Fréttablaðið - 18.12.2015, Side 20
Vertu velkominn í jólahús Nettó
í Mjódd, Granda, Akureyri, Selfossi,
Egilsstöðum og Reykjanesbæ
Opnunartímar Jólahúss Nettó:
17. - 23. des
12:00 - 22:00
24. des
10:00 - 12:00
Virkir dagar
12:00 - 19:00
Helgar
12:00 - 18:00
Jólahús Nettó
visir.is Viðtalið má hlusta á
í lengri útgáfu inni á Vísi,
í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið.
bjóða upp á innri frið í heimi fullum
af streitu?
„Þegar sem mest gekk á í kirkjunni
bjó ég vestur á fjörðum. Maður las um
allt í fjölmiðlum. Það var einhver allt
önnur kirkja sem ég las um. Mín upp-
lifun er sú að það hafi verið barið svo-
lítið á kirkjunni. Á tímabili leið manni
eins og maður væri með holdsveiki eða
smitandi sjúkdóm – varð óöruggur. Við
þjónar kirkjunnar vissum ekki alveg
okkar stöðu í samfélaginu. Við vissum
okkar stöðu í kirkjunni og söfnuðinum
en þar fyrir utan vissum við ekki alveg.
Þegar maður er óöruggur er auðveldara
að berja á manni. Maður getur ekki
varið sig. Ég bind vonir við það að við
séum að komast upp úr þessu eins og
þjóðin. Við getum farið að koma fram
sem sterk kirkja. Boðskapurinn sem
við erum að flytja er frábær.“
Margir páfar – margar raddir
Þjóðkirkjan hefur legið undir ámæli
fyrir að taka ekki þátt í umræðu um
þjóðfélagsmál. Eigið þið ekki að vera
rödd mannréttinda og samkenndar?
„Jú, við eigum að vera það. Kannski
er vandi kirkjunnar að lútherska
kirkjan er öðruvísi en rómversk kaþ-
ólska kirkjan. Ef páfinn talar er kirkjan
að tala. Hjá okkur eru margir páfar –
margir sem tala. Á samfélagsmiðlum
eru prestar og leikmenn að taka þátt í
umræðu. Það vantar kannski að kirkj-
an sé að láta í sér heyra sem stofnun.
Það er eitthvað sem við þurfum að
taka til okkar. Hins vegar er það þegar
mál eru í gangi eins og til að mynda
flóttamannamálin, þá hefur prestur
innflytjenda starfað mikið með hælis-
leitendum á Íslandi og er mjög vel að
sér í málefnum þeirra.“
Agnes segir að starfandi sé þjóð-
málanefnd hjá kirkjunni sem hafi
verið misvirk. Nefndin hafi verið virk
undanfarið ár og m.a. staðið fyrir
ráðstefnu um flóttamannamál. Ráð-
stefnan hafi ekki náð eyrum fjölmiðla.
Ættir þú sem biskup þá ekki að láta
í þér heyra?
„Jú, örugglega. Fyrir hrun voru þrír
í fjölmiðlamálum á Biskupsstofu. Eftir
hrunið var einn eftir – sá er búinn að
vera frá störfum í nokkra mánuði.
Það stendur til bóta. En þetta er rétt.
Kirkjan þarf að sýna frumkvæði. Ekki
vera alltaf að bregðast við.“
Við sem störfum á fjölmiðlum
finnum að prestar og aðrir sem starfa
í kirkjunum finnst umfjöllun um kirkj-
una ómakleg. Er ekki eðlilegt að menn
velti fyrir sér tilvist stofnana sem fá
greitt úr sameiginlegum sjóðum?
„Menn hafa sínar skoðanir á því sem
og öðru. Ég undrast stundum hvað
margir hafa áhuga á kirkjunni með því
að kalla eftir viðbrögðum hennar. Það
segir mér að áhuginn er fyrir hendi.
Fólk vill að kirkjan taki þátt og við
þurfum að standa okkur betur.“
Sniðugir zúistar
Í lok nóvember skráðu rúmlega
þúsund manns sig úr þjóðkirkjunni
og í félag zúista, sem ætlar að endur-
greiða fólki sóknargjöld. „Ég hef enga
skoðun á nýjum félögum. Ég verð að
viðurkenna að ég setti mig ekki mikið
inn í þetta mál. En þetta er mjög snið-
ugt hjá þeim. Þetta er klárt fólk, bráð-
sniðugt. Það sér þarna möguleika á
því að fá fjármagn frá ríkinu.“
Vegna zúista varð kirkjan af ellefu
milljónum í sóknargjöld. „Það er aga-
legt fyrir söfnuði og sóknir landsins.“
Prestar hafa líka tilfinningar
Agnes segir starf presta fjölþætt. Þeir
séu hjá fólki á erfiðustu stundunum.
Hún segir það oft taka á en flestir fari
í handleiðslu. „Prestar eru mann-
eskjur sem hafa sömu tilfinningar og
allir aðrir,“ segir hún og nefnir dæmi
um atburð sem fékk á hana í starfi.
„Einu sinni lést ungur maður sem
ég hafði fermt nokkrum árum áður.
Frænka hans kom til mín og ég varð
slegin yfir þessum fréttum. Hún sagði:
„Þú, presturinn, tekur þetta svona
nærri þér?“ Þá fór ég að velta fyrir mér
hvort fólk héldi að maður tæki þetta
ekki nærri sér.“
Agnes segir margt hafa breyst. Áður
fyrr var ekki spáð í það að prestar
ynnu úr því sem þeir tækjust á við.
„Ef ég tek pabba sem dæmi, sem var
prestur á Ísafirði í áratugi. Þegar ég var
barn var mikið um sjóslys sem reyndu
á allt samfélagið. Ég hef stundum
hugsað í seinni tíð að hann gekk einn
í gegnum þetta sem presturinn í pláss-
inu. Nú er farið að halda miklu betur
utan um þessi mál. Líka til þess að
prestar verði færari um að vera öðrum
styrkur og hjálp. Það segir sig sjálft að
ef prestur er niðurbrotinn getur hann
ekki mikið gefið af sér. Auðvitað er það
samt þannig í missi og sorg að sá sem
er að missa á erfiðast, ekki prestarnir.“
Aldrei upplifað annað eins
Agnes var prestur í Bolungarvík í 18
ár. Þar þjónaði hún þegar snjóflóðin
á Flateyri og Súðavík féllu. Hún segir
það hafa verið erfiðan tíma. „Ég er alin
upp á Ísafirði milli hárra fjalla sem
áttu að vernda mann fyrir öllu illu.
Maður skildi þetta ekki. Fjöllin sem
áttu að vernda mann fyrir öllu illu
sendu flóð niður og fólk lét lífið. Og
allar þær hörmungar sem þetta hafði
í för með sér. Fyrir mig, hafandi alist
upp við þessar aðstæður, var þetta
líka sjokk að vita að þetta gæti gerst.
Þó auðvitað sé heimskulegt að halda
að það komi ekki snjóflóð af fjöllum.“
Agnes minnist óveðursins þegar
snjóflóðið féll á Súðavík. „Það kom
svo rosalegt veður að ég hef aldrei
upplifað annað eins. Ef maður fór út
náði maður ekki andanum – það var
svo hvasst. Rafmagnið fór og símkerfið
datt út. Maður átti batterí í útvarpið og
gat fengið smá samband og heyrt frétt-
ir, annars hefði maður orðið vitlaus.“
Áður en símkerfið datt út hafði verið
hringt í viðbragðsaðila, Agnesi þar
á meðal. „Við vorum föst. Komumst
ekkert en vorum í viðbragðsstöðu.
Björgunarsveitarmenn fóru niður í
björgunarhús en komust ekki lengra.
Fólkið þeirra heima sat í myrkrinu og
hélt þeir væru farnir í Súðavík sem var
ekki. Við vorum lokuð inni,“ segir hún
alvarleg. „Þetta var sérstök upplifun,
það er ekkert hægt að lýsa því öðruvísi.“
Deyjum við í nótt?
Þegar flóðið féll á Flateyri níu mán-
uðum síðar var ekki eins vont veður
og Agnes komst á Ísafjörð þar sem hún
sinnti sálgæslu.
Er hægt að koma því í orð hvernig
það var að vera starfandi prestur á
þessum tíma?
„Í minningunni var ég starfandi öll
kvöld fram á vor í viðtölum. Fólk hafði
orðið fyrir svo miklum áföllum.“
Þetta hafi reynt mikið á samfélögin
fyrir vestan. Sjálf átti hún börn á
grunnskólaaldri. „Þau spurðu stund-
um á kvöldin: Kemur snjóflóð, deyjum
við í nótt? Mín börn voru ekkert ein
um þetta. Svona var þetta í hverju húsi.
Þetta hafði mikil áhrif. Þetta kenndi
þjóðinni og okkur öllum heilmikið.
Lét okkur hugsa upp á nýtt,“ segir hún
og bendir á snjóflóðavarnir sem settar
hafi verið upp í kjölfarið.
Karlaveldi
Agnes var vígð til prests árið 1981,
þriðji íslenski kvenpresturinn.
Var erfitt að stíga inn í þetta karla-
veldi?
„Ég ákvað snemma að verða
prestur. Ég var ekki að velta fyrir mér
hvort ég væri strákur eða stelpa. Auð-
vitað var þetta karlaveldi og er enn
að sumu leyti. Maður veltir stundum
fyrir sér hvort hefði verið betra að
hafa verið af hinu kyninu í sumum
aðstæðum. Einhverjir gætu sagt að
þetta sé vitleysa, en ég ætla að segja
það samt: Stundum veltir maður fyrir
sér hvort væri talað svona til mín ef
ég væri karl,“ segir hún.
„Það er alltaf erfitt að fullyrða um
hlutina út frá þessu. Ef lífið væri þannig
að ég gæti brugðið mér í líki karlmanns
þá hefði maður algjöran samanburð.
En þetta er tilfinning. Það er til dæmis
þannig að karlar eru duglegir að vitna
í aðra karla. Þeir segja: „Eins og Jón
sagði.“ En ef kona segir nákvæmlega
sama hlutinn þá er ekki sagt: „Eins og
hún Jóna sagði,“ heldur eru hlutirnir
bara endurteknir og gerðir að sínu.“
Er þetta eitthvað sem þú upplifir
innan kirkjunnar?
„Ég bara tek eftir þessu,“ segir hún
leyndardómsfull og tekur fram að hún
sé ekki að kvarta.
Borið á sundurlyndi
Í setningarræðu sinni á Kirkjuþingi
talaði Agnes um að hún teldi sig hafa
mætt vantrausti í störfum sínum í
kirkjuráði sem hún taldi ómálefna-
legt og ómaklegt.
Geturðu sagt okkur frá þessum
deilum?
„Þær snúast um annan skilning
hinna kjörnu fulltrúa á kirkjuþingi og
minn. Minn skilningur er sá sem hefur
verið undanfarin ár í kirkjunni. Það er
verið að taka á því. Við erum að fara í
gegnum lög og reglur með hjálp lög-
fræðinga. Ég hlíti því sem fram kemur
hjá lögfræðingum.“
Á kirkjuþingi talaði Agnes líka um
sundurlyndi innan kirkjunnar. „Menn
geta haft skoðanir á hlutunum og það
eru ekki allir með sömu skoðanir,
eðlilega. Það væri lítið gaman að vera
lifandi manneskja ef allir væru sömu
skoðunar. Sundurlyndi er komið á
annað stig, þegar menn eru ekki að
ræða saman og finna niðurstöðu held-
ur að vinna gegn hver öðrum. Því finnst
mér hafa borið á innan kirkjunnar og
það vildi ég orða. Orð eru til alls fyrst.
Það er erfitt að heyra þetta. Ég þurfti að
hugsa mig um þegar ég ákvað að segja
þetta. Þetta er mín skoðun og eitthvað
sem við þurfum að laga. Þetta er ekki
í boði. Það er í boði að hafa skoðanir,
og ef maður hefur ekki sömu skoðun
þá talar maður sig niður á niðurstöðu.“
Hvernig var þessu tekið?
„Vel og illa. Sumum fannst gott að
ég skyldi orða þetta. Öðrum fannst ég
hafa skaðað kirkjuna með því að segja
þetta upphátt á opinberum vettvangi.“
Almar í kassanum er nútíminn
Eimir eftir af gamla tímanum, fólk vilji
ekki að talað sé um hlutina opinskátt?
„Já. Ég held að það hafi verið mjög
ríkt hjá okkur að tala ekki um hlut-
ina. Ég man þegar ég var krakki þá
var oft sagt, maður á ekki að tala um
þetta, maður á bara að geyma þetta
með sér. Og auðvitað er það góð
regla líka, nútíminn er þannig að
það er allt uppi á borðinu. Við sáum
það um daginn hjá listnemanum í
kassanum. Það er nútíminn. Þetta
er alltaf spurning um hvað maður
gengur langt.“
Er þín stefna öðruvísi en fyrirrennar-
anna?
„Ég veit það ekki. Það er erfitt að
bera sig saman. Allir biskupar hafa gert
gott. Eins og biskup í sænsku kirkjunni
sagði við mig: Það er ekkert erfitt að
vera biskup – allir sögðu að væri svo
erfitt að vera biskup en það er bara létt,
vegna þess að ég er kona. Ég þarf ekki
að ganga inn í allar hefðirnar. Ef ég væri
karl hefði ég kannski þurft þess og ég
hef oft hugsað um þessi orð. Kannski
getur maður í krafti þess að maður er
af öðru kyni en allir þeir 110 á undan
mér, gert hlutina öðruvísi. En fyrst og
fremst er ég meðvituð um að ég ber
ábyrgð, en ég er bara ég.“
Agnes segist stundum hafa velt því fyrir sér hvort talað væri við hana á annan hátt ef hún væri karl. FréttABlAðið/VilhleM
Á tímabili leið manni eins og maður væri með
holdsveiki eða smitandi sjúkdóm – varð óöruggur.
Við þjónar kirkjunnar vissum ekki alveg okkar stöðu í
samfélaginu. Við vissum okkar stöðu í kirkjunni og söfnuð-
inum en þar fyrir utan vissum við ekki alveg.
↣
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r20 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-7
A
6
0
1
7
B
B
-7
9
2
4
1
7
B
B
-7
7
E
8
1
7
B
B
-7
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K