Fréttablaðið - 18.12.2015, Qupperneq 26
Ég heiti Ása Guðlaug Lúðvíksdóttir og samþykkti sem kjósandi í þjóðaratkvæðagreiðslu haustið 2012 að tillögur stjórn
lagaráðs yrðu lagðar til grundvallar
nýrri stjórnarskrá landsins. Síðan
eru liðin meira en þrjú ár og málið
er enn þá óafgreitt á Alþingi.
Ég sá heimildarmyndina Blue
berry Soup í Norræna húsinu í
byrjun sumars, þar sem fjallað er
um aðdraganda og framkvæmd
stjórnlagaráðs og ég skora á þig að
sýna myndina á RÚV. Ég hef það
staðfest frá leikstjóra myndarinnar
að það er auðsótt verk að fá leyfi til
sýningar á myndinni.
Myndin fjallar um þá atburðarás
sem átti sér stað eftir efnahagshrun
ið, en þá ríkti algjört vantraust milli
þjóðar og stjórnvalda og krafan um
ný gildi í samfélaginu var hávær.
Því var haldinn þjóðfundur þar
sem um eitt þúsund einstaklingar
vítt og breitt úr samfélaginu komu
saman og hófu að endurskilgreina
lykilþætti í stjórnarskrá landsins. Í
kjölfarið kaus þjóðin 25 fulltrúa til
stjórnlagaþings til að klára verkið.
Stjórnlagaþing varð að stjórn
lagaráði sem síðan vann sleitulaust
í fjóra mánuði við að endurskrifa
stjórnarskrána okkar. Vinnan fór
áfram fram með dyggri aðstoð frá
almennum borgurum, en fundum
var varpað beint á heimasíðu
stjórnlagaráðs og drög birt á síð
unni um leið og þau urðu til. Því
gat fólkið í landinu sagt skoðun sína
jafnóðum og haft áhrif á útkomuna,
þar með tekið virkan þátt í mótun
nýrrar stjórnarskrár frá upphafi til
enda.
Niðurstaðan var drög að nýrri
stjórnarskrá sem afhent voru
Alþingi síðsumars 2012. Þjóðin
sýndi svo óvefengjanlegan vilja sinn
í þjóðaratkvæðagreiðslu haustið
2012, þegar tveir þriðju hlutar
kjósenda svöruðu játandi að til
lögur stjórnlagaráðs skyldu lagðar
til grundvallar frumvarpi að nýrri
stjórnarskrá.
Innblástur víða um heim
Slíkt beint lýðræði og valdefling
fólksins í landinu þar sem heil þjóð
endurskrifar eigin stjórnarskrá er
einstakt í sögunni og hefur heim
ildarmyndin Blueberry Soup, sem
segir þessa sögu, vakið gríðarleg
viðbrögð og verið innblástur víða
um heim þar sem hún hefur verið
sýnd. Hefur myndin meðal annars
verið sýnd í yfir 20 háskólum í
Bandaríkjunum og þar á meðal í
lagadeildum Harvard, Stanford og
Berkeley.
Nýlega tókst með einstaklings
söfnun á netinu að afla 20 þúsund
dala til þess að fjármagna Evrópu
reisu leikstjórans með myndina þar
sem hún ferðaðist til 14 áfangastaða
og alls staðar voru viðbrögð áhorf
enda mikil. Hvar sem myndin er
sýnd virðist hún, samkvæmt leik
stjóra hennar, vekja sams konar
viðbrögð, það er að segja hrifningu
og innblástur þeirra sem hana sjá
um að hægt sé að breyta samfé
laginu með samstilltu átaki borgar
anna sjálfra.
Þetta er einstakt framtak á heims
vísu og hafa fræðimenn á sviðum
lögfræði og stjórnmálafræði skrifað
um þetta lærðar greinar. Hér á landi
er þó lítið fjallað um málið sem
verður að teljast sérstakt í ljósi þess
að þetta er vafalaust merkilegasta
lýðræðistilraun sem Íslendingar
hafa staðið fyrir.
Það vekur furðu að það sé fyrir
tilstilli Stjórnarskrárfélagsins,
lítilla óháðra félagasamtaka, en
ekki ríkisfjölmiðils sem myndin
er sýnd á Íslandi. Takmarkað fjár
magn leiddi til þess að aðeins fáir
gátu séð myndina þegar hún var
sýnd í Norræna húsinu í byrjun
sumars, en staðreyndin er sú að
hún á erindi við okkur öll sem hér
búum. Því árétta ég áskorun mína
um að myndin verði sýnd í Ríkis
sjónvarpinu á næstunni.
Áskorun til útvarpsstjóra
Ása Guðlaug
Lúðvíksdóttir
verkfræðingur
Það vekur furðu að það sé
fyrir tilstilli Stjórnarskrár-
félagsins, lítilla óháðra
félagasamtaka, en ekki ríkis-
fjölmiðils sem myndin er
sýnd á Íslandi.
Sjórinn var mikilvægur hluti umræðunnar á loftlagsráðstefnunni sem lauk nýlega í París. Í rauninni ættum við að tala um veður
farsráðstefnu þar sem sjórinn
og hafið leika þar stórt hlutverk,
sérstaklega á okkar norðlægu
slóðum, ekki síður en lofthjúpur
inn. Reginmunur er samt á tíma
lengd ferla veðurs og sjávar sem
munar hundraðföldun þar sem
lágþrýstilægðin þeytist yfir hafið
á nokkrum dögum en sjóinn tekur
ár að færast sömu leið.
Það er rætt um súrnun sjávar
og hækkun sjávarborðs, það fyrra
vegna gleypni sjávar á auknu kol
díoxíði í andrúmslofti af manna
völdum og hið seinna vegna
bráðnunar jökla og hlýnunar sjáv
ar. Það er vissulega þörf umræða
sem kemur okkur öllum við. En
samt eru fleiri mikilvægir þættir
í flóknu samspili veðurkerfa og
sjávarstrauma umhverfis okkur á
norðurhveli sem gætu hugsanlega
raskast.
Ísland er á mörkum hlýsjávar og
kaldsjávar. Fyrir sunnan og vestan
land er hlýr Atlantssjór sem kemur
að sunnan og er hluti af hinum
mikla hitagjafa norðurhafa, Golf
straumnum. Streymi hans alla
leið til okkar og enn stærri hluti
hans norður í Noregshaf leggur
grundvöll að byggð svo norðar
lega á hnettinum. Erfitt mundi
fiskveiðiþjóð að þrífast pólmegin
við þennan jaðar milli hlý og
kaldsjávar. Aftur á móti kemur
kaldi sjórinn að norðan og upp
að norðausturströndinni. Það eru
sveiflur í straummagninu frá einu
ári til annars eins og sagan hefur
kennt okkur. Skemmst er að minn
ast hafísáranna fyrir 50 árum síðan
þegar mikið af köldum bráðnun
arsjó, svonefndum pólsjó kom upp
að landinu norðan og austan með
miklum kuldum og röskun á lífríki
sjávar til langframa. Hafísárin voru
áminning um áhættu þess að búa á
jaðrinum við norðurheimskautið í
hlýnandi heimi.
Einn veigamikill eðlisþáttur í
straumakerfi norðurhafa er kóln
un sjávar við yfirborð svo hann
sökkvi. Þegar selturíkur sjór að
sunnan kólnar á norðurslóðum
og sekkur skilur hann ekki aðeins
eftir hitaorku í andrúmsloftinu
heldur byrjar hann að síga aftur
suður á bóginn sem djúpsjór.
Sjórinn sem er saltastur [A1]
sekkur mest og myndar strauma
eftir botni og þessi sjór rennur í
stríðum straumum suður í Atlants
hafið í leit að sínu jafnvægi. Þetta
skeður umhverfis okkur á veturna
í Norðurhöfum.
Af þessu leiðir að hlýsjórinn
að sunnan, Golfstraumurinn er
drifinn norður á bóginn vegna
myndunar djúp og botnsjávar.
Þetta er mikilvægur hluti hring
rásar heimshafanna við núverandi
aðstæður í veðurfari. Fleira kemur
augljóslega til eins og vindakerfin
á norðurhveli.
Veruleg kólnun gæti orðið
Bráðnun íss minnkar seltu sjávar
og sjórinn sem myndast kallast
pólsjór og er léttari en fullsaltur
sjór og breiðist út í þunnum lögum
í yfirborði. Pólsjór liggur yfir mest
öllu NorðurÍshafi. Við aukna
bráðnun hafíss og jökulíss getur
því pólsjórinn myndað lok yfir
saltari sjó og hafið fær einkenni
stöðuvatns með meiri útbreiðslu
á hafís.
Seltan í sjónum setur því skilyrði
fyrir myndun djúpsjávar. Ef hún er
of lág vegna bráðnunar getur sjór
inn ekki sokkið lengur og myndað
djúpsjó.
Ef þessi drifkraftur djúpsjávar
myndunar er ekki lengur til staðar
af sama styrk hvert fer þá hlýsjór
inn að sunnan? Mundi hlýsjórinn
komast eins langt norður og nú?
Er ekki mögulegt að jaðarinn milli
hlý og kaldsjávar færist til og nái
ekki eins langt norður. Það er aug
ljóst að það mundi hafa feikilegar
afleiðingar fyrir okkur sem fisk
veiðiþjóð á mörkum hins byggi
lega heims ef straumkerfi Norður
Atlantshafs færi úr skorðum og
áhrifin yrðu vissulega langmest
við jaðarinn. Að sjálfsögðu eru
allir þessir ferlar í hafstraumum og
náttúrufari miklum óvissum háðir,
en til langs tíma litið gæti orðið
veruleg kólnun á okkar slóðum
þrátt fyrir hlýnun jarðar.
[A1] Þarf ekki endilega að vera
þannig, t.d. er GSDW undir EBDW
þó EBDW sé saltari.
Hafið í loftslaginu
Stefán Krist-
mannsson
hafeðlis
fræðingur
Það er augljóst að það mundi
hafa feikilegar afleiðingar
fyrir okkur sem fiskveiði-
þjóð á mörkum hins byggi-
lega heims ef straumkerfi
Norður-Atlantshafs færi úr
skorðum og áhrifin yrðu
vissulega langmest við
jaðarinn.
365.is Sími 1817
19:25Í KVÖLD
EKKI MISSA AF ÞESSUM!
FÁRÁNLEGA STÓRI JÓLAÞÁTTURINN
Logi Bergmann er í hátíðarskapi í sérstökum jólaþætti þar sem skemmtilegir gestir
kíkja í heimsókn og jólastemningin ræður ríkjum. Fjölmörg tónlistaratriði og frábær
skemmtiatriði fyrir alla. Skemmtiþáttur sem kemur öllum í jólaskap.
#jolalogi
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-B
0
B
0
1
7
B
B
-A
F
7
4
1
7
B
B
-A
E
3
8
1
7
B
B
-A
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K