Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 2
Veður
Norðlæg átt, víða 8 til 15 metrar á sekúndu
en hægari austlægari í kvöld. Dálítil él á víð
og dreif og frost á bilinu 1 til 11 stig, kaldast í
innsveitum norðaustanlands. Sjá Síðu 34
Kósí við kertaljósin
viðSkipti Steingrími Erlingssyni,
forstjóra og stofnanda Fáfnis Off
shore, var sagt upp störfum í vikunni.
Þetta staðfestir Bjarni Ármannsson,
stjórnar formaður Fáfnis.
Bjarni vill ekki tjá sig um ástæðu
uppsagnarinnar. Hann segir enga
breytingu á hluthafahópnum. Stein
grímur á 21 prósents hlut í Fáfni.
Fáfnir rekur olíuþjónustuskipið
Polarsyssel, sem kostaði 5 milljarða
króna á núverandi gengi. Kreppa er
í olíuþjónustuiðnaðinum og olíu
verð hefur fallið um ríflega helming
síðan Fáfnir fékk Polarsyssel afhent
haustið 2014. Fáfnir gerði nýlega við
bótarsamning við sýslumanninn á
Svalbarða þar sem Polarsyssel verður
í útleigu níu mánuði á ári.
Fáfnir er með annað enn stærra og
dýrara olíuþjónustuskip í smíðum en
afhendingu þess hefur verið frestað
nokkrum sinnum vegna erfiðra
markaðsaðstæðna, nú síðast fram til
ársins 2017. Fáfnir var rekinn með 50
milljóna króna tapi á síðasta ári. – ih
Forstjórinn
fer frá Fáfni
Sannkölluð jólastemming var á Árbæjarsafni í vikunni þar sem fólk yljaði sér inni í hlýjunni með heitan drykk í hendi við flöktandi jólaljósin.
Fréttablaðið/Vilhelm
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
89.400
m/hálfu fæði
Skíði
Skelltu þér á skíði
2. janúar í 7 nætur.
Skihotel Speiereck
Netverð á mann frá kr. 89.400 m.v. 2
fullorðna og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2
fullorðna í herbergi.
SÉRTILBO
Ð
FaNgelSiSmál Vandamál hafa komið
upp vegna misnotkunar fanga á Litla
Hrauni á lyfinu Suboxone. 52 slík til
felli hafa komið upp í fangelsinu það
sem af er ári. Um er að ræða mikla
aukningu á stuttum tíma. Fjórðungur
af öllum agaviðurlögum í fangelsinu
á árinu er tilkominn vegna misnotk
unar á lyfinu.
Á síðustu þremur árum hafa 99% af
sölu Suboxone verið til Landspítala og
meðferðarstofnana hér á landi – sem
svo ávísa áfram á sjúklinga sem hafa
samþykkt að gangast undir meðferð
við lyfjafíkn, samkvæmt Lyfjastofn
un. Þeir sem eru háðir lyfinu þurfa á
afeitrun að halda til þess að komast
af Suboxone. Á LitlaHrauni er ekki
hægt að afeitra, þar sem enginn læknir
er þar starfandi að staðaldri. Þeir sem
háðir eru lyfinu fara í fráhvörf þegar
þeir hætta neyslu þess sem geta reynst
hættuleg. Alla jafna er föngum í lok
uðum úrræðum ekki heimilt að fara í
áfengis eða vímuefnameðferð á Vogi,
fyrr en afplánun er langt á veg komin
eða henni lýkur.
Átta milligramma tafla af lyfinu
gengur kaupum og sölum á Litla
Hrauni fyrir um tíu þúsund krónur.
Þórarinn Tyrfingsson, læknir á Vogi,
kannaðist ekki við að Suboxone væri
misnotað í fangelsinu þegar falast var
eftir viðbrögðum hans, en sagði lyfið
hafa bjargað lífi fjölda sjúklinga á
Vogi. Fylgst væri með þeim sem fengju
lyfinu ávísað.
Þær Suboxonetöflur sem ávísað er
hér á landi fara að mestu leyti í gegn
um Vog. Lyfinu er ávísað til þeirra sem
eru í viðhaldsmeðferð fyrir sprautu
fíkla. Ávísun lyfsins er bundin við sér
fræðinga í geðlækningum og sérfræð
inga í meðhöndlun á lyfjafíkn. Ekkert
er hægt að fullyrða um hvaðan lyfin
sem berast inn á LitlaHraun koma,
hvort þau séu flutt inn eða hvort þeim
sé ávísað af læknum hér á landi.
Algengt er að læknadópi á borð
við Suboxone sé smyglað inn í fang
elsið með gestum. Fíkniefnahundur
finnur ekki lykt af slíkum lyfjum. Þá
sjá fangar ávinning í því að ekki er ber
sýnilegt að menn séu undir áhrifum
Suboxone og því kemst ekki upp um
þá nema þeir séu sérstaklega prófaðir
fyrir slíku. Starfsmenn fangelsisins
kannast við lyfið og segja það vanda
mál. Lyfið er ávanabindandi og getur
verið hættulegt ef það er ekki notað í
réttum tilgangi og undir eftirliti fag
fólks.
Suboxone eru tungurótartöflur sem
innihalda búprenorfín og naloxón.
Búprenorfín er skylt morfíni en notað
við lyfjafíkn en naloxón er til að koma
í veg fyrir misnotkun lyfsins í æð.
Meðferðarlyf valda vanda á Hrauninu
Lyf gefið í viðhaldsmeðferðum fyrir sprautufíkla er vandamál á Litla-Hrauni. Þeir sem eru háðir þurfa á afeitrun að halda sem ekki er
hægt að veita í fangelsinu. Fjórðungur agavandamála á Litla-Hrauni á árinu er tilkominn vegna misnotkunar á lyfinu Suboxone.
Á fylgiseðli lyfsins segir:
Lyfið getur verið eftirsóknar
vert hjá fólki sem misnotar
lyf sem ávísað er af læknum,
og skal geyma lyfið á örugg
um stað til þess að því sé
ekki stolið. Ekki gefa þetta
lyf öðrum. Það getur valdið
dauða eða öðrum skaða.
meNNiNg Fréttablaðið og Vísir
efna til samkeppni um bestu
jólaljósmyndina. Í verðlaun fyrir
bestu myndina er glæsileg Nikon
DSLR myndavél með 18105VR
linsu frá Heimilistækjum.
Besta myndin verður á forsíðu
Fréttablaðsins á aðfangadag og
fleiri myndir úr keppninni í blað
inu og á Vísi.
Þeir sem hafa áhuga á að taka
þátt í keppninni eru vinsamleg
ast beðnir um að senda myndir
sínar á netfangið jolamynda
keppni@365.is. Lesendur geta svo
kosið bestu myndina á Vísi á slóð
inni visir.is/jolamyndakeppni.
Niðurstaða kosningarinnar gildir
að hálfu á móti áliti dómnefndar
blaðsins.
Hver þátttakandi má senda inn
eina mynd og skal hún hafa verið
tekin nú í aðdraganda jólanna.
Jólaljósmyndakeppnin stendur
fram að miðnætti mánudaginn
21. desember. Tilkynnt verður um
úrslitin á aðfangadag.
Kosið um bestu jólamyndina
Verðlaunamyndina í fyrra tók Kristín Valdemarsdóttir.
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Fangelsismál
Refsing eða betrun?
1 8 . d e S e m b e r 2 0 1 5 F Ö S t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-7
F
5
0
1
7
B
B
-7
E
1
4
1
7
B
B
-7
C
D
8
1
7
B
B
-7
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K