Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 10

Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 10
Tilboðsverð gilda frá 18. desember, til og með 20.desember. Landakort úr efni | Pin The World Stórt Vildarverð: 6.749 | Verð: 8.999.- Lítið Vildarverð: 4.649 | Verð: 6.199.- Alþingi Til átaka kom á Alþingi í gær þegar minnihlutinn á þingi lagði til breytingartillögu um dag­ skrá þingsins. Vildi stjórnarminni­ hlutinn setja húsnæðisfrumvarp Eyglóar Harðardóttur framar á dagskrá. Meirihlutinn vildi meina að þetta væru svik við gert sam­ komulag milli stjórnar og stjórnar­ andstöðu. Til stóð að halda þriðju og síðustu umræðu um frumvarp Gunnars Braga Sveinssonar sem miðar að því að leggja niður Þróunarsam­ vinnustofnun Íslands. Minnihlut­ inn á þingi hefur harðlega mót­ mælt fyrirhuguðum breytingum á málaflokknum. Hafa umræður um það mál staðið í heild í yfir 40 klukkustundir á þingi, eða lengst allra mála ef fjárlagafrumvarpið er undanskilið. „Ástæða þessarar tillögu er sú að nú er farið að sneyðast um tíma í þingstörfum og þá setur stjórnar­ meirihlutinn á dagskrá mál sem skiptir í sjálfu sér engu sérstöku máli hvort afgreiðist einum mán­ uðinum fyrr eða seinna, á sama tíma og brýn mál bíða umræðu og úrlausnar,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, í umræðum um atkvæðagreiðsluna. „Nú eftir tveggja og hálfs árs bið er loksins farið að glitta í að ríkisstjórnin leggi eitthvað til í húsnæðis málum og það bíður hér umræðu frumvarp um húsnæðis­ bætur,“ bætti Árni við. Ásmundur Einar Daðason, þing­ flokksformaður Framsóknarflokks­ ins, sagði í ræðu þetta vera hrein svik við það samkomulag sem hafði verið gert við stjórnarandstöðuna sem má rekja aftur til síðasta þings. „Það var samkomulag um að klára þau fyrir október. Síðan var gert Sakar þingminnihluta um svik Samkomulagi á að hafa verið náð milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að ljúka umræðum um Þróunar- samvinnustofnun Íslands. Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra kallaði umræðu í þinginu firringu. Hart er deilt á Alþingi síðustu dagana fyrir jólafrí. FréttAblAðið/Ernir Nú eftir tveggja og hálfs árs bið er loksins farið að glitta í að ríkisstjórnin leggi eitthvað til í húsnæðismál- um. Árni Páll Árnason formaður Sam- fylkingarinnar Heilbrigðismál Skæð nóróveira, eða gubbupest, hefur herjað á lands­ menn síðastliðnar vikur eins og eflaust margir hafa tekið eftir. Þetta staðfestir Landlæknisembættið. Uppköst og niðurgangur af völd­ um nóróveira kemur upp reglulega á haustin og erfiðlega gengur jafnan að halda henni niðri. Ástæðan er að veiran er bráðsmitandi og er áfram smitandi í tvo til þrjá sólarhringa eftir veikindi. Á heimasíðu Land­ læknisembættisins kemur fram að í svæsnustu tilfellum geti veiran jafnvel smitað tíu dögum eftir ein­ kenni. – snæ Nóróveira herjar á landann samkomulag um að klára málið á haustþingi og við vinnslu máls­ ins var einnig samkomulag um að málið kæmi til þings að lokinni ann­ arri umræðu fjárlaga. Því er hátt­ virtur þingmaður, Árni Páll Árna­ son, ekki að brjóta það samkomulag einu sinni, ekki tvisvar heldur nú í þriðja sinn,“ sagði Ásmundur Einar. Umræður um tillöguna stóðu í rúma klukkustund áður en atkvæðagreiðslan fór fram. Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra tók þessa umræðu nærri sér og sagði virðingu Alþingis gjalda fyrir umræðuna. „Ég finn til með að þurfa að sitja undir þessari klukkustundar óþarfa umræðu um það mál sem kom þó fyrst til umræðu hér í haust,“ sagði Sigrún. „Þessi firring sem hefur átt sér stað síðastliðinn klukkutíma er það sem setur virðingu Alþingis niður.“ sveinn@frettabladid.is neYTenDUr Eftir 20 ár verður hægt að gæða sér á kjötbollum úr skor­ dýrum, þörungum, afgöngum og grænmeti. Þessu spá starfsmenn Space 10 á vegum IKEA sem spá í framtíðina. Gengið var út frá því að finna þurfi nýjar aðferðir við matvæla­ framleiðslu vegna fjölgunar mann­ kyns og neikvæðra áhrifa kjötfram­ leiðslu á vistkerfið. Kjötbollur sé að finna í menningu flestra og niður­ staðan var matseðill með kjötlaus­ um kjötbollum. – ibs Skordýr í kjötbollum Framtíðarsérfræðingar iKEA spá því að kjötbollur verði gerðar úr skordýrum. nOrDiCPHOtOS/GEttY FerðAþjónUsTA Gera má ráð fyrir að ellefu þúsund ferðamenn verði á landinu yfir hátíðarnar, samkvæmt spám Samtaka ferðaþjónustunnar. Stefán Júlíusson, aðstoðarhótel­ stjóri Grand Hótels, segir að upp­ bókað sé um áramótin. „Ég myndi ekki segja að það væri fullt um jólin en við erum bara mjög ánægð og hissa á því hvað það er vel bókað hjá okkur.“ Bláa lónið er sömuleiðis orðið fullbókað á gamlársdag og nýársdag, að sögn Magneu Guðmundsdóttur upplýsingafulltrúa. Eitthvað hefur borið á því að erfiðlega gangi að manna vaktir yfir hátíðarnar. „Yfir hátíðarnar er lítil breyting á ferðaframboði fyrir­ tækisins en eini dagurinn þar sem er lokað er eftir hádegi á aðfanga­ dag fram til hádegis á jóladag,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarfor­ maður ferðaþjónustufyrirtækisins Gray Line. Helga Árnadóttir, framkvæmda­ stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nokkuð vel gangi að manna vaktir. „Eftir því sem ferðaþjónustan er að þróast út í að verða heilsárs­ atvinnugrein eiga fyrirtækin auð­ veldara með að manna störf fram í tímann.“ – snæ Allt að fyllast yfir hátíðarnar Ferðamenn verða ellefu þúsund yfir hátíðarnar. Margir eru komnir til að fagna nýju ári. FréttAblAðið/StEFán Helga árnadóttir upplýsingafulltrui bláa lónsins sAmFélAg „Ein tillagan sem við höfum rætt er að hjálparsími Rauða krossins verði sá staður sem þol­ endur mansals geti hringt í og meðal annars fengið leiðbeiningar um hvert þeir eigi að leita,“ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar­ og mannúðarsviðs Rauða kross Íslands, sem er í landsnefnd um mannúðar­ rétt undir forystu utanríkisráðu­ neytis. Landsnefndin sá um að koma með tillögur að fjórum skuldbindingum á sviði mannréttinda­ og mannúðar­ mála sem íslensk stjórnvöld og Rauði kross Íslands hafa nú skuldbundið sig til að vinna að. Ein skuldbindinganna var aðstoð við þolendur mansals á Íslandi. Lítil sem engin úrræði eru í boði í málaflokknum hér á landi. Heitin voru undirrituð á alþjóðlega mannréttindadeginum og afmælis­ degi Rauða krossins í síðustu viku. „Nú höfum við skuldbundið okkur til að vinna í þessum málum. Ein hug­ myndin er sú að hjálparsíminn yrði eins konar gátt fyrir þolendur man­ sals og myndi starfsfólk og sjálfboða­ liðar Rauða krossins þekkja hvernig eigi að vinna úr símtölum sem inn koma og vísa málum í réttan farveg,“ segir Atli Ríkisstjórnin samþykkti í síðustu viku að verja fimm milljónum króna í kostnað við framkvæmd skuldbind­ inganna. Að sögn Atla gæti hluti þess fjár verið notaður til að greiða fyrir útvíkkað hlutverk hjálparsímans. „Það á þó eftir að útfæra þessa skuldbindingu nánar en það má alveg gera ráð fyrir því að hluti af þessum peningum færi til hjálpar­ símans meðal annars til að aðlaga þjónustuna að þessu nýja hlutverki.“ Að sögn Atla Viðars þyrfti að aug­ lýsa hjálparsímann. Það yrði gert meðal annars með því að setja upp auglýsingar á nokkrum tungumálum þar sem líklegast er að möguleg fórn­ arlömb sjái auglýsinguna. Í því sam­ hengi hafi verið rætt um að setja upp auglýsingar í Leifsstöð. „Leggja þyrfti áherslu á sýnileika og að auglýsingin væri í senn skýr og einföld. Það þarf að leggja mikla áherslu á þjálfun og fræðslu til allra sem koma að málaflokknum til að tryggja sem bestu upplýsingar og aðstoð við fórnarlömb mansals,“ segir Atli Viðar. – ngy Hjálparsími hugsanlegt úrræði fyrir mansalsfórnarlömb Atli Viðar thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs rauða kross Íslands. FréttAblAðið/GVA 1 8 . D e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U D A g U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T A b l A ð i ð 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -C E 5 0 1 7 B B -C D 1 4 1 7 B B -C B D 8 1 7 B B -C A 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.