Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 36
okkur á að líða. Ég hef oft skrif
að um líkamsvirðingu og finnst
tilvalið að stikla á stóru hlutun
um í enda ársins. Fólk er alls
konar. Við erum öll mismunandi
og því finnst mér alveg fáránlegt
að samfélagið segi okkur að allir
eigi að passa í sömu buxnastærð
ina eða að sú manneskja sem er
með hærri tölu á blessuðu vigtar
vinkonunni sé eitthvað verri eða
ekki eins falleg og sú sem er með
lægri tölu. Í mínum huga eru allir
fallegir, hvort sem þeir eru feit
ir eða mjóir (og já, það má segja
feitir, þetta er lýsingarorð, ekki
skammaryrði). Það eiga ekki allir
að þurfa að fara í átak, minnka
um tvær buxnastærðir, fela
skvapið eða borða kál í öll mál til
þess að finnast maður vera sam
félaginu samboðinn.
Ég hef lengi þurft að hafa fyrir
því að hugsa jákvætt um líkama
minn og enn þann dag í dag stend
ég sjálfa mig að því að segja
niðrandi hluti um hann. Í dag er
ég t.d. komin 35 vikur á leið og
stundum þegar ég horfi í speg
il sé ég ekkert annað en undir
hökuna sem er að myndast hjá
mér eða stækkandi læri og rass.
Ég tek ekki einu sinni eftir því
stundum að kúlan hafi stækkað
sem þýðir nú líklegast að barn
inu mínu líði vel og sé að þrosk
ast og dafna inni í mér. Já, ég er
nefnilega að gera stórmerkileg
an hlut, ég er að búa til barn inni
í líkama mínum og það er ekkert
skrítið að öll sú orka sem ég hef
fari í að hjálpa barninu að stækka
en ekki að minnka lærin eða að
passa að ég fái ekki undirhöku
því það væri líka fáránleg for
gangsröðun!
Elskum okkur sjálf
Það eru nokkrir hlutir sem ég hef
tileinkað mér í gegnum árin sem
ég þarf að vinna í á hverjum degi
en hafa hjálpað mér mikið í því
að hugsa fallega um sjálfa mig og
aðra og að líða vel í eigin skinni
og vil ég deila því hér með ykkur.
Byrjaðu hvern dag á jákvæð
um hugsunum. Þegar jákvæðn
in ræður ríkjum hjá okkur smit
um við út frá okkur og fólki líður
vel í kringum okkur. Hunsaðu
neikvæð ummæli um útlit ann
arra og hrósaðu fólki fyrir það
sem þér finnst hrósvert. Reyndu
þó að einblína ekki á útlitið þegar
þú hrósar því við erum svo mikið
meira og allt annað en útlit.
Stundaðu hreyfingu af ein
hverju tagi. Hreyfingin eykur
vellíðunartilfinningu og hjálpar
okkur að gera það sem við viljum
gera, hvort sem það er að kom
ast í gegnum daginn án þess að
leggja okkur, ganga upp á Esjuna
eða hlaupa maraþon.
Hafðu eitthvað til að stefna að
á hverjum degi. Markmið hjálpa
okkur einnig í því að ná þeim
áföngum sem við viljum ná og til
finningin að ná markmiðinu sínu
er engri lík.
Borðaðu hollan mat að stað
aldri en leyfðu þér það sem hug
urinn girnist líka. Hvort haldiði
að sé skemmtilegra að borða holl
an og næringarríkan mat flest
um stundum, líða vel af honum og
eiga fullt af orku til að nota í það
sem þú vilt gera og leyfa þér svo
að borða það sem þú vilt á jóla
hlaðborðinu eða skreppa einstaka
sinnum á Búlluna eða borða bara
brokkólí í kvöldmat af því að þig
langar svo að sjá einhverja tölu á
vigtinni? Mér finnst svarið alla
vega augljóst.
Síðast en ekki síst, elskaðu
sjálfa/n þig. Ég trúi því að ef þú
getur ekki elskað sjálfa/n þig, þá
hljóti að vera erfitt fyrir einhvern
annan að gera það. Þú ert eina
manneskjan sem þú þarft alltaf
að vera með, alls staðar og öllum
stundum. Lífið verður því líkleg
ast ansi erfitt og leiðinlegt ef þú
getur ekki elskað þig. Við gerum
öll mistök sem við lærum af og
stöndum uppi sem sterkari aðil
ar eftir að við lærum af þeim mis
tökum.
Ég vona að þetta hjálpi ein
hverjum og að þið hafið notið
pistlanna á árinu. Gleðilega hátíð
og hafið það notalegt með ykkar
nánustu.
K
æru landsmenn. Nú er
árið að líða og þetta mun
verða síðasta grein árs
ins frá mér. Alltaf þegar
nýja árið nálgast byrja ég
á að fara yfir liðið ár, hvernig það
hefur gengið, hvað stóð upp úr og
hvað hefði mátt fara betur.
Viðburðaríkt ár
Árið mitt var mjög viðburða
ríkt. Síðasta ári lauk ég með þátt
töku í Gamlárshlaupi ÍR sem var
mjög skemmtilegur endir á árinu
og í rauninni góð uppskeruhá
tíð þeirra æfinga sem ég stund
aði. Ég byrjaði árið í besta formi
lífs míns og leið mjög vel, bæði
andlega sem líkamlega. Ég hef
aldrei verið eins sterk og það sem
mér fannst gaman að finna fyrir
góðum ávinningi þeirrar vinnu
sem ég hafði lagt á mig eftir
barnsburð. Með bættri líkam
legri getu fann ég líka fyrir hlut
um sem ég hef sjálf ekki upplifað
svona sterkt áður. Ég hafði miklu
meiri orku, svaf betur, sótti eigin
lega bara í hollan mat og var allt
af til í að fara á æfingu.
Þegar byrjaði að vora og ég
var orðin spennt fyrir hlaupa
sumrinu mikla kom í ljós að ég
var með góðkynja æxli í kálfa
vöðvanum sem þurfti að fjar
lægja. Þetta setti örlítið strik í
reikninginn hjá mér en ég var til
tölulega fljót að jafna mig og var
farin að geta hreyft mig almenni
lega um það bil mánuði eftir að
gerð. Að þessum mánuði liðn
um komst ég þó að því að ég var
barnshafandi sem byrjaði með
látum og tilheyrandi ógleði eins
og ég hef sagt frá áður. Þetta
hafði líka mikil áhrif á þol og
styrk hjá mér, ásamt því að það
var alltaf á niðurleið jafnt og
þétt eftir því sem barnið stækk
aði, sem er ekkert nema eðlilegt.
Það kom mér þó mjög skemmti
lega á óvart að eftir að ógleðinni
lauk gat ég stundað líkamsrækt í
þó nokkuð langan tíma eða þang
að til grindin, pissublaðran, þolið
og þreytan sögðu stopp, sem var
eitthvað sem ég bjóst alls ekki
við. Ég byrjaði snemma að finna
til í grindinni en náði að halda
verkjunum niðri nokkuð lengi
með æfingum. Ég get svo sannar
lega sagt að ég er dæmi þess að
seinni meðganga þarf ekki endi
lega alltaf að vera verri, munið
það kæru konur. Ég er alveg viss
um að líkam legur styrkur hefur
eitthvað um það að segja og því
svo ótrúlega mikilvægt að hreyfa
sig og styrkja.
En nóg með það. Þrátt fyrir
ógleði og minna þol var lífið dá
samlegt. Ég keypti mína fyrstu
íbúð, trúlofaði mig og gifti og á
jú von á mínu öðru barni. Ég get
því ekki sagt annað en að árið
hafi verið eitt það besta hingað til
þrátt fyrir líkamlega erfiðleika
og að ástin og barnalánið standi
upp úr.
Mikilvægi líkamsvirðingar
Annað sem mér finnst standa
upp úr á árinu er aukin vitundar
vakning landsmanna um mikil
vægi líkamsvirðingar. Þetta við
fangsefni hefur mér verið hug
leikið í langan tíma þar sem mér
finnst svo skrítið að það hvern
ig við lítum út, eða hversu há
tala er á einhverri rafmagns
vigt, segi okkur til um það hversu
verðug við erum eða hversu vel
Nanna Árnadóttir
íþróttafræðingur
„Það eiga ekki allir
að þurfa að fara í
átak, minnka um tvær
buxnastærðir, fela
skvapið eða borða
kál í öll mál til þess
að finnast maður
vera samfélaginu
samboðinn.“
Yfirferð ársins: Heilbrigður
líkami og líkamsvirðing
Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur skrifar kveðjupistil þar sem hún rifjar upp liðið ár sem var viðburðaríkt. Nanna gekk í
gegnum tímana tvenna, bæði veikindi og meðgöngu, og leggur áherslu á líkamsvirðingu og heilbrigði líkamans óháð útliti.
Heilsuvísir
Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið.
Fást í öllum helstu matvöruverslunum
og í fiskborði stórmarkaðanna.
Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn
6 • LÍFIÐ 18. dEsEMbEr 2015
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-A
B
C
0
1
7
B
B
-A
A
8
4
1
7
B
B
-A
9
4
8
1
7
B
B
-A
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K