Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 36

Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 36
okkur á að líða. Ég hef oft skrif­ að um líkamsvirðingu og finnst tilvalið að stikla á stóru hlutun­ um í enda ársins. Fólk er alls konar. Við erum öll mismunandi og því finnst mér alveg fáránlegt að samfélagið segi okkur að allir eigi að passa í sömu buxnastærð­ ina eða að sú manneskja sem er með hærri tölu á blessuðu vigtar­ vinkonunni sé eitthvað verri eða ekki eins falleg og sú sem er með lægri tölu. Í mínum huga eru allir fallegir, hvort sem þeir eru feit­ ir eða mjóir (og já, það má segja feitir, þetta er lýsingarorð, ekki skammaryrði). Það eiga ekki allir að þurfa að fara í átak, minnka um tvær buxnastærðir, fela skvapið eða borða kál í öll mál til þess að finnast maður vera sam­ félaginu samboðinn. Ég hef lengi þurft að hafa fyrir því að hugsa jákvætt um líkama minn og enn þann dag í dag stend ég sjálfa mig að því að segja niðrandi hluti um hann. Í dag er ég t.d. komin 35 vikur á leið og stundum þegar ég horfi í speg­ il sé ég ekkert annað en undir­ hökuna sem er að myndast hjá mér eða stækkandi læri og rass. Ég tek ekki einu sinni eftir því stundum að kúlan hafi stækkað sem þýðir nú líklegast að barn­ inu mínu líði vel og sé að þrosk­ ast og dafna inni í mér. Já, ég er nefnilega að gera stórmerkileg­ an hlut, ég er að búa til barn inni í líkama mínum og það er ekkert skrítið að öll sú orka sem ég hef fari í að hjálpa barninu að stækka en ekki að minnka lærin eða að passa að ég fái ekki undirhöku því það væri líka fáránleg for­ gangsröðun! Elskum okkur sjálf Það eru nokkrir hlutir sem ég hef tileinkað mér í gegnum árin sem ég þarf að vinna í á hverjum degi en hafa hjálpað mér mikið í því að hugsa fallega um sjálfa mig og aðra og að líða vel í eigin skinni og vil ég deila því hér með ykkur. Byrjaðu hvern dag á jákvæð­ um hugsunum. Þegar jákvæðn­ in ræður ríkjum hjá okkur smit­ um við út frá okkur og fólki líður vel í kringum okkur. Hunsaðu neikvæð ummæli um útlit ann­ arra og hrósaðu fólki fyrir það sem þér finnst hrósvert. Reyndu þó að einblína ekki á útlitið þegar þú hrósar því við erum svo mikið meira og allt annað en útlit. Stundaðu hreyfingu af ein­ hverju tagi. Hreyfingin eykur vellíðunartilfinningu og hjálpar okkur að gera það sem við viljum gera, hvort sem það er að kom­ ast í gegnum daginn án þess að leggja okkur, ganga upp á Esjuna eða hlaupa maraþon. Hafðu eitthvað til að stefna að á hverjum degi. Markmið hjálpa okkur einnig í því að ná þeim áföngum sem við viljum ná og til­ finningin að ná markmiðinu sínu er engri lík. Borðaðu hollan mat að stað­ aldri en leyfðu þér það sem hug­ urinn girnist líka. Hvort haldiði að sé skemmtilegra að borða holl­ an og næringarríkan mat flest­ um stundum, líða vel af honum og eiga fullt af orku til að nota í það sem þú vilt gera og leyfa þér svo að borða það sem þú vilt á jóla­ hlaðborðinu eða skreppa einstaka sinnum á Búlluna eða borða bara brokkólí í kvöldmat af því að þig langar svo að sjá einhverja tölu á vigtinni? Mér finnst svarið alla­ vega augljóst. Síðast en ekki síst, elskaðu sjálfa/n þig. Ég trúi því að ef þú getur ekki elskað sjálfa/n þig, þá hljóti að vera erfitt fyrir einhvern annan að gera það. Þú ert eina manneskjan sem þú þarft alltaf að vera með, alls staðar og öllum stundum. Lífið verður því líkleg­ ast ansi erfitt og leiðinlegt ef þú getur ekki elskað þig. Við gerum öll mistök sem við lærum af og stöndum uppi sem sterkari aðil­ ar eftir að við lærum af þeim mis­ tökum. Ég vona að þetta hjálpi ein­ hverjum og að þið hafið notið pistlanna á árinu. Gleðilega hátíð og hafið það notalegt með ykkar nánustu. K æru landsmenn. Nú er árið að líða og þetta mun verða síðasta grein árs­ ins frá mér. Alltaf þegar nýja árið nálgast byrja ég á að fara yfir liðið ár, hvernig það hefur gengið, hvað stóð upp úr og hvað hefði mátt fara betur. Viðburðaríkt ár Árið mitt var mjög viðburða­ ríkt. Síðasta ári lauk ég með þátt­ töku í Gamlárshlaupi ÍR sem var mjög skemmtilegur endir á árinu og í rauninni góð uppskeruhá­ tíð þeirra æfinga sem ég stund­ aði. Ég byrjaði árið í besta formi lífs míns og leið mjög vel, bæði andlega sem líkamlega. Ég hef aldrei verið eins sterk og það sem mér fannst gaman að finna fyrir góðum ávinningi þeirrar vinnu sem ég hafði lagt á mig eftir barnsburð. Með bættri líkam­ legri getu fann ég líka fyrir hlut­ um sem ég hef sjálf ekki upplifað svona sterkt áður. Ég hafði miklu meiri orku, svaf betur, sótti eigin­ lega bara í hollan mat og var allt­ af til í að fara á æfingu. Þegar byrjaði að vora og ég var orðin spennt fyrir hlaupa­ sumrinu mikla kom í ljós að ég var með góðkynja æxli í kálfa­ vöðvanum sem þurfti að fjar­ lægja. Þetta setti örlítið strik í reikninginn hjá mér en ég var til­ tölulega fljót að jafna mig og var farin að geta hreyft mig almenni­ lega um það bil mánuði eftir að­ gerð. Að þessum mánuði liðn­ um komst ég þó að því að ég var barnshafandi sem byrjaði með látum og tilheyrandi ógleði eins og ég hef sagt frá áður. Þetta hafði líka mikil áhrif á þol og styrk hjá mér, ásamt því að það var alltaf á niðurleið jafnt og þétt eftir því sem barnið stækk­ aði, sem er ekkert nema eðlilegt. Það kom mér þó mjög skemmti­ lega á óvart að eftir að ógleðinni lauk gat ég stundað líkamsrækt í þó nokkuð langan tíma eða þang­ að til grindin, pissublaðran, þolið og þreytan sögðu stopp, sem var eitthvað sem ég bjóst alls ekki við. Ég byrjaði snemma að finna til í grindinni en náði að halda verkjunum niðri nokkuð lengi með æfingum. Ég get svo sannar­ lega sagt að ég er dæmi þess að seinni meðganga þarf ekki endi­ lega alltaf að vera verri, munið það kæru konur. Ég er alveg viss um að líkam legur styrkur hefur eitthvað um það að segja og því svo ótrúlega mikilvægt að hreyfa sig og styrkja. En nóg með það. Þrátt fyrir ógleði og minna þol var lífið dá­ samlegt. Ég keypti mína fyrstu íbúð, trúlofaði mig og gifti og á jú von á mínu öðru barni. Ég get því ekki sagt annað en að árið hafi verið eitt það besta hingað til þrátt fyrir líkamlega erfiðleika og að ástin og barnalánið standi upp úr. Mikilvægi líkamsvirðingar Annað sem mér finnst standa upp úr á árinu er aukin vitundar­ vakning landsmanna um mikil­ vægi líkamsvirðingar. Þetta við­ fangsefni hefur mér verið hug­ leikið í langan tíma þar sem mér finnst svo skrítið að það hvern­ ig við lítum út, eða hversu há tala er á einhverri rafmagns­ vigt, segi okkur til um það hversu verðug við erum eða hversu vel Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur „Það eiga ekki allir að þurfa að fara í átak, minnka um tvær buxnastærðir, fela skvapið eða borða kál í öll mál til þess að finnast maður vera samfélaginu samboðinn.“ Yfirferð ársins: Heilbrigður líkami og líkamsvirðing Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur skrifar kveðjupistil þar sem hún rifjar upp liðið ár sem var viðburðaríkt. Nanna gekk í gegnum tímana tvenna, bæði veikindi og meðgöngu, og leggur áherslu á líkamsvirðingu og heilbrigði líkamans óháð útliti. Heilsuvísir Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið. Fást í öllum helstu matvöruverslunum og í fiskborði stórmarkaðanna. Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn 6 • LÍFIÐ 18. dEsEMbEr 2015 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -A B C 0 1 7 B B -A A 8 4 1 7 B B -A 9 4 8 1 7 B B -A 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.