Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 32
Friðrika Hjördís Geirsdóttir umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is „Í miðri jólageðveikinni getur verið ágætt að staldra aðeins við, líta aðeins í kringum sig og huga að tilgangi jólanna.“ Í seinustu viku deildi Lífið með lesendum kærum íslenskum jólalögum en nú fer lagalist- inn í útrás og hér má finna er- lend jólalög sem eiga sér sér- stakan stað í hjarta jólabarns- ins. Þennan lagalista, ásamt öðrum, má finna á Heilsuvísi á Spotify. Someday at ChriStmaS Stevie Wonder the little drummer boy Sufjan StevenS baby, it’S Cold outSide dolly Parton og rod SteWart little ChriStmaS tree Michael jackSon Joy to the world johnny caSh Fairytale oF New york the PougeS have yourSelF a merry little ChriStmaS SaM SMith ChriStmaS time iS here vince guaraldi trio o holy Night john WilliaMS auld laNg SyNe colbie caillat Hjartvermandi jólalög Þeir sem vilja gefa upplifun og vellíðan ættu að skoða flothettur frá Systrasamlaginu. Þú einfald- lega smeygir á þig hettunni, setur sundnúðlu undir fæturna og flot á handleggina og svífur um í nota- legri sundlaug eða heitum potti og slappar af. Samkvæmt Systra- samlaginu þá hafa „vísindamenn tengt jákvæðar niðurstöður af floti beint þeta-heilabylgjunum en það er hið ómótstæðilega nota- lega ástand sem skapast rétt áður en við svífum inn í svefninn. Það sem er þó öllu forvitnilegra er að þeta-heilabylgjur mælast gjarn- an í vökuástandi munka sem eiga margra ára hugleiðsluþjálfun að baki.“ Flothetturnar fást hjá Systra- samlaginu sem er til húsa við sundlaugina úti á Seltjarnarnesi. Flothettum Ö ll höfum við mis- munandi skiln- ing á hamingjunni og hvað það er sem gerir okkur ham- ingjusöm. Hér geturðu lesið tíu örstutt ráð sem hjálpa þér að verða örlítið hamingjusamari manneskja strax í dag. Textinn er það stuttur að þú getur meira að segja reynt að læra hann utan að. Nú styttist svo sannarlega í jólin og væntanlega margir sem lifa ansi hratt þessa dagana. Tíminn er af skornum skammti og margt sem eftir er að gera svo hægt sé að halda heilög jól. Í miðri jólageðveikinni getur verið ágætt að staldra aðeins við, líta aðeins í kringum sig og huga að tilgangi jólanna. Fyrir utan trúarlegan tilgang þá snú- ast jólin að miklu leyti um að auka hamingju og gleði í skamm- deginu. Þá komum við að ham- ingjunni og hvernig við getum aukið hana með nokkrum ein- földum ráðum sem þú getur til- einkað þér. 1. Segðu já! Notaðu neikvæð orð eins og „ég get ekki“ og „það er ekki hægt“ í minna mæli. Þessi orð gera ekk- ert nema að draga úr þér og orku þinni. Segðu frekar já við lífinu og leystu verkefni þín með já- kvæðu hugarfari. 2. Andaðu Staldraðu við og finndu hvernig þú andar. Þegar við erum undir miklu álagi og streitu þá öndum við grunnt með þeim afleiðing- um að líkaminn fær ekki það súrefni sem hann þarf. Við verð- um fyrr þreytt og finnum fyrir sleni. Minntu þig á öndunina nokkrum sinnum á dag. 3. Fagnaðu Ekki gleyma að fagna litlum sigr- um og markmiðum sem þú hefur náð. Það er hreinlega bara svo óskaplega gaman að verðlauna sjálfan sig og fagna svolítið. 4. Vítahringurinn Sendu frá þér kærleik og hlýju, jafnvel þó þér sé ekkert sérlega vel við suma aðila. Hatur gerir ekkert nema að skaða sjálfið. Dalai Lama orðaði þennan gjörning svo afskap- lega vel: „Að hata einhvern er eins og að drekka eitur og búast við því að sá hinn sami skaðist af því.“ 5. Þakklæti Að þakka fyrir það sem maður hefur er eitt dýrmætasta nær- ingarefni sem sálin getur fengið. Byrjaðu og endaðu hvern dag á því að þakka fyrir þrjá hluti sem þú hefur upplifað eða átt. 6. Lestu Finndu þér bók til að lesa, það örvar heilasellurnar. Veldu þér jafnvel bók sem skilar einhverju aftur í hausinn á þér. 7. Friður Semdu frið við þau mistök sem þú átt eftir óuppgerð og reyktu friðar- pípu með fortíðinni. Það hefur ekk- ert upp á sig nema jú áunnið þung- lyndi að lifa í fortíðinni. 8. Brostu Komdu þér í aðstæður og umhverfi þar sem hlátur og bros eru í aðal- hlutverki. Horfðu á góða grín- mynd, umkringdu þig jákvæðu og skemmtilegu fólki. 9. Tímaskortur Hættu að kvarta yfir því að þú hafir aldrei tíma í þetta og hitt, þú færð nákvæmlega jafn mikinn tíma og allir aðrir á hverjum degi. Vendu þig frekar á að forgangs- raða og skipuleggja þig betur. 10. Hreyfðu þig Taktu frá þrjátíu mínútur á hverj- um degi fyrir einhvers konar hreyfingu. Göngutúr, hlaup eða hvað sem er. Hreyfing lækkar streitustuðul og eykur hamingju- hormón. tíu örstutt hamingjuráð lífið mælir með ÚTgáFuFéLAg 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is l ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is l Forsíðumynd Ernir Eyjólfsson Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is lífið www.visir.is/lifid Heilsuvísir 2 • LÍFIÐ 18. deSemBeR 2015 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 9 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -D 3 4 0 1 7 B B -D 2 0 4 1 7 B B -D 0 C 8 1 7 B B -C F 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.