Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2012, Side 24
24 Sport 25. júní 2012 Mánudagur Þ að er ekkert annað í kortum Evrópumóts­ ins í knattspyrnu en að í úrslitum mætist landslið Þýskalands og Spánar og þar fari Þjóð­ verjarnir með sigur af hólmi að mati Hermanns Gunnars­ sonar, fjölmiðlamanns og knattspyrnuhetju til margra ára. Hermann telur lítinn vafa leika á að Þjóðverjar vinni sigur í undanúrslitum hvort sem andstæð ingurinn eru Englendingar eða Ítal­ ir og á hinn bóginn sé lið Portú gal einfaldlega ekki nógu sterkt til að eiga við stórkostlegt landslið Spán­ verja. Spánn betri en Portúgal Aðspurður um Evrópumótið í knattspyrnu segir Hermann það mikið til eftir bókinni og segir kannski það eina sem komið hafi honum á óvart sé að Rússar hafi ekki farið lengra en raun bar vitni en það landslið komst ekki upp úr riðli sínum eftir frábæra byrjun. Að sama skapi sé fátt að koma á óvart varðandi þau landslið sem eftir séu og enginn hefði unnið fúlgur fjár að spá fyrir um undanúrslit og úrslit EM að þessu sinni. „Eina spurningin sem eft ir er að svara finnst mér sú hvort Spán verjarnir séu orðn ir pakksaddir. Landslið þeirra hefur unnið bæði tit­ ilinn á EM fyrir fjórum árum og Heimsmeistaratitilinn fyrir tveimur árum og mér fyndist það ekki ólíklegt að þeir séu ekki jafn hungraðir og þeir þurfa að vera til að endurtaka leikinn nú. Það sést einna best á því að þeir eru í vandræðum með framherja; hvort spila eigi Fabregas frammi eða prófa Torres og þetta verður vandamál áfram. Ekki þar fyr­ ir að Spánn sé ekki betra lið með betri leikmenn en Portú­ gal og jafnvel þó Portúgal státi af öðrum besta leikmanni heims um þessar mundir dugar það varla til gegn Spán­ verjunum sem kunna lausnir á öllum vandamálum. Ég held að Spánn sé bara of stór biti fyrir Portúgal og þeir eru ekki jafn góðir ef bornir eru saman leikmenn liðanna.“ Þjóðverjar sigla í úrslitin „Það virðist sama hvaða lið Þjóðverjarnir senda til leiks á stórmótum. Þar sér maður bráðunga og efnilega stráka sem eru fullfærir að takast á við þá bestu í heimi og hafa sjálfstraust til. Það er ótrúlegt að sjá til þeirra og nú er bara komin ný kynslóð leikmanna sem eru hver öðrum betri hjá Þjóðverjunum. Einu gildir þó andstæðingurinn setji mark eða mörk gegn þeim, þeir keyra áfram í sama gír og hafa betur þegar upp er staðið. Ég held að engu skipti hvaða landslið mæti þeim í und­ anúrslitunum. Eng lendingar eru fastir í fortíðinni og ekkert nýtt þar og þó Ítalir hafi verið aðeins frískari þá er það sama uppi á teningnum þar. Hvor­ ugt liðið mun hafa nokkuð í Þjóðverja að gera.“ Spyrjum að leikslokum „Einasta spurningin sem svara þarf varðandi úrslita­ leikinn sjálfan að mínu viti er hvort leikmenn Spán­ verja séu komnir með nóg og ekki nógu hungraðir. Því það þurfa þeir að vera gegn Þjóð­ verjum sem spila sinn leik hvað sem tautar og raular og ég held að þeir með sína eld­ fljótu og leiknu vængmenn geti leikið bakverði Spán­ verja nokkuð grátt mætist þessi landslið. Spánverjarnir eru miklu flinkari með bolt­ ann og geta haldið honum þetta 60 til 80 prósent í hverj­ um leiknum á fætur öðrum en þessi vandræði þeirra í fremstu víglínu hafa varla farið framhjá nokkrum og gegn Þjóðverjum þá duga engin vettlingatök ætli menn að skora gegn þeim. Ef ég ætti að setja þúsund krón­ ur á hver stendur uppi sem Evrópumeistari þetta árið set ég þann pening á Þýska­ land.“ n Hermann Gunnarsson veðjar á að Þýskaland vinni Evrópumeistaratitilinn 2012 Pakksaddir sPánverjar? Albert Eyþórsson albert@dv.is Blindur Arsene Wenger? Fáir, ef nokkrir, sóknarmenn hafa verið gagnrýndir jafn heiftarlega á yfirstandandi EM en Robin van Persie sem þykir hafa leikið langt undir getu fyrir hollenska lands­ liðið. Þjálfari Hollendingsins hjá Arsenal, Arsene Wenger, er þessu innilega ósammála og segir þvert á móti Persie hafa verið einn allra heitasta framherjann á mótinu. „Hann er gagnrýndur allt of harkalega að mínu mati. Ef leikir Hollands eru skoðað­ ir og litið sérstaklega á þátt Persie þá var allt sem hann gerði; hlaup og sendingar mjög góðar. Hann nýtti vissulega ekki öll sín færi í leikjum Hollendinga en ég skrifa það frekar á þreytu en nokkuð annað. Hann er skör ofar knattspyrnulega en Klaas­Jan Huntelaar [annar framherji Hollands].“ Barist um Falcao Einn allra hættulegasti fram­ herjinn í Evrópu á liðinni leiktíð var hinn kolumbíski Radamel Falcao hjá Atletico Madrid. Í fyrra blómstraði Falcao einnig með liði Porto í Portúgal og þykir aldeil­ is hafa sannað sig í Evrópu­ boltanum. Svo mjög að full­ yrt er á Spáni að fjögur af stærstu liðum álfunnar séu með drenginn í sigtinu fyr­ ir næstu leiktíð. Eiga það að vera Chelsea og Manchest­ er City í Englandi og stórliðin spænsku Real Madrid og Barcelóna. Næsta óhætt er að útiloka Real Madrid því rígur Real og Atletico er slíkur að sala leikmanns milli þeirra er fáheyrð. Sjálfur er Falcao að sögn sáttur hjá Atletico enda oft betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en öfugt. Goðsögn fær fyrir hjartað Þó að helsta goðsögn Portú­ gal í boltanum, Cristiano Ronaldo, sé hluti af leik­ mannahóp þess landsliðs eru aðrar tvær helstu goðsagn­ ir þess lands sem fylgst hafa með liðinu úr áhorfenda­ stúkum alla Evrópukeppn­ ina. Það eru þeir Luis Figo og Eusebio en sá síðarnefndi var lagður inn á sjúkrahús um helgina eftir að hafa feng­ ið mikla brjóstverki. Karlinn sem er orðinn 70 ára eyðir sífellt meiri tíma á sjúkrahús­ um en þangað hefur hann þurft að leita alls fjórum sinnum bara á þessu ári. Hemmi Gunn Ljóst er orðið hvaða landslið mætast í undanúrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu árið 2012 og nokkuð eftir bókinni að sögn Hermanns Gunnarssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.