Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 24

Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 24
Fyrir sjötíu árum risu Sameinuðu þjóðirnar upp úr rústum síðari heimsstyrjaldarinnar. Sjö ára- tugum síðar hafa þjóðir heims sam- einast andspænis annars konar hættu; þeirri hættu sem lífi eins og við þekkjum stafar af skjótri hlýnun plánetunnar. Ríkisstjórnir hafa markað upphaf nýrra tíma samvinnu á heimsvísu um loftslagsbreytingar, einn marg- slungnasta vanda sem mannkynið hefur nokkru sinni glímt við. Með þessu hafa þær með afgerandi hætti stigið skref til að standa við það fyrirheit Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um „að bjarga komandi kynslóðum“. Parísarsamkomulagið er stórsigur fyrir fólk, fyrir umhverfið og fyrir milliríkjasamskipti. Í fyrsta skipti í sögunni hefur hvert einasta land heims heitið að draga úr losun, auka viðnámsþrótt og grípa til aðgerða jafnt heima fyrir sem á alþjóðavett- vangi til að stemma stigu við lofts- lagsbreytingum. Í sameiningu hafa ríki komist að samkomulagi um að það sé í samræmi við þjóðarhagsmuni að draga úr hætt- unni af loftslagsbreytingum. Ég tel að þetta sé fordæmi sem við gætum öll hagnast á að hafa að leiðar ljósi á öllum sviðum stjórnmála. Sigurinn í París kórónar maka- laust ár. Sameinuðu þjóðirnar hafa sannað gildi sitt á þessu ári í að glæða vonir og græða sár heimsins; allt frá Rammasamkomulagi um að draga úr hættu af náttúruhamförum í Sendai til samnings í Addis Ababa um fjármögnun þróunaraðstoðar og frá hinum sögulega leiðtogafundi um Sjálfbæra þróun í New York til lofts- lagssamningsins í París. Helsta áskorun okkar tíma Frá því á fyrstu dögum mínum í embætti hef ég skilgreint loftslags- breytingar sem helstu áskorun okkar tíma. Þess vegna hef ég sett það mál efst á lista yfir forgangsatriði í mínu starfi. Ég hef talað við næstum hvern einasta veraldarleiðtoga um þá hættu sem efnahag okkar, öryggi og tilveru stafar af loftslagsbreytingum. Ég hef heimsótt hvert einasta meginland og hitt samfélög sem búa á víglínu loftslagsbreytinga. Ég hef fundið til hluttekningar með þeim og dregið lærdóma af lausnum sem auka öryggi og velmegun í heiminum. Ég hef sótt hverja einustu ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Þar á meðal eru þrír leiðtogafundir sem ég hef boðað til í því skyni að efla pólitískan vilja og leysa úr læðingi skapandi aðgerðir ríkisstjórna, fyrirtækja og almenn- ings. Parísarsamkomulagið ásamt skuldbindingum Loftslags-leiðtoga- fundarins á síðasta ári, sýna svo ekki verður um villst að lausnir eru fyrir hendi. Það sem einu sinni var óhugsandi er nú óstöðvandi. Einkageirinn fjár- festir sem aldrei fyrr í losunarsnauðri framtíð. Lausnirnar eru í sívaxandi mæli ódýrar og tiltækar og eftir árangur Parísarfundarins eiga enn fleiri eftir að líta dagsins ljós. Parísarsamkomulagið skilaði árangri á öllum þeim sviðum sem ég hvatti til. Mörkuðum hafa verið gefin skýr skilaboð um að auka beri fjárfestingar í því skyni að glæða losunarsnauða þróun með miklum viðnámsþrótti gegn loftslagsbreyt- ingum. Öll ríki hafa samþykkt að vinna að því að aukning hitastigs í heiminum verði vel innan tveggja gráðu marks- ins og helst sem nærri 1,5 gráðum, sökum þeirrar miklu hættu sem við stöndum andspænis. Þetta er sérstak- lega þýðingarmikið fyrir Afríkuríki, lítil ey-þróunarríki og minnst þróuðu ríki heims. Ríkin samþykktu í París langtímamarkmið um að losun þeirra á gastegundum sem valda gróðurhúsaáhrifum nái hámarki eins fljótt og hægt er á síðari helm- ingi aldarinnar. Hundrað áttatíu og átta ríki hafa skilað inn landsmark- miðum, þar sem gerð er grein fyrir hvað þau eru reiðubúin að gera til að minnka losun og efla viðnámsþrótt gegn loftslagsbreytingum. Endurskoðað á fimm ára fresti Eins og sakir standa munu þessi landsmarkmið samanlögð sveigja losunarkúrfuna niður á við. En betur má ef duga skal því þrátt fyrir þetta má gera ráð fyrir að hækkun hita- stigs verði þrjár gráður á Celsius sem er hættulegt og óásættanlegt. Af þessum sökum samþykktu ríkin í París að þau muni endurskoða lands- markmið sín á fimm ára fresti og byrja 2018. Þetta gerir þeim kleift að auka metnað sinn til samræmis við það sem vísindin krefjast. Parísarsamkomulagið tryggir einn- ig fullnægjandi stuðning til þróunar- ríkja, sérstaklega hinna fátækustu og þeirra sem standa höllustum fæti, með góðu jafnvægi á milli mildunar og aðlögunar að loftslagsbreytingum. Ríkisstjórnir hafa samþykkt bind- andi, öflugar, gagnsæjar reglur sem tryggja að öll ríki standi við það sem þau hafa sagst ætla að gera. Þróuðu ríkin hafa gengist undir að útvega fjármagn og að efla stuðning í útveg- un tækni og þjálfunar. Og þróunar- ríki hafa axlað vaxandi ábyrgð til að takast á við loftslagsbreytingar í sam- ræmi við getu hvers og eins. Ég færi hins vegar villur vegar ef ég sleppti úr þessari upptalningu að minnast á forystuhlutverk og fram- tíðarsýn forystumanna atvinnurek- enda og almannasamtaka. Þeir hafa hvort tveggja bent á hættur og lausn- ir. Ég vil þakka þeim fyrir að sýna ein- staka forystu í loftslagsmálum. Snúum okkur að framkvæmdinni Nú, þegar Parísarsamkomulagið er í höfn, snúum við okkur umsvifa- laust að framkvæmdinni. Með því að ljúka Parísarsamkomulaginu, höfum við þokast áleiðis með 2030 Áætlanirnar um sjálfbæra þróun. Parísarsamkomulagið hefur jákvæð áhrif á Heimsmarkmiðin um sjálf- bæra þróun. Við blasa nýir tímar og ný tækifæri. Sameinuðu þjóðirnar munu leggja sitt lóð á vogarskálarnar á hverju stigi málsins, nú þegar ríkisstjórnir, fyrirtæki og almannasamtök standa frammi fyrir því tröllaukna verkefni að ná Sjálfbæru þróunarmarkmið- unum. Eins og ráð er gert fyrir í samningn- um mun ég boða til undirskriftarat- hafnar í New York 22. apríl á næsta ári sem fyrsta liðar í framkvæmd Par- ísarsamkomulagsins. Ég mun bjóða veraldarleiðtogum að sækja athöfnina í því skyni að við- halda skriðþunganum og auka hann. Með því að vinna saman getum við náð sameiginlegum markmiðum okkar um að binda enda á fátækt, efla frið og að allir geti lifað með reisn og haft næg tækifæri. Nýir tímar og ný tækifæri Verkefni nemenda í grunn- og framhaldsskólum hafa breyst undanfarin ár. Nútíminn gerir stöðugt fjölbreyttari kröfur um þekkingu, leikni og hæfni sem hefur í för með sér breytt námsmat. Það færist frá áherslu á staðreynda- upptalningu yfir í að meta hæfni til að finna upplýsingar og vinna með þær í námi og starfi. Til að grunn- og framhaldsskólar geti tekist á við þessar breyttu áherslur var ákveðið að breyta námsmatskerfinu á svip- aðan hátt og nágrannaþjóðir okkar hafa gert. Nýtt námsmat kynnt Upphafið að nýju námsmatskerfi á Íslandi má rekja til ársins 2011 þegar ný aðalnámskrá grunnskóla var gefin út, en í almenna hluta hennar segir frá nýju námsmatskerfi og að einkunnagjöf skyldi breyta í bókstafaeinkunnir. Innleiðingar- ferlið hófst og nýtt kerfi kynnt fyrir kennurum, samtökum foreldra og hagsmunaaðilum. Haldnir voru tæplega 40 kynningarfundir um land allt frá miðju ári 2011 til maí 2012. Betra samræmi í einkunnagjöf Greinasvið aðalnámskrár grunn- skóla voru gefin út í mars 2013 en þar er fjallað um einstakar náms- greinar í grunnskólum og birtur nýr einkunnakvarði. Breytingin er sú að hverjum bókstaf fylgir lýsing á hæfni nemenda sem er sambærileg milli skóla. Markmiðið er að sam- ræma betur einkunnagjöf á milli skóla og að einkunnir skýri betur hæfni nemenda. Vinnustofur og kynningarfundir Sem dæmi um það kynningarstarf sem fór fram er landshlutanám- skeiðið Leiðtogi í heimabyggð, samstarfsverkefni hins opinbera og stéttarfélaga, sem haldið var í mars 2013. Markmið þess var að kynna innleiðingu nýrrar aðalnámskrár og í apríl birti mennta- og menningar- ráðuneytið innleiðingaráætlun. Átta vinnustofur um breytingastjórnun í tengslum við ný ákvæði aðalnám- skrár voru haldnar um allt land og um haustið var staðið fyrir kynn- ingu á haustþingum kennara. Sama ár héldu Heimili og skóli, landssam- tök foreldra, kynningarfundi víðs vegar um land þar sem námskráin og þær breytingar sem snúa að for- eldrum voru kynntar. Tækifæri til athugasemda Á haustmánuðum voru haldin mál- þing, fyrir kennara og skólafólk á leik,- grunn- og framhaldsskólastigi, á höfuðborgarsvæðinu og á Akur- eyri. Skólafólk víða um land fylgdist með fyrirlestrum og hélt málstofur í heimabyggð í kjölfarið. Auk þessa var hagsmunaaðilum sent bréf þar sem mögulegar breytingar á náms- mati grunnskóla voru kynntar og þeim gefinn kostur á að gera athuga- semdir. Alls bárust 15 umsagnir sem tóku afstöðu til þeirra breytinga sem kynntar höfðu verið. Rúmu ári síðar sendi mennta- og menningarmála- ráðuneyti bréf til hagsmunaaðila þegar það hafði farið yfir umsagnir og tekið ákvarðanir um breytingar á einkunnagjöf. Stuðningur við breytingar Til að gæta hagsmuna nemenda og styðja við skóla, hafa Menntamála- stofnun og mennta- og menningar- málaráðuneytið unnið að ýmsum verkefnum. Í lok árs 2014 var 30 milljóna króna styrk úthlutað til sveitarfélaga og fékk hvert þeirra úthlutað í samræmi við nemenda- fjölda. Styrkurinn var ætlaður til að sveitarfélög gætu tekið upp upp- lýsingakerfi sem styðja við inn- leiðinguna. Þá hefur verið unnið að þróun á rafrænu vitnisburðarskír- teini sem tengir saman einkunnir og matsviðmið, sem tekið verður í notkun vorið 2016 þegar allir skólar taka upp nýtt einkunnakerfi. Mun það veita betri upplýsingar um hvar nemandi stendur í náminu, auk þess sem framhaldsskólar geta nýtt skír- teinið við innritun. Eins hefur verið opnaður kynningarvefur þar sem veittar eru upplýsingar um nýtt námsmat. Breyting á hugsunarhætti Það má því segja að unnið hefur verið ötullega að kynningu á nýjum einkunnakvarða og náms- mati. Menntamálastofnun telur það afar mikilvægt að veita greinar- góðar upplýsingar og viðhalda öflugu kynningarstarfi fyrir alla þá sem koma að skólastarfi og námi barnanna okkar. Breytingarnar krefjast breytts hugsunarháttar hvað varðar námsmat að því leyti að nú byggir námsmat á því hvern- ig nemandinn nýtir það sem hann hefur lært frekar en á því hvað hann getur munað. Breyttar áherslur í námsmati og einkunnagjöf Í árslok 2011 var St. Jósefsspítali sameinaður Landspítala. Það var búist við að þetta yrði kærkomin viðbót fyrir Landspítala. Þarna voru 50 sjúkrarúm í heildina, bæði var um að ræða 25 rýma hand- lækningadeild sem sérhæfði sig í að þjónusta konur og kvensjúkdóma og einnig 25 rýma lyflækningadeild. 400 milljóna fjárveiting fylgdi vegna rekstrarársins 2012. Reyndin varð sú, að rekstri St. Jósefsspítala var hætt strax í ársbyrjun 2012. Spítalinn var tæmdur. Nothæf tæki voru flutt á Landspít- ala. Öll sjúkrarúm fjarlægð og gefin til útlanda. Landspítali hefur síðan kvartað reglulega vegna skorts á legu- rýmum sem orsakast af langlegusjúk- lingum sem ekki er hægt að útskrifa. Hvað veldur því að St. Jósefsspítali er ekki nothæfur fyrir langlegusjúklinga? Spítalinn er byggður á svipuðum tíma og Landspítali og Vífilsstaðaspít- ali sem báðir eru nothæfir enn. Alltaf var haldið vel utan um viðhald á bygg- ingum St. Jósefsspítala og aldrei fannst þar mygla og fúkki, sem er annað en á Landspítala nútímans. Á hinni sér- hæfðu kvensjúkdómadeild St. Jósefs- spítala var almennt lítill biðlisti og sú þjónusta mjög eftirsótt. Landspítalinn tók yfir alla þá þjónustu. Samkvæmt forsíðufrétt Frétta- blaðsins 19. nóvember sl. bíða 180 konur eftir greiningu, 238 bíða eftir aðgerð vegna blöðrusigs eða legsigs, 37 vegna þvagleka. Samkvæmt frétt- inni getur bið eftir aðgerð verið nær tvö ár. Kristín Jónsdóttir er yfirlæknir á kvensjúkdómadeild. Hún segir þessa sjúkdóma mikið feimnismál. Kristín segir að fjöldi fyrrgreindra aðgerða hafi áður verið gerður á St. Jósefsspítala en við lokun hans fyrir fjórum árum hafi aðgerðirnar flust á Landspítalann. „Áður var í raun eng- inn biðlisti vegna slíkra aðgerða hjá kvennadeild Landspítalans. Núna er eins og við séum að hlaupa á eftir skottinu á okkur,“ segir yfirlæknir í  fréttinni. Þegar St. Jósefsspítala var lokað vakti það engin viðbrögð hjá konum og kvennasamtökum. Að fenginni reynslu vekur það furðu að enn skuli engin viðbrögð merkjast meðal sam- taka kvenna varðandi þetta stóra og vandmeðfarna vandamál þeirra. Samtök kvenna studdu stofnun Landspítalans verulega. Nú mega konur sjálfar líða mikið fyrir verulega skerta þjónustu sömu stofnunar. Það má vissulega minnast fleira en 100 ára afmælis kosningaréttar. Því mættu kvenfélagasamtök um næstu áramót minnast þessara fjögurra ára vonbrigða með niðurlagningu St. Jós- efsspítala, sem þau hafa látið óátalda hingað til. Lokun St. Jósefsspítala 2011 – vanvirðing við konur? Gylfi Jón Gylfason sviðstjóri á mats- og greiningarsviði Menntamála- stofnunar Breytingarnar krefjast breytts hugsunarháttar hvað varðar námsmat að því leyti að nú byggir námsmat á því hvernig nemandinn nýtir það sem hann hefur lært frekar en á því hvað hann getur munað. Ámundi H. Ólafsson fv. flugstjóri Nothæf tæki voru flutt á Landspítala. Öll sjúkrarúm fjarlægð og gefin til útlanda. Landspítali hefur síðan kvartað reglulega vegna skorts á legurýmum sem or- sakast af langlegusjúklingum sem ekki er hægt að útskrifa. Ban Ki-moon aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Með því að vinna saman getum við náð sameiginleg- um markmiðum okkar um að binda enda á fátækt, efla frið og að allir geti lifað með reisn og haft næg tækifæri. 1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -9 C F 0 1 7 B B -9 B B 4 1 7 B B -9 A 7 8 1 7 B B -9 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.