Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 38
M
argt hjálpast að við
það í þjóðfélaginu að
skrúfa upp vænting
ar um hvernig jólin
eigi að vera. Það
er bara að opna fjölmiðla, sama
hvers konar fjölmiðla. Já, í raun
inni er bara nóg að hafa augu og
eyru opin, alls staðar er eitthvað
sem minnir á að jólin eru að nálg
ast. Ef maður ætti að taka mark
á öllum auglýsingunum og írafár
inu, þá er ansi margt sem er gjör
samlega ómissandi fyrir jólin.
Reyndin er önnur, það er hægt að
halda jól á mismunandi hátt, það
þarf ekki að fara eftir ákveðinni
uppskrift.
Jólahefðir
Einu sinni var ungt par nýfarið
að búa. Þau ætluðu að halda sín
fyrstu jól saman og ákváðu að
hafa lambalæri á aðfangadags
kvöld eins og tíðkaðist í fjölskyld
um beggja. Hún sagði að þau
yrðu að fá það sagað í tvennt,
hann skildi ekki af hverju það
þyrfti og vildi steikja lærið í einu
lagi. Nei, það tíðkaðist í henn
ar fjölskyldu að saga lærið í
tvennt og svona skyldi það vera.
Hann vildi vita ástæðuna fyrir
þessu, hún gat ekki svarað því
og hringdi í mömmu sína til að
spyrja. Mamma hennar svaraði
að svona hefði þetta alltaf verið
í hennar fjölskyldu en hún vissi
í rauninni ekki af hverju þetta
væri betra en að steikja lærið í
heilu lagi. Hún skyldi hringja í
mömmu sína og spyrja. Það sýndi
sig að amman hafði verið með
svo lítinn ofn að eina leiðin til að
koma lærinu fyrir var að saga
það í tvennt.
Í síbreytilegum heimi getur
verið mjög gott og notalegt og ör
yggi í því að halda fast í hefðirn
ar. Fjölskylduhefðir verða aldrei
greinilegri en á jólunum en þær
geta orkað tvímælis. Fyrir suma
getur það þýtt gífurlegt stress að
ætla að halda þeim við.
Tilfinningar
Jól hafa mjög mismunandi þýð
ingu fyrir fólk en það sem ég held
að sé hægt að staðhæfa er að þau
beina kastljósi að tilfinningum.
Þær verði skýrari en á öðrum
tímum, allt verður greinilegra,
bæði vanlíðan og vellíðan.
Af því það er svo sterk áhersla
lögð á það að jólin séu fjölskyldu
hátíð verður það greinilegt ef
það eru átök og ósætti innan fjöl
skyldunnar. Þó að allt sé í sátt
og samlyndi er það stundum svo
að maður getur ekki haldið jól
með þeim sem mann langar til að
halda jól með og erfiðar tilfinn
ingar eins og sorg, söknuður og
einmanaleiki verða mjög áþreif
anlegar.
Mörg eru jólaævintýrin og
jólasöngvarnir sem fjalla um
nánd og samhyggju og margir
hlýja sér við góðar minningar frá
jólunum og hlakka til að halda jól
með sínum nánustu. Margir koma
„heim“ um jólin, hvar sem þeir
annars eru staddir í tilverunni.
Margar hamingjurannsóknir
sýna fram á að það að gera eitt
hvað fyrir aðra eykur þína eigin
hamingju. Ef þú óskar þér gleði
legra jóla er eitt af því sem þú
getur gert að gleðja aðra.
8 • LÍFIÐ 18. desember 2015
endurmetum jól og hefðir
hin sanna jólaanda er hvorki að finna í prjáli né pinklum og eiga sumir það til að missa sjónar á því sem raunverulega skiptir máli, sjálfri hjátíð ljóss
og friðar. Ásdís sálfræðingur hjá heilsustöðinni gefur lesendum ráð um hvernig megi hafa raunhæfar væntingar til jólanna, með og án gamalla hefða.
Ásdís Herborg Ólafsdóttir
sálfræðingur
heilsustodin.is gleðileg jól
Hérna eru nokkrar tillögur að því
hvað þú getur gert til að öðlast gleðileg
jól.
l Gerðu þér grein fyrir hvaða
væntingar þú hefur til jólanna.
eru þær raunhæfar? Hvaða
væntingar hafa aðrir til þín um
jólin?
l spyrðu. eru þær raunhæfar?
Hvernig getur þú glatt aðra um
jólin?
l Talið saman, hlustið og kom-
ist að samkomulagi um jólin í
stórum dráttum.
l mundu að þó að þú
haldir að þú hafir uppskriftina
að fullkomnum jólum þá eru jól
alls konar.
l Vittu til, þó að þú getir ekki
alveg fylgt þinni jólauppskrift
þá geta jólin orðið mjög gleði-
leg fyrir því.
l Unga parið? Ég held að þau
hafi ákveðið að vera með ham-
borgarhrygg á aðfangadags-
kvöld.
w
w
w.
fa
ce
bo
ok
.c
om
/O
pt
ic
al
St
ud
io
Gleraugu
eru góð
jólagjöf!
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
B
B
-9
8
0
0
1
7
B
B
-9
6
C
4
1
7
B
B
-9
5
8
8
1
7
B
B
-9
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K