Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 42

Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 42
12 • LÍFIÐ 18. desember 2015 Því miður hækkar ekki hamingju- stuðullinn sjálfkrafa hjá öllum á að- ventunni og yfir jólahátíðina. Þegar fólk býr við félagslega einangrun og/eða hefur lítið á milli handanna til að gleðja sig og sína nánustu, eins og margt fólk með geðfötlun, getur upplifunin orðið enn sárari þegar allir „eiga“ að vera óvenju sælir í eigin skinni. „Besta jólagjöfin fyrir þennan hóp er oft innlit eða símhringing frá ætt- ingja, vini eða kunningja á aðvent- unni,“ segir Anna Gunnhildur Ólafs- dóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálp- ar, og bendir á að aðstandendur verði oft hissa á því hvað slíkar heimsóknir eða símtöl séu gefandi. „Stundum er fólk búið að leita lengi að hinum sanna jólaanda í verslun- armiðstöðvum, á jólahlaðborðum og jólatónleikum þegar hann loksins finnst í heimsókn hjá gömlum vini eða ættingja. Þannig leita margir langt yfir skammt að jólunum.“ Velsæld ekki trygging Velsæld og félagsleg færni eru heldur ekki trygging fyrir gleðileg- um jólum. „Ekkert okkar er ósnortið af samfélagslegum þrýstingi í des- ember. Hefðirnar segja okkur að þrífa, baka, skreyta, fara á jólatón- leika og jólahlaðborð. Samfélagið ætlast til að við sækjum uppskeru- hátíðir og föndrum með börnunum okkar í leik- og grunnskólum. Fjöl- miðlarnir segja okkur að fara á lík- amsræktarnámskeið til að komast örugglega í kjólinn fyrir jólin, kaupa stærri kjól eða láta sérsauma fyrir utan allar gjafirnar og matinn. Við þurfum að hafa sterk bein til að standast þennan þrýsting því rétt eins og Trölli sem stal jólunum vitum við innst inni að hinn eini sanni jólaandi verður aðeins fangaður í góðum, mannlegum samskiptum hvort sem fólk er fátækt eða ríkt,“ ítrekar hún og minnir á að sjaldan sé eins mikilvægt að einfalda líf sitt og setja sjálfan sig, sína nánustu og þá sem standa höllum fæti í forgang og einmitt á jólunum. Geðhjálp á erindi við alla Þó svo margir séu einmana um jólin segir Anna Gunnhildur aðsókn í ráð- gjöf til Geðhjálpar minnka að jafnaði rétt fyrir jólin. „Aðsóknin vex aftur upp úr miðjum janúar. Sístækkandi hópur notenda, aðstandenda og annarra sækir til okkar ráðgjöf og raunar má segja að algjör sprengja hafi orðið í ráðgjöfinni í kjölfar vit- undarvakningar í haust. Við erum ákaflega ánægð með hvað hópur- inn er að breikka og félögum í Geð- hjálp að fjölga ört. Lengi vel lagði Geðhjálp aðal- áherslu á að hjálpa veikasta hópn- um. Núna tölum við til breiðari hóps því að margir úti í samfélaginu búa yfir þeirri reynslu að hafa upplifað tímabundna geðræna erfiðleika. Þessi hópur á auðveldara en aðrir með að setja sig í spor veikra og hefur tækifæri til að leggja þeim lið með ómetanlegum hætti. Raunar erum við samt að tala um að við viljum og verðum að tala til allrar þjóðarinnar því að eitt af okkar markmiðum er að vinna að geðrækt og því verður ekki á móti mælt að allir búa bæði að andlegri og líkam- legri heilsu. Hvort tveggja verður að rækta á jólunum eins og aðra daga.“ Nánari upplýsingar um starfsemi Geð- hjálpar má finna á www.gedhjalp.is. Jólaandinn falinn í Góðum samskiptum „besta jólagjöfin fyrir þennan hóp er oft innlit eða símhringing frá ættingja, vini eða kunningja á aðventunni,“ segir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. mYNd/GVA Þó aðsókn í ráðgjöf á vegum Geðhjálpar minnki rétt fyrir jólin er ekki þar með sagt að öllum líði betur yfir jólahátíðina. anna G. ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, hvetur fólk til að gefa sér tíma til að setja mannleg samskipti í forgang yfir hátíðirnar. í dag, föstudag, renna 5 kr. af hverjum eldsneytislítra frá Olís og óB til Geðhjálpar. Auglýsing: Olís Og ÓB kynnA S Sendið jólasveinun- um þrettán hugskeyti um skynsamlegar skó- gjafir eins og ný nær- föt eða sokka fyrir jólin, mandar ínu eða lítið bréf og standið með þeim bræðrum ef þeir telja rétt að setja hráa kart- öflu í skóinn. S Verið tímanlega með und- irbúning og innkaup jóla- gjafa. S Forðist að vera með börn í látum og streitu í búðum á síðustu stundu. S Undirbúið jólamat sem krefst ekki allrar orku á aðfangadag heldur skipu- leggið mat jólanna með góðum fyrirvara og munið líka eftir einföld- um mat og barnvænum sem og smáhressingum. S Farið með börnin út að leika sér á aðfangadag og hreyfið þau ærlega á að- fangadag til að létta á spennu og eftirvæntingu. S Skiljið eftir einhverja pakka til að opna á jóla- dag til að kenna börn- um að njóta betur hverr- ar gjafar. Skrifið niður gefendur og rifjið þá upp til að börnin geti þakkað fyrir sig. S Gefið börnum líka tíma, útivist, hreyfingu og gleði það sem eftir lifir jóla til að hátíðin snúst ekki bara um pakkana og sælgætið. Við höldum áfram að fara yfir Snarráðin hennar Margréti Pálu Ólafsdóttur sem gaf nýlega út bókina Gleðilegt upp- eldi – góðir foreldrar. Bókin er stútfull af frábærum ráðum fyrir uppteknar fjöl- skyldur. Hérna koma góð ráð sem vert er að hafa í huga yfir hátíðarnar. Hugleiðing fyrir Hátíðarnar Snarráðin um jólin 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 B B -8 9 3 0 1 7 B B -8 7 F 4 1 7 B B -8 6 B 8 1 7 B B -8 5 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.