Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.12.2015, Blaðsíða 38
M argt hjálpast að við það í þjóðfélaginu að skrúfa upp vænting­ ar um hvernig jólin eigi að vera. Það er bara að opna fjölmiðla, sama hvers konar fjölmiðla. Já, í raun­ inni er bara nóg að hafa augu og eyru opin, alls staðar er eitthvað sem minnir á að jólin eru að nálg­ ast. Ef maður ætti að taka mark á öllum auglýsingunum og írafár­ inu, þá er ansi margt sem er gjör­ samlega ómissandi fyrir jólin. Reyndin er önnur, það er hægt að halda jól á mismunandi hátt, það þarf ekki að fara eftir ákveðinni uppskrift. Jólahefðir Einu sinni var ungt par nýfarið að búa. Þau ætluðu að halda sín fyrstu jól saman og ákváðu að hafa lambalæri á aðfangadags­ kvöld eins og tíðkaðist í fjölskyld­ um beggja. Hún sagði að þau yrðu að fá það sagað í tvennt, hann skildi ekki af hverju það þyrfti og vildi steikja lærið í einu lagi. Nei, það tíðkaðist í henn­ ar fjölskyldu að saga lærið í tvennt og svona skyldi það vera. Hann vildi vita ástæðuna fyrir þessu, hún gat ekki svarað því og hringdi í mömmu sína til að spyrja. Mamma hennar svaraði að svona hefði þetta alltaf verið í hennar fjölskyldu en hún vissi í rauninni ekki af hverju þetta væri betra en að steikja lærið í heilu lagi. Hún skyldi hringja í mömmu sína og spyrja. Það sýndi sig að amman hafði verið með svo lítinn ofn að eina leiðin til að koma lærinu fyrir var að saga það í tvennt. Í síbreytilegum heimi getur verið mjög gott og notalegt og ör­ yggi í því að halda fast í hefðirn­ ar. Fjölskylduhefðir verða aldrei greinilegri en á jólunum en þær geta orkað tvímælis. Fyrir suma getur það þýtt gífurlegt stress að ætla að halda þeim við. Tilfinningar Jól hafa mjög mismunandi þýð­ ingu fyrir fólk en það sem ég held að sé hægt að staðhæfa er að þau beina kastljósi að tilfinningum. Þær verði skýrari en á öðrum tímum, allt verður greinilegra, bæði vanlíðan og vellíðan. Af því það er svo sterk áhersla lögð á það að jólin séu fjölskyldu­ hátíð verður það greinilegt ef það eru átök og ósætti innan fjöl­ skyldunnar. Þó að allt sé í sátt og samlyndi er það stundum svo að maður getur ekki haldið jól með þeim sem mann langar til að halda jól með og erfiðar tilfinn­ ingar eins og sorg, söknuður og einmanaleiki verða mjög áþreif­ anlegar. Mörg eru jólaævintýrin og jólasöngvarnir sem fjalla um nánd og samhyggju og margir hlýja sér við góðar minningar frá jólunum og hlakka til að halda jól með sínum nánustu. Margir koma „heim“ um jólin, hvar sem þeir annars eru staddir í tilverunni. Margar hamingjurannsóknir sýna fram á að það að gera eitt­ hvað fyrir aðra eykur þína eigin hamingju. Ef þú óskar þér gleði­ legra jóla er eitt af því sem þú getur gert að gleðja aðra. 8 • LÍFIÐ 18. desember 2015 endurmetum jól og hefðir hin sanna jólaanda er hvorki að finna í prjáli né pinklum og eiga sumir það til að missa sjónar á því sem raunverulega skiptir máli, sjálfri hjátíð ljóss og friðar. Ásdís sálfræðingur hjá heilsustöðinni gefur lesendum ráð um hvernig megi hafa raunhæfar væntingar til jólanna, með og án gamalla hefða. Ásdís Herborg Ólafsdóttir sálfræðingur heilsustodin.is gleðileg jól Hérna eru nokkrar tillögur að því hvað þú getur gert til að öðlast gleðileg jól. l Gerðu þér grein fyrir hvaða væntingar þú hefur til jólanna. eru þær raunhæfar? Hvaða væntingar hafa aðrir til þín um jólin? l spyrðu. eru þær raunhæfar? Hvernig getur þú glatt aðra um jólin? l Talið saman, hlustið og kom- ist að samkomulagi um jólin í stórum dráttum. l mundu að þó að þú haldir að þú hafir uppskriftina að fullkomnum jólum þá eru jól alls konar. l Vittu til, þó að þú getir ekki alveg fylgt þinni jólauppskrift þá geta jólin orðið mjög gleði- leg fyrir því. l Unga parið? Ég held að þau hafi ákveðið að vera með ham- borgarhrygg á aðfangadags- kvöld. w w w. fa ce bo ok .c om /O pt ic al St ud io Gleraugu eru góð jólagjöf! 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 B B -9 8 0 0 1 7 B B -9 6 C 4 1 7 B B -9 5 8 8 1 7 B B -9 4 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.