda ótrauður áfram ferðum sínum
á Toyotunni svo lengi sem heilsan
leyfir.
„Ég hef aldrei hætt
að vinna. Ég er í
fullu starfi við að hugsa
um sjálfan mig.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
100 ára Í fullu fjöri Jón
Hannesson er ekki hrifinn af
því hvernig yngri kynslóðir
koma fram við eldri borgara.