Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Side 18
Voltaren getur Verið lífshættulegtEldsne yt i Algengt verð 248,9 kr. 248,7 kr. Algengt verð 248,7 kr. 248,5 kr. Algengt verð 248,6 kr. 248,4 kr. Algengt verð 248,9 kr. 248,7 kr. Algengt verð 250,9 kr. 248,7 kr. Algengt verð 248,7 kr. 248,5 kr. Bensín Dísilolía 18 Neytendur 25. júní 2012 Mánudagur Umhverfisvænt kynlíf n Það er ekki nóg að flokka bara rusl U mhverfisfræðunum er ekk­ ert óviðkomandi og núna er á síðu Umhverfisstofnunar hægt að fræðast um aðferðir til að stunda umhverfisvænt kynlíf. Það er ekki nóg að vera manneskja sem flokkar ruslið, gengur og hjólar í staðinn fyrir að nota bílinn og svo framvegis ef ekki er hugað að því sem gert er í svefnherberginu. Hér eru nokkrir punktar sem Um­ hverfisstofnun tók af heimasíðu The Ecologist. n Grænn og heilsusamlegur lífsstíll hjálpar til við að viðhalda lönguninni í kynlíf í amstri dagsins og kynlífið sjálft er líka stórgóð líkamsrækt. Auk þess hafa rannsóknir sýnt að kynlíf sé samofið vellíðan og hamingjuríku lífi. n Það eru til náttúrulegir gúmmí­ smokkar sem brotna niður í náttúr­ unni og mælt er með því að nota þá. Á hverju ári eru notaðir um 10 millj­ arðar smokka í heiminum sem enda í heimilissorpinu. n Það hefur nú sýnt sig að hormóna­ raskandi efni úr pillunni berast í skólpið og út í hringrás vatnsins og hafa áhrif á kynþroska karlfiska. n Sleipiefni eru af ýmsum gerðum og í fæstum tilvikum lífræn og sumar gerðir hafa ekki einu sinni innihalds­ lýsingu. Þau eru sum unnin úr jarð­ olíu, fitu, plastefnum og innihalda jafnvel efni sem talin eru geta raskað hormónajafnvægi líkamans. n Hjálpartæki ástarlífsins eru mis­ jöfn að gæðum og gerðum. Því mið­ ur er meirihluti þeirra gerður úr PVC­plasti sem inniheldur þalöt sem eru hormónaraskandi og vinyl­klór­ íð sem er krabbameinsvaldandi. Við framleiðslu og brennslu á PVC losn­ ar eitt af skaðlegustu efnum sem til eru, díoxín. Ýmis leikföng eru fram­ leidd úr gleri sem er mun umhverfis­ vænni kostur. Veljið endurhlaðan­ legar eða svansmerktar rafhlöður í rafknúin leiktæki. Frábær þjónusta n Lofið fær veitingastaðurinn Nonnabiti sem er meðal annars með samlokutilboð – gos og samloku með skinku, osti og káli á 690 krónur. Viðskiptavinur vildi lofa góða þjónustu, liðlegheit og sanngjarnt verð á veitingastaðn­ um. Hann óskaði eftir að fá að bæta við agúrku og tómötum á tilboðs­ samlokuna og það var lítið mál. Viðbótina fékk hann án endurgjalds og starfsfólk­ ið afgreiddi með bros á vör. Hann vildi taka það sérstaklega fram hve áberandi glaðlynt og þjónustulundað starfsfólkið á Nonna­ bita væri. Rangt verð og löng röð n Lastið fær Hagkaup í Skeifunni að þessu sinni og er það í raun tvíþætt. Viðskiptavinur hafði samband og sagði farir sínar ekki sléttar. „Ég kom þarna rétt fyrir miðnætti eftir langan vinnudag og keypti meðal annars frostpinna, nánar tiltekið pakka af ananashlunkum frá Kjör­ ís. Pakkinn með frostpinnunum var verðmerktur á 579 krónur í hillunni en þegar á kassann var komið þá var hann sagður kosta 599 krón­ ur.“ Viðskiptavinurinn ákvað þó, af tillitsemi við aðra viðskiptavini, að gera ekki athugasemd við rangt verð vegna þess að röðin á kass­ anum var mjög löng. Aðeins voru tveir kassar opnir í versluninni sem viðskiptavininum finnst of lítið. „Ég kem oft þarna á þessum tíma sólar­ hrings og það er alltaf brjálað að gera enda margir að klára vakta­ vinnu um þetta leyti. Það þyrftu að vera fleiri kassar opnir á þessum tíma,“ sagði við­ skiptavinurinn að lokum. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Grænt kynlíf Stundum umhverfisvænt kynlíf. n Langvarandi notkun getur valdið hjartaáföllum og heilablóðföllum n Læknirinn Vilhjálmur Ari segir parasetamól virka vel á gigtarverki Í slenski hjartalæknirinn Gunnar Gíslason hefur mælt með því að gigtarlyfið díklófenak sé tekið al­ veg af markaði, en það er með­ al annars selt undir nöfnunum voltaren, diclodan og diclon. Þetta kom fram bæði á danska fréttamiðl­ inum DR og í fréttaskýringaþættinum Deadline í síðustu viku. Gunnar segir að langvarandi notkun lyfsins geti leitt til mjög alvarlegra aukaverkana, til að mynda stóraukið líkurnar á hjarta­ áföllum og heilablóðföllum. Þetta sé þekkt bæði hjá hjartveikum einstakl­ ingum sem og heilbrigðum. Gunn­ ar furðar sig á afskiptaleysi danskra yfirvalda en díklófenak er gefið út af læknum til um 150 þúsund einstak­ linga á ári þar í landi. Hann telur að fjölmörg dauðsföll í Danmörku megi rekja til notkunar lyfsins á ári hverju. Íþróttafólk notar voltaren mikið Díklófenak er meðal annars selt hér á landi undir nöfnunum voltaren dolo og voltaren rapid en Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir segir Íslendinga nota mikið af lyfinu. Ekki bara við gigt­ verkjum, heldur einnig sem almennt verkjalyf. „Þetta lyf er gríðarlega vin­ sælt, þetta voltaren dolo, og við vitum það læknarnir sem vinnum á slysa­ og bráðamóttökunni að þetta er notað, liggur við, á alla áverka þar sem þarf hraða verkun og kröftuga.“ Vilhjálm­ ur segir íþróttafólk líka þekkja lyfið vel og nota það töluvert því það hafi ekki slævandi áhrif í sjálfu sér. Aukaverk­ anir séu þó einstaklingsbundnar hvað það varðar. Voltaren rapid er lyfseðilsskylt og hefur verið á markaði í um tíu til fimmtán ár, en voltaren dolo kom á markað fyrir um tveimur til þrem­ ur árum. Það er helmingi vægara en voltaren rapid og er selt í lausasölu. Líkt öðru hættulegu lyfi „Það sem mér finnst vera svolítið sláandi er að hann (Gunnar, innsk. blm.), bendir á að í dag er áhætt­ an ekkert ósvipuð og með hið svo­ kallaða vioxx. Það var gigtarlyf sem þoldist vel í maga og var gríðarlega vinsælt. Það var búið að vera á mark­ aði í tvö til þrjú ár þegar niðurstöður leiddu í ljós að mikil áhætta á hjarta­ áföllum fylgdi notkun þess. Margir kollegar hans í Danmörku, hjarta­ læknar og fleiri eru sammála þessu mati.“ Fram kemur í umfjöllun DR um málið að rekja megi dauðsföll um 27 þúsund Bandaríkjamanna til notkunar lyfsins og var það snarlega tekið af markaði árið 2004. „Gunn­ ar er að álykta að í raun sé þetta díklófenak ekki mikið skárra,“ segir Vilhjálmur. Voltaren áhættumest gigtarlyfja Gunnar hefur skrifað fjölda fræði­ greina í virt læknatímarit víða um heim síðastliðin ár og Vilhjálmur segir hann hafa sett gigtarlyfin upp í áhættutöflu. Þar komi skýrt fram að voltaren (díklófenak) fylgi langmest áhætta þegar kemur að hættulegum aukaverkunum. „Það er alveg 60 til 80 prósent meiri áhætta en með íbúfen og naproxen sem eru líka svona lausa­ sölulyf í minnstu skömmtunum.“ Vilhjálmur segir vissulega öll gigt­ arlyf hafa ákveðna áhættuþætti í för með sér en díklófenakið skeri sig úr hvað varðar alvarleika. „Þess vegna segja dönsku lækn­ arnir, og við höfum svo sem vitað þetta hér, að ef það þarf að taka gigt­ arlyf, sem eru jafn góð í sjálfu sér, þá er alveg eins gott að taka íbúfen og naproxen og önnur lyf sem hef­ ur reynst áhættuminna að nota. Þau eru jafngóð á gigtarverki,“ fullyrðir Vilhjálmur. Hann telur það óþarfa áhættu að hafa voltaren á markaðnum, sérstak­ lega í lausasölu þar sem ekki sé hægt að hafa eftirlit með notkun þess. Parasetamól virkar jafn vel Að sögn Vilhjálms hafa gigtarlæknar hér á landi verið að benda á það síð­ ustu ár að Íslendingar noti almennt allt of mikið af gigtarlyfjum, og eru að reyna að breyta þeirri stefnu. Gigtar­ sjúklingar ættu í raun miklu frekar að taka parasetamól eða panódíl Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.