Fréttablaðið - 18.12.2015, Side 1
Vinnumarkaður Íslenskt vinnuafl
nægir nú vart til að anna eftirspurn
eftir starfsfólki á Reykjanesi. Ástæð-
an er sögð stórfelld fjölgun ferða-
manna og uppbygging kísiliðju.
„Það stefnir í að við náum ekki
að manna allar stöður í þessum
bransa,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur.
IGS, dótturfélag Icelandair Group,
sem annast flugvallarþjónustu á
Keflavíkurflugvelli, hyggst ráða 150
manns á næsta ári. Hafa störfin
verið auglýst í Póllandi. Gunnar
Olsen framkvæmdastjóri segir að
töluvert hafi borist af fyrirspurnum.
„Við erum með fólk frá Póllandi
inni hjá okkur og erum að nýta þau
ágætu sambönd sem við höfum í
gegnum það ágæta fólk hjá okkur,“
segir Gunnar sem býst við að ráðn-
ingarnefnd fari héðan til Póllands
um mánaðamótin janúar og febrúar
og gangi frá ráðningum í allar deild-
ir. Það þýðir þá hlaðmenn, starfs-
menn í flugeldhúsi, starfsmenn í
ræstingum og farþegaþjónustu.
Gunnar segir Íslendinga ekki
bjóðast. Álagstími ferðaþjónustu
teygi sig nú eftir vorinu og haustinu.
„Við erum að finna fólk sem tekur
á þessu tímabili, vorinu og haustinu,
og er auðvitað áfram yfir sumarið.
En svo kemur skólafólkið þegar það
losnar úr námi,“ segir Gunnar.
„Þó að ég sé með í félaginu hjá
mér 136 án atvinnu þá uppfylla þeir
ekki þær kröfur að geta unnið hjá
IGS. Fólk þarf að fara í bakgrunns-
skoðun, vera með bílpróf og fleira.
Það er ekki ásetningur að sniðganga
Íslendinga,“ segir Kristján.
Þorsteinn Sæmundsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, er
ósáttur. Á þingfundi í fyrradag
sagði Þorsteinn að atvinnuleysis-
tölur væru um margt til að auka á
bjartsýni, jafnvel þótt enn væru um
4.600 atvinnulausir. Hann furðaði
sig á því að auglýst væri eftir starfs-
mönnum í útlöndum.
„Þetta skýtur mjög skökku við
vegna þess að einn af aðaleigend-
um Icelandair eru íslensku lífeyris-
sjóðirnir. Og ég skil ekki hverju það
sætir ef menn ætla að fara að flytja
hér inn verkafólk til þess að halda
niðri launum þegar við höfum hér
nokkrar þúsundir á atvinnuleysis-
skrá,“ sagði Þorsteinn. – jhh
Þó að ég sé með í
félaginu hjá mér
136 án atvinnu þá uppfylla
þeir ekki þær kröfur að geta
unnið hjá IGS.
Kristján Gunn-
arsson, formaður
Verkalýðs- og
sjómannafélags
Keflavíkur
— m e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 9 6 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
sérblaðið lÍFið
Jólin búa innra með okkur
Kristín Gunnlaugsdóttir mynd-
listarkona fjallar hér um jóla-
hefðirnar sem
hún ólst upp
við þar sem
hátíðleikinn
er í hávegum
hafður en á
sama tíma
er farið
í marga
jólaleiki
með til-
heyrandi
ærsla-
gangi og
hlátri.
skoðun Þórlindur Kjartansson
skrifar um yndislegu eyjuna
sína. 22-26
sport Hvað tekur við hjá Gunn-
ari Nelson? 56-58
menning Í bókinni Loftklukku
lýsir Páll Benediktsson eigin upp-
vexti og ótrúlegri ættarsögu. 36-40
lÍFið Ný plata hljómsveitar-
innar Fufanu fær frábæra dóma
erlendis. 36-40
plús 2 sérblöð l Fólk l lÍFið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
6
DAGAR
TIL JÓLA
OPIÐ TIL
22
Í KVÖLD
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
S T Y R K T A R F É L A G
L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil
5. – 19. desember
S K Y R G Á M U R
Föstudagsviðtalið
Verða að leita erlendis
að starfsfólki í Leifsstöð
Fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli geta ekki mannað stöður með íslensku starfsfólki.
IGS þarf 150 starfsmenn og leitar til Póllands. Þingmaður ósáttur við fyrirtækið.
Biskup Íslands segir kirkjuna þurfa að sýna
frumkvæði og taka af skarið, en vera ekki
alltaf bara að bregðast við gagnrýni. Agnes
M. Sigurðardóttir segir mikilvægt að kirkjan
læri af því sem gengið hefur á, meðal annars
í biskupsmálinu. Fólki hafi ofboðið. Hún
ræðir sundurlyndi innan stofnunarinnar,
ferilinn og aðskilnað ríkis og kirkju.
Síða 18 og 20
Lærum af
mistökunum
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-7
A
6
0
1
7
B
B
-7
9
2
4
1
7
B
B
-7
7
E
8
1
7
B
B
-7
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K