Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 22

Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 22
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is Ég hef verið að fylgjast með umræðunni á Alþingi um fjárlagafrumvarpið. Nær því hver einasti þingmaður stjórnarandstöðunnar hefur í umræðunni lagt mesta áherslu á kjarabætur til handa öldruðum og öryrkjum. Margir stjórnarþingmenn hafa einnig rætt málið. Þetta mál er nú orðið aðalmál þingsins. Um svipað leyti í fyrra var hins vegar ekki minnst á þetta mál á Alþingi. Hver er ástæðan? Hvað hefur breyst? Ástæðan er sú, að mönnum ofbýður hvernig stjórnvöld valta yfir aldraða og öryrkja. Það gengur fram af mönnum að lífeyrisþegar skuli ekki fá sam- bærilegar kjarabætur og aðrir í þjóðfélaginu. Fréttablaðið hefur tekið forustu meðal fjölmiðla í því að birta reglulega greinar um kjaramál lífeyris- þega og nauðsyn þess að bæta kjör þeirra. Baráttan er ekki búin. Þegar þetta er ritað hafa leiðtogar stjórnar- flokkanna báðir lýst því yfir, að engu verði breytt í kjaramálum aldraðra umfram það sem ákveðið var fyrir löngu, þ.e. að lífeyrisþegar á strípuðum bótum fengju á næsta ári rúmar 10.000 kr. eftir skatt (ein- hleypingar) í hækkun. Það hefur verið reynt að afflytja umræðuna um kjör lífeyrisþega og blekkingum beitt. Þannig er því ávallt haldið fram, að lífeyrisþegar hafi fengið/fái jafnmiklar kjarabætur og launþegar. Blekking Þetta er rangt. Þetta er blekking. Lágmarkslaun hækkuðu um 14,5% 1. maí 2015. Ríkisstjórnin ætlar að hækka lífeyrinn um 9,7% hinn 1. janúar 2016. Það er átta mánuðum seinna en verkafólk fékk hækkun og það er mun lægri prósentuhækkun en hjá launafólki. Sagt er, að þegar lífeyrisþegar séu búnir að fá hækkun á næsta ári verði lífeyrir þeirra orðinn hærri en lág- markslaun. Það er ekki rétt nema að hluta til. Það eru aðeins þeir lífeyrisþegar, sem búa einir og fá heimilis- uppbót, sem verða með hærri lífeyri en lágmarkslaun. Og sá hópur er aðeins lítið brot aldraðra og öryrkja. Kjaramál aldraðra efst á baugi Björgvin Guðmundsson formaður Kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Það hefur verið reynt að afflytja umræðuna um kjör lífeyrisþega og blekk- ingum beitt. Áhugverð og góð bók - Stefán Eiríksson, MBL STÓRFRÓÐLEG BÓK bokafelagid.is Fáum virðist vel við stofnanir ef marka má viðbrögð við tillögum Viðskiptaráðs sem kynntar voru í gær um að fækka ríkisstofn-unum um meira en helming. Flestar snúa tillögurnar að sameiningu stofnana, eða að því að safna þeim undir einn hatt, en í fimm tilvikum er lagt til að leggja stofnanir niður án þess að verkefnin færist annað hjá ríkinu. Ýmislegt virðist skynsamlegt í tillögunum og verð- skulda frekari skoðun, sér í lagi hvað varðar samein- ingu eða samrekstur stofnana. Þá er réttilega bent á í skýrslu Viðskiptaráðs að þótt í henni sé bara fjallað um ríkisstofnanir þá séu víðar sóknarfæri í sameiningum. Sveitarfélög landsins séu 75. „Viðskiptaráð hefur áður bent á hærri stjórnunar- kostnað og óhagræði í formi lakari þjónustu sem íbúar fámennra sveitarfélaga þurfa að búa við. Að mati ráðs- ins ætti að fækka sveitarfélögum í tólf,“ segir þar og um leið stungið upp á að eftirlitsstarfsemi ætti að færa frá sveitarfélögum undir einn hatt, bæði til hagræðingar og aukinnar samræmingar í vinnubrögðum. Annað í samantekt ráðsins virðist hins vegar enga skoðun standast. Þannig má velta fyrir sér gildi full- yrðinga um kostnað „örríkisins“ Íslands af því að halda úti stofnanakerfi sem er sambærilegt við það sem í öðrum löndum gerist. Á vef Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) má til dæmis fletta upp kostnaði hins opinbera og bera saman á milli landa. Hér var hann árið 2013 44,1 prósent af vergri landsframleiðslu, sem er undir meðaltali OECD upp á 45,9 prósent. Við erum á pari við Norðmenn (44,0 prósent) og eyðum miklu minna en Finnar (57,6 prósent), Danir (56,6 prósent) og Svíar (52,4 prósent). Krónutölusamanburður sýnir svo að á mann eru opinber útgjöld Norðmanna 56,5 prósentum meiri en hér og útgjöld Finna, Svía og Dana 24,7 til 35,4 pró- sentum meiri. Þá eru hugmyndirnar misvel ígrundaðar. Í það minnsta er erfitt að sjá möguleika á miklum sparnaði við að safna framhaldsskólum hvers landshluta í sér- stofnun, svo sem stofnunina Framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu. Vandséð er að þar sé verið að gera mikið annað en búa til nýja yfirmannsstöðu. Skól- arnir þurfa áfram sinn skólameistara og starfsfólk. Eins er vandséð að sátt náist um aflagningu ÁTVR, en landsmenn hafa verið ánægðir bæði með þjónustu fyrirtækisins og árangur sem hér hefur náðst í að draga úr unglingadrykkju. Óljóst er hvað á að vinnast með niðurlagningu þeirrar stofnunar annað en að upp- fylla blauta drauma þeirra sem vilja hlut ríkisins sem minnstan á öllum sviðum. Skoðun Viðskiptaráðs er ágætis innlegg í umræðu um hvernig hagræða má í ríkisrekstri, að því gefnu að vanhugsaðri þættir hennar verði ekki til þess að fólk ýti henni til hliðar sem einhverri frjálshyggjufantasíu. Sumt gott og annað skrítið Óljóst er hvað á að vinnast með niður- lagningu þeirrar stofnunar annað en að uppfylla blauta drauma þeirra sem vilja hlut ríkisins sem minnstan á öllum svið- um. Þróunarsamvinnustíflan Í gærkvöldi hélt fundur á Alþingi áfram og stefndi í að hann yrði fram á rauðanótt þegar forseti Alþingis tilkynnti að fyrsta dagskrármálið yrði lokaumræða um frumvarp utanríkisráðherra um að fella Þróunarsamvinnustofnun undir utanríkisráðuneytið. Skiljanlega hleypti það illu blóði í stjórnar- andstöðuna sem hefur barist gegn frumvarpinu með kjafti og klóm. Margir hefðu haldið að þetta væri afleikur af hálfu meirihlutans að setja málið efst á dagskrá enda við búist að stjórnarandstaðan myndi verja deginum í að þæfa málið og þar með væri ekki hægt að hleypa óumdeildari málum á dagskrá líkt og húsaleigulögum og frumvarpi um stöðugleikaframlags. Þegar hefur verið rætt um málið í nærri 45 klukkustundir. Ósýnilegir brestir Tillaga stjórnarandstöðunnar um óbreytt útvarpsgjald var felld á Alþingi á miðvikudaginn. Menntamálaráðherra hafði lagt fram álíka tillögu sem situr nú föst í ríkisstjórn. Sumir telja ástæðuna vera að formaður og varaformaður fjárlaganefndar séu tillögunni mótfallnir. Ljóst er að skiptar skoðanir eru meðal þingmanna stjórnarmeirihlutans en það þótti áhugavert að sjá að þeir brestir létu ekki gera vart við sig í atkvæðagreiðslunni um tillögu minnihlutans þar sem allir þingmenn meirihlutans felldu til- löguna. stefanrafn@frettabladid.is 1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -8 9 3 0 1 7 B B -8 7 F 4 1 7 B B -8 6 B 8 1 7 B B -8 5 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.