Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.12.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 18.12.2015, Qupperneq 20
Vertu velkominn í jólahús Nettó í Mjódd, Granda, Akureyri, Selfossi, Egilsstöðum og Reykjanesbæ Opnunartímar Jólahúss Nettó: 17. - 23. des 12:00 - 22:00 24. des 10:00 - 12:00 Virkir dagar 12:00 - 19:00 Helgar 12:00 - 18:00 Jólahús Nettó visir.is Viðtalið má hlusta á í lengri útgáfu inni á Vísi, í hlaðvarpinu Föstudagsviðtalið. bjóða upp á innri frið í heimi fullum af streitu? „Þegar sem mest gekk á í kirkjunni bjó ég vestur á fjörðum. Maður las um allt í fjölmiðlum. Það var einhver allt önnur kirkja sem ég las um. Mín upp- lifun er sú að það hafi verið barið svo- lítið á kirkjunni. Á tímabili leið manni eins og maður væri með holdsveiki eða smitandi sjúkdóm – varð óöruggur. Við þjónar kirkjunnar vissum ekki alveg okkar stöðu í samfélaginu. Við vissum okkar stöðu í kirkjunni og söfnuðinum en þar fyrir utan vissum við ekki alveg. Þegar maður er óöruggur er auðveldara að berja á manni. Maður getur ekki varið sig. Ég bind vonir við það að við séum að komast upp úr þessu eins og þjóðin. Við getum farið að koma fram sem sterk kirkja. Boðskapurinn sem við erum að flytja er frábær.“ Margir páfar – margar raddir Þjóðkirkjan hefur legið undir ámæli fyrir að taka ekki þátt í umræðu um þjóðfélagsmál. Eigið þið ekki að vera rödd mannréttinda og samkenndar? „Jú, við eigum að vera það. Kannski er vandi kirkjunnar að lútherska kirkjan er öðruvísi en rómversk kaþ- ólska kirkjan. Ef páfinn talar er kirkjan að tala. Hjá okkur eru margir páfar – margir sem tala. Á samfélagsmiðlum eru prestar og leikmenn að taka þátt í umræðu. Það vantar kannski að kirkj- an sé að láta í sér heyra sem stofnun. Það er eitthvað sem við þurfum að taka til okkar. Hins vegar er það þegar mál eru í gangi eins og til að mynda flóttamannamálin, þá hefur prestur innflytjenda starfað mikið með hælis- leitendum á Íslandi og er mjög vel að sér í málefnum þeirra.“ Agnes segir að starfandi sé þjóð- málanefnd hjá kirkjunni sem hafi verið misvirk. Nefndin hafi verið virk undanfarið ár og m.a. staðið fyrir ráðstefnu um flóttamannamál. Ráð- stefnan hafi ekki náð eyrum fjölmiðla. Ættir þú sem biskup þá ekki að láta í þér heyra? „Jú, örugglega. Fyrir hrun voru þrír í fjölmiðlamálum á Biskupsstofu. Eftir hrunið var einn eftir – sá er búinn að vera frá störfum í nokkra mánuði. Það stendur til bóta. En þetta er rétt. Kirkjan þarf að sýna frumkvæði. Ekki vera alltaf að bregðast við.“ Við sem störfum á fjölmiðlum finnum að prestar og aðrir sem starfa í kirkjunum finnst umfjöllun um kirkj- una ómakleg. Er ekki eðlilegt að menn velti fyrir sér tilvist stofnana sem fá greitt úr sameiginlegum sjóðum? „Menn hafa sínar skoðanir á því sem og öðru. Ég undrast stundum hvað margir hafa áhuga á kirkjunni með því að kalla eftir viðbrögðum hennar. Það segir mér að áhuginn er fyrir hendi. Fólk vill að kirkjan taki þátt og við þurfum að standa okkur betur.“ Sniðugir zúistar Í lok nóvember skráðu rúmlega þúsund manns sig úr þjóðkirkjunni og í félag zúista, sem ætlar að endur- greiða fólki sóknargjöld. „Ég hef enga skoðun á nýjum félögum. Ég verð að viðurkenna að ég setti mig ekki mikið inn í þetta mál. En þetta er mjög snið- ugt hjá þeim. Þetta er klárt fólk, bráð- sniðugt. Það sér þarna möguleika á því að fá fjármagn frá ríkinu.“ Vegna zúista varð kirkjan af ellefu milljónum í sóknargjöld. „Það er aga- legt fyrir söfnuði og sóknir landsins.“ Prestar hafa líka tilfinningar Agnes segir starf presta fjölþætt. Þeir séu hjá fólki á erfiðustu stundunum. Hún segir það oft taka á en flestir fari í handleiðslu. „Prestar eru mann- eskjur sem hafa sömu tilfinningar og allir aðrir,“ segir hún og nefnir dæmi um atburð sem fékk á hana í starfi. „Einu sinni lést ungur maður sem ég hafði fermt nokkrum árum áður. Frænka hans kom til mín og ég varð slegin yfir þessum fréttum. Hún sagði: „Þú, presturinn, tekur þetta svona nærri þér?“ Þá fór ég að velta fyrir mér hvort fólk héldi að maður tæki þetta ekki nærri sér.“ Agnes segir margt hafa breyst. Áður fyrr var ekki spáð í það að prestar ynnu úr því sem þeir tækjust á við. „Ef ég tek pabba sem dæmi, sem var prestur á Ísafirði í áratugi. Þegar ég var barn var mikið um sjóslys sem reyndu á allt samfélagið. Ég hef stundum hugsað í seinni tíð að hann gekk einn í gegnum þetta sem presturinn í pláss- inu. Nú er farið að halda miklu betur utan um þessi mál. Líka til þess að prestar verði færari um að vera öðrum styrkur og hjálp. Það segir sig sjálft að ef prestur er niðurbrotinn getur hann ekki mikið gefið af sér. Auðvitað er það samt þannig í missi og sorg að sá sem er að missa á erfiðast, ekki prestarnir.“ Aldrei upplifað annað eins Agnes var prestur í Bolungarvík í 18 ár. Þar þjónaði hún þegar snjóflóðin á Flateyri og Súðavík féllu. Hún segir það hafa verið erfiðan tíma. „Ég er alin upp á Ísafirði milli hárra fjalla sem áttu að vernda mann fyrir öllu illu. Maður skildi þetta ekki. Fjöllin sem áttu að vernda mann fyrir öllu illu sendu flóð niður og fólk lét lífið. Og allar þær hörmungar sem þetta hafði í för með sér. Fyrir mig, hafandi alist upp við þessar aðstæður, var þetta líka sjokk að vita að þetta gæti gerst. Þó auðvitað sé heimskulegt að halda að það komi ekki snjóflóð af fjöllum.“ Agnes minnist óveðursins þegar snjóflóðið féll á Súðavík. „Það kom svo rosalegt veður að ég hef aldrei upplifað annað eins. Ef maður fór út náði maður ekki andanum – það var svo hvasst. Rafmagnið fór og símkerfið datt út. Maður átti batterí í útvarpið og gat fengið smá samband og heyrt frétt- ir, annars hefði maður orðið vitlaus.“ Áður en símkerfið datt út hafði verið hringt í viðbragðsaðila, Agnesi þar á meðal. „Við vorum föst. Komumst ekkert en vorum í viðbragðsstöðu. Björgunarsveitarmenn fóru niður í björgunarhús en komust ekki lengra. Fólkið þeirra heima sat í myrkrinu og hélt þeir væru farnir í Súðavík sem var ekki. Við vorum lokuð inni,“ segir hún alvarleg. „Þetta var sérstök upplifun, það er ekkert hægt að lýsa því öðruvísi.“ Deyjum við í nótt? Þegar flóðið féll á Flateyri níu mán- uðum síðar var ekki eins vont veður og Agnes komst á Ísafjörð þar sem hún sinnti sálgæslu. Er hægt að koma því í orð hvernig það var að vera starfandi prestur á þessum tíma? „Í minningunni var ég starfandi öll kvöld fram á vor í viðtölum. Fólk hafði orðið fyrir svo miklum áföllum.“ Þetta hafi reynt mikið á samfélögin fyrir vestan. Sjálf átti hún börn á grunnskólaaldri. „Þau spurðu stund- um á kvöldin: Kemur snjóflóð, deyjum við í nótt? Mín börn voru ekkert ein um þetta. Svona var þetta í hverju húsi. Þetta hafði mikil áhrif. Þetta kenndi þjóðinni og okkur öllum heilmikið. Lét okkur hugsa upp á nýtt,“ segir hún og bendir á snjóflóðavarnir sem settar hafi verið upp í kjölfarið. Karlaveldi Agnes var vígð til prests árið 1981, þriðji íslenski kvenpresturinn. Var erfitt að stíga inn í þetta karla- veldi? „Ég ákvað snemma að verða prestur. Ég var ekki að velta fyrir mér hvort ég væri strákur eða stelpa. Auð- vitað var þetta karlaveldi og er enn að sumu leyti. Maður veltir stundum fyrir sér hvort hefði verið betra að hafa verið af hinu kyninu í sumum aðstæðum. Einhverjir gætu sagt að þetta sé vitleysa, en ég ætla að segja það samt: Stundum veltir maður fyrir sér hvort væri talað svona til mín ef ég væri karl,“ segir hún. „Það er alltaf erfitt að fullyrða um hlutina út frá þessu. Ef lífið væri þannig að ég gæti brugðið mér í líki karlmanns þá hefði maður algjöran samanburð. En þetta er tilfinning. Það er til dæmis þannig að karlar eru duglegir að vitna í aðra karla. Þeir segja: „Eins og Jón sagði.“ En ef kona segir nákvæmlega sama hlutinn þá er ekki sagt: „Eins og hún Jóna sagði,“ heldur eru hlutirnir bara endurteknir og gerðir að sínu.“ Er þetta eitthvað sem þú upplifir innan kirkjunnar? „Ég bara tek eftir þessu,“ segir hún leyndardómsfull og tekur fram að hún sé ekki að kvarta. Borið á sundurlyndi Í setningarræðu sinni á Kirkjuþingi talaði Agnes um að hún teldi sig hafa mætt vantrausti í störfum sínum í kirkjuráði sem hún taldi ómálefna- legt og ómaklegt. Geturðu sagt okkur frá þessum deilum? „Þær snúast um annan skilning hinna kjörnu fulltrúa á kirkjuþingi og minn. Minn skilningur er sá sem hefur verið undanfarin ár í kirkjunni. Það er verið að taka á því. Við erum að fara í gegnum lög og reglur með hjálp lög- fræðinga. Ég hlíti því sem fram kemur hjá lögfræðingum.“ Á kirkjuþingi talaði Agnes líka um sundurlyndi innan kirkjunnar. „Menn geta haft skoðanir á hlutunum og það eru ekki allir með sömu skoðanir, eðlilega. Það væri lítið gaman að vera lifandi manneskja ef allir væru sömu skoðunar. Sundurlyndi er komið á annað stig, þegar menn eru ekki að ræða saman og finna niðurstöðu held- ur að vinna gegn hver öðrum. Því finnst mér hafa borið á innan kirkjunnar og það vildi ég orða. Orð eru til alls fyrst. Það er erfitt að heyra þetta. Ég þurfti að hugsa mig um þegar ég ákvað að segja þetta. Þetta er mín skoðun og eitthvað sem við þurfum að laga. Þetta er ekki í boði. Það er í boði að hafa skoðanir, og ef maður hefur ekki sömu skoðun þá talar maður sig niður á niðurstöðu.“ Hvernig var þessu tekið? „Vel og illa. Sumum fannst gott að ég skyldi orða þetta. Öðrum fannst ég hafa skaðað kirkjuna með því að segja þetta upphátt á opinberum vettvangi.“ Almar í kassanum er nútíminn Eimir eftir af gamla tímanum, fólk vilji ekki að talað sé um hlutina opinskátt? „Já. Ég held að það hafi verið mjög ríkt hjá okkur að tala ekki um hlut- ina. Ég man þegar ég var krakki þá var oft sagt, maður á ekki að tala um þetta, maður á bara að geyma þetta með sér. Og auðvitað er það góð regla líka, nútíminn er þannig að það er allt uppi á borðinu. Við sáum það um daginn hjá listnemanum í kassanum. Það er nútíminn. Þetta er alltaf spurning um hvað maður gengur langt.“ Er þín stefna öðruvísi en fyrirrennar- anna? „Ég veit það ekki. Það er erfitt að bera sig saman. Allir biskupar hafa gert gott. Eins og biskup í sænsku kirkjunni sagði við mig: Það er ekkert erfitt að vera biskup – allir sögðu að væri svo erfitt að vera biskup en það er bara létt, vegna þess að ég er kona. Ég þarf ekki að ganga inn í allar hefðirnar. Ef ég væri karl hefði ég kannski þurft þess og ég hef oft hugsað um þessi orð. Kannski getur maður í krafti þess að maður er af öðru kyni en allir þeir 110 á undan mér, gert hlutina öðruvísi. En fyrst og fremst er ég meðvituð um að ég ber ábyrgð, en ég er bara ég.“ Agnes segist stundum hafa velt því fyrir sér hvort talað væri við hana á annan hátt ef hún væri karl. FréttABlAðið/VilhleM Á tímabili leið manni eins og maður væri með holdsveiki eða smitandi sjúkdóm – varð óöruggur. Við þjónar kirkjunnar vissum ekki alveg okkar stöðu í samfélaginu. Við vissum okkar stöðu í kirkjunni og söfnuð- inum en þar fyrir utan vissum við ekki alveg. ↣ 1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r20 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -7 A 6 0 1 7 B B -7 9 2 4 1 7 B B -7 7 E 8 1 7 B B -7 6 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.