Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Qupperneq 22
22 Menning 25. júní 2012 Mánudagur Krúttleikarnir n Drengjaskátar og dekurbörn á angurværum slóðum W es Anderson er vafalaust einn áhuga verðasti leik stjóri Banda­ ríkjanna nú um stundir en myndir hans ein­ kennast oft af mikilli stíli­ seringu, sérvitrum karakterum og háðskum húmor. Moonrise Kingdom, sem var opnunar­ mynd Cannes­hátíðarinnar í ár, hefur svo sannarlega þessi þrjú einkenni. Myndin gerist á lítilli eyju í Nýja Englandi á sjöunda ára­ tug síðustu aldar og fjallar um tvo 12 ára elskhuga sem flýja að heiman og ákveða að búa saman úti í náttúrunni. Sam (Jared Gilman) er mun­ aðarleysingi sem er í skátabúð­ um að sumarlagi á eyjunni en Suzy (Kara Hayward) er dekur­ barn sem dvelur þar á sumr­ in og býr við óhamingjusamt heimilislíf. Foreldrar Suzy (Bill Murray og Frances McDorm­ and) ásamt fógetanum (Bruce Willis) og skátaforingjan­ um (Edward Norton) leita að krökkunum. Ást barnanna er svo bersýnilega ósvikin að hún fær brátt þá fullorðnu til að horfast í augu við eigin syndir. Moonrise Kingdom er fyndin og hjartnæm mynd sem hefur sterka uppbyggingu. Í henni leika gæðaleikarar en ungu aðalleikararnir tveir koma einnig sterkir inn. Sam­ tölin eru yndisleg og handritið, sem er skrifað af Anderson og Roman Coppola, er þaulhugs­ að. Síðan er vert að minnast á að það er sannarlega stórvirki að takast að gera drengjaskát­ ana töff í eina og hálfa klukku­ stund! Persónulega hef ég aldrei verið mjög mikið fyrir myndir Andersons þar sem persónu­ sköpunin virðist stundum viljandi skrýtin eða „quirky“ eins og Kaninn segir. Þá koma persónurnar oft þvingaðar út en í Moonrise Kingdom virðast þær eðlilegri. Það gengur ein­ hvern veginn alveg upp hversu sérvitrir allir eru án þess að fingraför Andersons sjáist of greinilega. Myndtakan undir­ strikar þó öll sérkenni hans og fagurfræðin er ekki blygðunar­ laus eins og sumir segja um myndir hans. Þ egar blaðamaður DV mætti á dögunum heim til Sigurgeirs Sig­ mundssonar, gítar­ leikara með meiru, voru þar samankomnir Klauf­ ar og hlýddu á nýútkominn geisladisk sinn, Óbyggðir. En efnið á þennan disk unnu þeir félagar í samvinnu við Kristján Hreinsson, skáld í Skerjafirði. Birgir Nielsen, trommari, er fyrstur til svara þegar spurt er um sögu Klaufanna. Árið 2006 ákváðu þeir fé­ lagar, tónlistarmenn og ná­ grannar, Guðmundur Annas Árnason, Herbert Viðarsson og Birgir Nielsen að leiða saman hesta sína og stofna hljóm­ sveit til að rækta tónlistarstefnu sem þeim fannst að mætti gera hærra undir höfði „hér á landi á“, segir Sigurgeir, og vitnar í sjálfan konung kántrísins, Hall­ björn Hjartarson og bætir svo við: „Kántrísveitin Klaufar varð til.“ Fengu þeir kumpánar til liðs við sig þá félaga Leif Viðarsson og Magnús Kjartan Eyjólfsson. Síðan var haldið á vit ævintýr­ anna. Klætt í kántríbúning Nú komu hér klaufalegar um­ ræður þar sem menn fóru frjálslega með dagsetningar, en skyndilega hefur Guðmund­ ur Annas vitið fyrir Klaufum og segir: „Strax var farið í að vinna að fyrstu plötu sveitarinnar, og var ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur, heldur haldið beint til Mekka kántrítónlistar­ innar, Nashville í Bandaríkjun­ um. Þar var tekið upp efni sem endaði síðan á plötunni „Ham­ ingjan er björt.“ Sú plata kom út árið 2007 og seldist vel. Þarna spiluðu með Klaufum færustu hljóðfæraleikarar kántríbrans­ ans, og úr varð skemmtileg­ ur diskur, með lögum eins og „Búkalú“ og „Karlmannsgrey í konuleit.“ Þarna fengu Klaufar sem­ sagt að slá í klárinn og ákváðu drengirnir að taka upp aðra plötu strax árið 2008 und­ ir sömu formerkjum, þ.e. að taka vinsæl íslensk dægurlög og klæða þau í léttan kántrí­ búning. Einnig fóru menn að gera íslenska texta við þekkta bandaríska kántríslagara. Úr varð platan „Síðasti mjói kan­ inn“ og fékk hún góðar viðtök­ ur eins og sú fyrri. Báðar þess­ ar plötur voru teknar upp í Dark Horse Studio í Nashville, Tennessee og í leiðinni byrgðu menn sig upp af nokkrum góð­ um höttum. Á plötu númer tvö fengu Klaufar til liðs við sig stálgítarleikara Íslands, sjálf­ an Sigurgeir Sigmundsson, en fáir leika jafn vel á fetilgítar, eða „Pedal Steel Guitar“ eins og hljóðfærið heitir á útlensku. Og blaðamaður spyr: „Hvað gerðist svo?“ „Eftir þessa plötu tóku Klaufar sér hlé frá spila­ mennsku og Leifur, Herbert og Magnús fóru að sinna öðrum verkefnum. Það var svo í byrjun árs 2011 sem Birgir, Guðmund­ ur Annas og ég endurvöktum hljómsveitina og fengum til liðs við okkur nýjan mannskap og þar með hófst nýtt tímabil í sögu Klaufa,“ svarar Sigurgeir. „Þarna gengu semsagt í hljómsveitina þeir Friðrik Sturluson bassaleikari og Krist­ ján Grétarsson gítarsnillingur, en hann er af mikilli tónlista­ rætt, sonur Grétars Örvarsson­ ar úr Stjórninni og barnabarn Örvars Kristjánssonar harm­ onikkuleikara. En það er akkúrat þessi hópur sem stadd­ ur er á heimili Sigurgeirs og leyfir blaðamanni að hlýða á Óbyggðir“ Hlöðuball í bæjartraffík Menn halda áfram að rifja upp söguna og blaðamaður heldur áfram að punkta hjá sér: Með nýrri liðsskipan hófu Klauf­ ar þegar að skipuleggja land­ vinninga. Fyrsta giggið hjá nýj­ um Klaufum var á Kántríhátíð á Skagaströnd haustið 2011 og fékk sveitin mikið lof fyr­ ir frammistöðuna þar, enda er samanlögð reynsla Klaufa mæld í áratugum, hvað spila­ mennsku áhrærir. Þeir hafa sungið og leikið út um allar trissur, þeir elska séríslenska sveitaballamenningu og vilja halda henni við. Eftir þessa vel­ heppnuðu kántríhátíð lá leiðin á Spot í Kópavogi þar sem slegið var upp alvöru hlöðuballi inn­ an um allt malbikið og stressið í borginni. Grein um þetta til­ tekna ball birtist á Pressunni, en giggið vakti athygli út fyrir landsteinana. Og í téðri grein, segir Sverrir Björn Þráinsson meðal annars: „Við Íslendingar erum dug­ legir við að koma okkur á heimskortið, enda minnsta stórþjóð heims og orðtakið „miðað við höfðatölu“ er okk­ ur tamt að læra líkt og að lesa og skrifa. Kántrísveitin Klauf­ ar hélt á dögunum hlöðuball innan um alla traffíkina í Kópa­ voginum þar sem sveitamenn­ ingunni var troðið í stórborgina við gríðarlegan fögnuð við­ staddra.“ Og nú er það Friðrik Sturlu­ son sem tekur til máls: „Klaufar eru um þessar mundir að gefa út sína þriðju breiðskífu sem hlotið hefur nafnið „Óbyggðir“, en þar fengum við til samstarfs við okkur Skerjafjarðarskáldið góðkunna, Kristján Hreinsson. En hann semur flest lögin og alla texta á plötunni, fyrir utan textann við „Ást og áfengi“ sem Jónas Friðrik Guðnason samdi. Við höfum verið að dunda okk­ ur við upptökur í allan vetur, það var mjög skemmtileg veg­ ferð þar sem allir lögðust á eitt og við erum afar ánægðir með útkomuna.“ Aðrir Klaufar blanda sér í umræðuna og fram kem­ ur að fleiri mætir aðilar hafi komið við sögu á þessum nýja diski. Magnús Kjartansson, stjórnar þar kór hestamanna; Brokkkórnum. Þá ljá Stebbi og Eyfi nokkrum lögum bakraddir, Selma Björns syngur dúett með Mumma og óbyggðahetjan sjálf, Magnús Eiríksson, syngur með í titillagi plötunnar. Blaðamaður DV þakkaði fyrir klaufaleg svör og fór glaður af vettvangi. Þessi geisladiskur Klaufa verður svo sannarlega búbót fyrir íslenska alþýðu. Enda er það opinbert markmið Klaufanna að kæta landsmenn – alla sem einn. kh@dv.is Klaufar í óbyggðum n Ný plata frá Klaufum n Dægurlög í kántríbúning Sveitin í kántrífíling Árið 2006 ákváðu þeir félagar, tónlistarmenn og nágrannar, Guðmundur Annas Árnason, Herbert Viðarsson og Birgir Niel- sen að leiða saman hesta sína og stofna hljómsveit til að rækta tónlistarstefnu sem þeim fannst að mætti gera hærra undir höfði „hér á landi á.“ Þórður Ingi Jónsson ritstjorn@dv.is Bíómynd Moonrise Kingdom IMDb 8,3 RottenTomatoes 95% Metacritic 7,8 Leikstjóri: Wes Anderson Handrit: Wes Anderson, Roman Coppola Aðalleikarar: Bruce Willis, Edward Norton, Bill Murray, Kara Hayward, Jared Gilman, Frances McDormand, Tilda Swinton. 94 mínútur Náttúrulegar persónur Það gengur einhvern veginn alveg upp hversu sérvitrir allir eru án þess að fingraför Anderson sjáist of greinilega. Nýstirni stíga á svið Fimmtudaginn 12. júlí munu nýstirnin í Tilbury troða upp á tónleikum Gogoyoko wireless. Um tónleikaröð íslensku/al­ þjóðlegu tónlistarveitunnar gogoyoko.com er að ræða. Tilbury mun spila efni af frumraun sinni, Exorcise en lagið Tenderloin hefur ver­ ið að gera góða hluti á vin­ sældalistum undanfarið. Hljómsveitin er skipuð þeim Þormóði Dagssyni sem áður lék með Skakkamanage, Hudson Wayne og Jeff Who?, Magnúsi Tryggvasyni Eliassen, Guðmundi Ósk­ ari, Erni Eldjárn og Kristni Evertssyni. Tónleikarnir verða á Kex Hostel og hefjast klukkan 21. Sköpunarskóli fyrir unglinga Davíð A. Stefánsson ljóð­ skáld og bókmennta­ fræðingur heldur námskeið fyrir unglinga þar sem þeir læra að treysta eigin sköp­ unarkrafti. Á námskeiðinu verð­ ur kafað ofan í sagnasmíði og markmiðið er að efla sjálfstraust. Á því læra ung­ lingar að setja hugann á flug, greina kvikmyndir og hlusta á hvetjandi fyrirlestra um sköpunargáfuna. „Allir hafa þennan innri dómara sem heftir sköpun. Ef við vitum af honum er auðveldara að þagga niður í honum,“ segir Davíð sem þekkir skapandi störf af eigin raun. Fyrsta námskeiðið hefst þann 25. júní og nánari upplýsingar fást á heimasíðunni www. skopunarskolinn.is. Lay Low á Rauðasandi Tónlistarkonan Lay Low verður á meðal tónlistar­ manna sem munu troða upp á tónlistarhátíðinni Rauðasandur Festival á Rauðasandi á Vestfjörð­ um. Hátíðin er nú haldin í annað sinn og verður sett föstudaginn 6. júlí. Auk Lay Low munu Prinspóló, Snorri Helgason, Ylja og fleiri koma fram. Einnig verður hægt að stunda jóga í sandinum, fara í gönguferðir, keppa í sandkastalagerð og skella sér í bátsferð. Allt þetta und­ ir ljúfum tónum Lay Low og félaga. Á staðnum eru góð tjaldsvæði, ótrúlegar nátt­ úruperlur og sögufrægir staðir innan göngufæris.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.