Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 6

Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 6
Mótmæla komu flóttafólks Strjórnmál Stjórnarflokkarnir taka vel í tillögu Viðskiptaráðs Íslands um að fækka ríkisstofnunum. Það sé mikilvægt upp á hagræðingu og til að bjóða betri þjónustu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar benda á að þeir stóðu fyrir samein­ ingu í sinni ríkisstjórn. Hugmyndir um sameiningu eiga hins vegar ekki að stjórnast af hugmyndafræði um að draga úr ríkisrekstri, heldur til að efla gæði og fagmennsku að mati Katr­ ínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna. Guðlaugur Þór Þórðarson segist ekki hafa náð að skoða tillöguna gaumgæfilega, en sér lítist vel á hug­ myndir um fækkun ríkisstofnana, það sé það sem lagt var upp með í hagræðingarhópnum. „Við tölum iðulega um að við eigum erfitt með að stýra opinberum fjár­ málum á þensluskeiði. Margt bendir til þess að við séum að falla í þá gryfju aftur. Það er engin umræða um sparnað og forgangsröðun. Ég von­ ast til þess að við berum gæfu til þess að koma einhverjum af tillögunum í framkvæmd. Ég veit hins vegar ekki hvort ég sé sammála þeim öllum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár­ laganefndar, segist fagna hugmynda­ fræðinni sem birtist í tillögunni. „Það gera sér allir grein fyrir því að það þurfi að fara þessar leiðir, að spara stórkostlegt fé hjá ríkinu með fækkun ríkisstofnana og breytingu á skipu­ lagi ríkisins. Til framtíðar stöndum við frammi fyrir því að þjóðin er að eldast og það er ljóst að ef ekki verður gripið til aðgerða sem fyrst þá stefnir þetta í óefni.“ Árni Páll Árnason, formaður Sam­ fylkingarinnar, segir að margt gott sé í tillögunum. „Í tíð síðustu ríkisstjórn­ ar lögðum við áherslu á sameiningu Vilja fækkun stofnana Meðlimir stjórnarflokkanna fagna umræðunni um fækkun stofnana. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja góð rök geta verið fyrir sameiningu. Viðskiptaráð leggur til aflagningu fimm ríkisstofnana; Íbúðalánasjóðs, Umboðsmanns skuldara, ÁTVR, Þróunarsamvinnustofnunar og Bankasýslunnar. Skiptar skoðanir eru meðal stjórnmálamanna um þá tillögu. Guðlaugur Þór segist vilja bæta við listann ef eitthvað er. „Það er algjörlega óskiljanlegt að við séum að halda úti flestum þessara stofnana. Án nokkurra umræðu erum við búin að leggja í húsnæðis- banka ríkisins fjárhæð sem nemur nýjum Landspítala. Vigdís Hauksdóttir tekur einnig vel í tillögurnar. „Tvær þessara stofn- ana voru settar á stofn eftir banka- hrunið og áttu að vera skammtíma- stofnanir þannig að ég tek heils hugar undir það að þær verði lagðar niður þegar þessum málum lýkur. Ég hef einnig séð eftir þessum 60 milljörðum sem ríkið hefur sett inn í Íbúðalánasjóð frá hruni.“ Árni Páll Árnason segist hins vegar ekki vera sammála þessari til- lögu að öllu leyti. Hann bendir á að það séu ákveðin pólitísk ákvörðun sem felst í því til dæmis að leggja niður ÁTVR. Katrín Jakobsdóttir tekur ekki vel í tillögurnar, þörf sé enn þá á „hrunstofnunum“. „Ég er alfarið á móti því að leggja niður ÁTVR svo dæmi sé tekið.“ Hún telur hins vegar ljóst að það þurfi alltaf að endurmeta hlutverk stofnana. „Hlutverk sumra stofnana geta verið tímabundin.“ Skiptar skoðanir á aflagningu stofnana Svona hugmyndir eiga ekki að stjórn- ast endilega af einhverjum hugmynda- fræðum um að draga úr ríkisrekstri. Katrín Jakobsdóttir Ég vonast til þess að okkur beri gæfa til þess að koma einhverju af tillögunum í framkvæmd. Guðlaugur Þór Þórðarson stofnana og sameiningu yfirstjórnar og stoðþjónustu til þess að verja þjón­ ustu. Þjónustan sjálf er lykilatriði.“ Hann segir að síðan geti verið mis­ munandi sjónarmið hvernig þetta sé útfært. Almennt sé rétt að stefna að stærri einingum og sameina sérstak­ lega starfsmannahag, og innviði, en að einingarnar verði enn þá til með faglegt sjálfsforræði.“ Katrín Jakobsdóttir telur að oft geti verið mjög góð rök fyrir sameiningu. „Ég tel að margar af þessum stofn­ unum gegni mikilvægu hlutverki, en auðvitað skoðum við það með opnum hug hvort það sé betur gert með öðrum stofnunum. En svona hugmyndir eiga ekki að stjórnast endilega af einhverri hugmyndafræði um að draga úr ríkisrekstri, heldur til að efla gæði og fagmennsku.“ Helgi Hrafn Gunnarsson pírati vildi ekki tjá sig um málið. saeunn@frettabladid.is Kláraðu jólagjafa- kaupin á einum stað. Í Bóksölu stúdenta finnur þú meira en þig grunar. í Bóksölu stúdenta Háskólatorgi - www.boksala.is SveitarStjórnir Garðabær vill að ríkið taki yfir rekstur hjúkr­ unarheimilisins Ísafoldar. Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir að auk þess muni Garðabær stefna ríkinu til að fá greiddar 400 milljónir króna sem bæjarfélagið hafi sett í rekstur hjúkrunarheimilisins. Ísafold á við talsverðan rekstrar­ vanda að stríða. Daggjöld sem Tryggingastofnun greiðir hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði. Ríkið hefur hafnað kröfu Garðabæjar um að daggjöldin verði hækkuð. Gunnar Einarsson segir að fundað hafi verið með ráðuneyt­ inu og orðið ljóst að daggjöldin hækki ekki. „Við viljum ekki reka þetta áfram með því að vera að borga hundrað milljónir á ári með þessu. Það er líka ljóst að við teljum okkur ekki vilja taka þátt í því að minnka kröfurnar eða markmiðin. Við viljum standa með þeim sem eru á hjúkrunarheimilinu,“ segir bæjarstjórinn. Því verður farið þess á leit að ríkið taki við rekstrinum. – ih Ríkið taki við Ísafold Við viljum ekki reka þetta áfram með því að vera að borga hundrað millj- ónir á ári með þessu. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar Frakkland Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald­ eyrissjóðsins, mun mæta fyrir dóm­ stóla í Frakklandi vegna ásakana um vanrækslu vegna 404 milljóna evra greiðslu til franska auðjöfursins Bernard Tapie árið 2008. Tapie var meirihlutaeigandi í Adidas sem hann seldi árið 1993 en kærði bankann Credit Lyonnais fyrir að hafa vanmetið verðmæti fyrir­ tækisins. Lagarde, þá fjármálaráð­ herra, vísaði máli Tapie til nefndar sem úrskurðaði honum bætur. Leikur grunur á að Tapie hafi lofað Nicolas Sarkozy stuðningi í forsetakosning­ um í skiptum fyrir bæturnar. Lagarde hafnar ásökunum. – srs Lagarde fyrir dómstóla dómSmál Hæstirétt ur dæmdi í gær karl í sex mánaða skil orðsbundið fang elsi fyrir að strjúka sofandi stúlku um læri og rass og fróa sér á meðan. Hann á að greiða stúlkunni 250 þúsund krónur. Í dómn um segir að stúlk an hafði verið úti að skemmta sér ásamt vin­ konu sinni sem hafi boðið heim manni sem þær þekktu báðar. Sam­ kvæmt stúlkunni lét maðurinn ekki af athæfi sínu þrátt fyrir að hún hefði reynt að ýta honum af sér. – ngy Dómur fyrir káf og sjálfsfróun Lagarde neitar öllum ásökunum. FréttabLaðið/EPa Af lýsa þurfti fundi í hollenska bænum Geldarmalsen á miðvikudagskvöld þar sem ræða átti um bygg ingu miðstöðvar fyr ir flótta fólk. Fundinum var aflýst vegna mótmæla þeirra sem eru and snún ir komu flótta fólks til landsins. Mótmælendur voru um tvö þúsund og skutu flugeldum í átt að lög- reglu og rifu niður girðingu fyrir utan fundarstaðinn. FréttabLaðið/EPa 1 8 . d e S e m b e r 2 0 1 5 F Ö S t U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 6 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -A 6 D 0 1 7 B B -A 5 9 4 1 7 B B -A 4 5 8 1 7 B B -A 3 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.