Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 8
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D
Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A
O G U N G M E N N A
Sölutímabil 5. - 19. desember
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Kringlunni, Skeifunni og Hörpu • Hafnarborg – Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi • Líf og list Smáralind
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi • Litla jólabúðin - Laugavegi
Módern - Hlíðarsmára • STEiNUNN – Grandagarði
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu • Blómaval - um allt land
Húsgagnahöllin - Reykjavík og Akureyri
Blóma og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum • Valrós – Akureyri
www.jolaoroinn.is
S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A
S K Y R G Á M U R
Vísar orðum forstjóra alfarið á bug
Á upplýsingafundi Landsvirkjunar í morgun vegna rafmagnssamninga
fyrirtækisins var Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, spurður um
skrif Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, um málefni
fyrirtækisins, og svaraði hann því til að upplýsingar sem Vilhjálmur byggir
á í skrifum sínum um rafmagnssamninga hljóti að koma frá Norðuráli. „Ég
hef ekki trú á að þær upplýsingar komi frá honum sjálfum. Ég tel að þær
upplýsingar sem Vilhjálmur Birgisson vitnar til komi frá fyrirtækinu. Þær
upplýsingar eru í sumum tilfellum rangar en í öðrum tilfellum mjög vill-
andi,“ sagði Hörður.
Vilhjálmur vísar því alfarið á bug að gagnrýni hans á Landsvirkjun og
rafmagnssamninga fyrirtækisins byggi að nokkru leyti á upplýsingum frá
Norðuráli. „Ég verð nú seint sakaður um að klappa forsvarsmönnum þess-
ara fyrirtækja, enda hafa þeir kvartað sáran undan mér í gegnum tíðina,“
segir Vilhjálmur.
„Þetta er alrangt. Ég fylgist vel með því sem er að gerast og skrifum um
þessi mál. Þar á meðal þeim verðum á raforku sem eru í boði í Kanada og
í Skandinavíu, Þýskalandi sem og því verði sem Landsvirkjun gefur upp að
fyrirtækjum standi til boða,“ segir Vilhjálmur og bætir við:
„Það sem ég hef áhyggjur af er atvinnuöryggi og lífsviðurværi minna
félagsmanna. Þeir eiga allt undir starfi sínu hjá þessum fyrirtækjum og það
er það sem ég er að verja.“
Hatrammlega er tekist á í samninga-
viðræðum Landsvirkjunar og Norður-
áls á Grundartanga um nýjan raforku-
samning. Forsvarsmenn Norðuráls
hafa gengið langt til að ná sínu fram,
að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra
Landsvirkjunar, sem vill líka meina að
það sé fullkomlega skiljanlegt þegar
hagsmunir í samningum um milljarða-
tugi eiga í hlut þá „beita aðilar öllum
aðferðum til að styrkja sinn málstað“,
sagði Hörður og bætti við að hvort
Norður ál væri að ganga lengra en gert
hefur verið áður í samningaviðræðum
sem þessum yrðu aðrir að meta.
Þetta kom meðal annars fram á
upplýsingafundi Landsvirkjunar í gær,
vegna raforkusamninga fyrirtækisins,
og viðræðna Landsvirkjunar um nýjan
raforkusamning við Norðurál, sem er í
eigu Century Aluminum, en núverandi
samningur rennur út árið 2019.
Eins og alþjóð veit voru raforku-
samningar Rio Tinto Alcan við Lands-
virkjun mjög til umræðu í kjaradeilu
starfsmanna álversins í Straumsvík
á síðustu vikum. Þar segir Hörður
að „utanaðkomandi aðilar hafi séð
sér hag í að blanda raforkusamningi
Landsvirkjunar og Rio Tinto Alcan inn í
umræðuna“, þrátt fyrir að fyrirtækið og
samningurinn um orku hafi ekki tengst
kjaraviðræðunum á nokkurn hátt.
Hörður játaði því á fundinum að í til-
raunum sínum til að hafa áhrif á niður-
stöðu sinna viðræðna um orkusamning
hefði Norðurál blandað kjaradeilunni í
Straumsvík inn í samningaviðræðurn-
ar, og það hefði birst í skrifum manna
sem til þessa hefðu ekki tekið þátt í
umræðu um orkumál, og þeir hefðu
verið kynntir til leiks sem ráðgjafar
Norðuráls.
„Stjórnendur Norðuráls, sem við
eigum í viðræðum við, halda mjög fast
utan um sína hagsmuni. Við höldum
á móti fast um hagsmuni okkar eig-
enda, sem er íslenska þjóðin. En það
er mikilvægt að fólk skilji að það eru
viðræður í gangi um einhverja mestu
hagsmuni sem þjóðin höndlar með;
að það skilji hvaða hagsmunir takast
þar á. Okkur er gert það upp að vilja
ekki semja við einstaka aðila. Þvert á
móti höfum við eindreginn ásetning
um að ná samningum, til dæmis við
Norðurál,“ sagði Hörður en jafnframt
að þeir samningar þyrftu að endur-
Hatrammleg átök eru
um raforkusamning
Forstjóri Landsvirkjunar segir Norðurál ganga hart fram í viðræðum um nýjan
orkusamning. Hafa nýtt sér óróa vegna kjaraviðræðna í Straumsvík. Skrif verka-
lýðsforkólfs sögð byggja á gögnum frá Norðuráli sem standist ekki skoðun.
Raforkusamningur Norðuráls og Landsvirkjunar, sem er fyrirtækinu mjög hagstæður, rennur út árið 2019. fRéttabLaðið/gva
vilhjálmur birgisson
Svavar Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
spegla það umhverfi sem er í dag en
ekki eins og það var fyrir 20 árum. Þar
vísar Hörður til samnings Norðuráls
frá 1996, sem er álframleiðandanum
mjög hagstæður.
Hörður lagði mikla áherslu á að raf-
orkusamningar Landsvirkjunar væru
meðal stærstu samninga sem gerðir eru
í íslensku viðskiptalífi, og mótaðilarnir
gættu sinna hagsmuna af mikilli festu
og gerðu fá, ef einhver mistök, við slíka
samningagjörð. Verðmæti samninga
Landsvirkjunar gæti numið 500 til 600
milljörðum á aðeins 10 ára tímabili.
Samanlagt verðmæti þeirra væri því
sambærilegt við samninga við kröfu-
hafa föllnu viðskiptabankanna þriggja.
Stjórnendur
Norður áls, sem við
eigum í viðræðum við, halda
mjög fast utan um sína
hagsmuni. Við höldum á
móti fast um hagsmuni
okkar eigenda, sem er
íslenska þjóðin.
Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar
Hörður arnarson
Sakamál Tveir bræður á aldrinum
36 og 39 ára og 27 ára gömul systir
þeirra hafa verið dæmd fyrir mansal
gegn samlöndum sínum og hótanir í
Danmörku. Systkinin, sem eru rúm-
ensk, fengu hvert fimm ára fangelsis-
dóm og verður að afplánun lokinni
vísað burt úr Danmörku. Dómurinn
féll í dómstól Hillerød á þriðjudag.
Um er að ræða eitt umfangsmesta
mansalsmál í sögu danskra yfirvalda
en rannsókn þess hófst í júní 2014.
Systkinin eru dæmd fyrir að hafa
lokkað fjölda einstaklinga frá Rúm-
eníu til landsins með loforðum um
atvinnu og komið þeim fyrir í hús-
næði í Danmörku. Í framhaldi sóttu
hinir ákærðu um kennitölur og
nýttu til ýmissa svika. Þau létu Rúm-
enana til að mynda sækja um lán
og kaupa ýmsan varning á afborg-
unum. Svikin nema meira en nítján
milljónum íslenskra króna. – kbg
Systkin fengu mansalsdóm
Í héraðsdómi í Hillerød.
1 8 . d e S e m b e r 2 0 1 5 F Ö S T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-B
A
9
0
1
7
B
B
-B
9
5
4
1
7
B
B
-B
8
1
8
1
7
B
B
-B
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K