Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 56

Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 56
Í dag 19.00 Njarðvík-Grindavík Sport 19.45 Birmingham - Cardiff Sport 2 22.00 Körfuboltakvöld Sport 01.00 NBA: Spurs - Clippers Sport Domino’s-deild karla: 19.15 Njarðvík - Grindavík Njarðvík Domino’s-deild kvenna: 19.15 Stjarnan - Hamar Ásgarður MMA Eftir tvö töp í síðustu þremur bardögum Gunnars Nelson er ljóst að uppgangur hans innan UFC verð- ur ekki jafn hraður og aðdáendur hans vonuðust til í upphafi ferils hans innan bardagasambandsins bandaríska. Gunnar tapaði um helgina fyrir Brasilíumanninum Demian Maia sem vann yfirburða- sigur á Íslendingnum sterka. Við tapið féll Gunnar um tvö sæti á styrkleikalista UFC í veltivigt. Fréttablaðið fékk álit þriggja mikilla áhugamanna um UFC og eru þeir á einu máli um að tapið fyrir Maia um helgina muni ekki hafa jafn slæm áhrif á feril Gunnars í UFC og margir óttast. „Það er algjör óþarfi að örvænta,“ segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, sem lýsti bardaganum á Stöð 2 Sport um helgina. Aðrir sem Fréttablaðið ræddi við eru Pétur Marinó Jóns- son og Guttormur Árni Ársælsson sem hafa báðir lengi fylgst með bardagaíþróttum og fjallað um þær í fjölmiðlum. „Þetta er ekki jafn mikið áfall og margir telja,“ segir Guttormur Árni sem undrast ekki að margir hafi áhyggjur af framtíð Gunnars eftir bardagann. „Ég hef heyrt menn tala á þeim nótum að þetta tap sé mikið bakslag fyrir hann en ég held að það sé ekki raunin. Umræðan úti er fremur á þann veg að bardaginn sýndi hversu ótrúlega fær Maia er fremur en að tala illa um hæfileika Gunnars.“ Pétur Marinó, sem var viðstaddur bardagann í Las Vegas, segir að menn séu afar fljótir að gleyma í blönduðum bardagalistum. „Það man enginn lengra aftur í tímann en síðasta bardaga. Menn eru fljótir að afskrifa þig ef þú varst ekki stór- kostlegur í síðasta bardaga. Þegar Bara síðasti bardagi skiptir máli Tap Gunnars Nelson í UFC um helgina dregur ekki úr væntingum íslenskra sérfræðinga í MMA, þó svo að það muni seinka uppgangi hans innan íþróttar- innar. Þeir vilja að Gunnar berjist oftar á næsta ári en oft áður. Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@frettabladid.is Nýjast Domino’s-deild karla Keflavík - Stjarnan 87-85 Stigahæstir: Earl Brown 19/18 fráköst, Guðmundur Jónsson 13, Valur Orri Valsson 13 - Al’lonzo Coleman 39/18 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 16. KR - ÍR 89-58 Stigahæstir: Michael Craion 21/12 fráköst, Þórir Þorbjarnarson 16 - Sveinbjörn Claes- sen 16, Jonathan Mitchell 15/13 fráköst. Höttur - Haukar 68-88 Stigahæstir: Tobin Carberry 24/10 fráköst, Hreinn Gunnar Birgisson 15 - Kári Jónsson 29, Haukur Óskarsson 25. Snæfell - Þór Þorl. 82-100 Stigahæstir: Sherrod Wright 29/10 fráköst, Austin Magnus Bracey 22 - Vance Hall 37/10 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 17. Tindastóll - FSu 107-80 Stigahæstir: Jerome Hill 32/12 fráköst, Darrel Lewis 27 - Christopher Woods 30/12 fráköst, Hlynur Hreinsson 15. Efst Keflavík 18 KR 18 Haukar 14 Stjarnan 14 Þór Þorl. 14 Njarðvík 12 Neðst Tindastóll 12 Grindavík 8 ÍR 8 Snæfell 8 FSu 4 Höttur 0 Olísdeild karla Akureyri - ÍBV 25-25 Markahæstir: Andri Snær Stefánsson 6/2, Bergvin Þór Gíslason 6/2 - Theodór Sigur- björnsson 7/1, Kári Kristjánsson 7/4. Víkingur - Valur 20-21 Markahæstir: Ægir Hrafn Jónsson 5, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 4/1 - Geir Guðmunds- son 6, Daníel Þór Ingason 5. Afturelding - Fram 22-21 Markahæstir: Árni Bragi Eyjólfsson 12/4, Birkir Benediktsson 5 - Þorgrímur Smári Ólafsson 6, Garðar B. Sigurjónsson 5/3. Efst Haukar 30 Valur 28 Fram 21 ÍBV 18 Akureyri 17 Neðst Afturelding 17 Grótta 16 FH 14 ÍR 11 Víkingur 6 MoUriNHo LÁtiNN FArA Stjórnarmenn Chelsea ákváðu í gær að segja knattspyrnustjór- anum José Mourinho upp störfum. Portúgalinn stýrði Chelsea til Englandsmeistaratitils á síðasta tímabili en í ár hefur hvorki gengið né rekið hjá liðinu. Chelsea hefur tapað 9 af 16 leikjum sínum og situr í 16. sæti ensku úrvals- deildarinnar með aðeins 15 stig, einu stigi frá fallsæti. Ekki liggur fyrir hver tekur við stjórastarfinu hjá Chelsea en Guus Hiddink þykir líklegur kostur. menn vinna á ný þá ertu aftur orð- inn frábær. Gunnar er enn á fínum aldri [27 ára] og ég hef enn sömu trú á honum á áður. tapið breytir því ekki.“ Fullmikil svartsýni Dóri bendir á að vegferð núverandi UFC-meistara í veltivigt, robbie Lawler, á toppinn hafi ekki alltaf verið greið. Lawler hóf feril sinn í UFC árið 2002 en tveimur árum síðar datt hann út eftir að hafa tapað þremur af fjórum bardögum. Næstu rúmu átta árin barðist hann í öðrum og minni keppnum áður en hann komst aftur að hjá UFC, þar sem hann varð svo meistari í fyrra. „Gunni á svo margt eftir ógert og það er fullmikil svartsýni að ætla að afskrifa hann núna. Honum var refsað gegn Maia og það gerist þegar þú ert kominn í þennan gæðaflokk,“ segir hann og bætir við að það sé ekki auðvelt að takast á við jafn öfl- ugan glímumann og Maia, hversu góður glímumaður sem Gunnar sé sjálfur. „Það er ekkert smáræði að fá svona mann á bakið á sér. Það er mjög þreytandi og dregur úr manni orku. Það gerðust mjög fallegir hlut- ir í fyrstu lotunni og Gunni náði að verjast honum vel framan af, enda hefur hann áður keppt við menn í brasilísku jiu-jitsu sem eru jafn góðir og Maia. Þetta var bara ekki hans kvöld.“ Guttormur tekur undir þetta og bendir á að fáir hefðu getað varist Maia í þessari stöðu. „Það er sama í hversu góðu formi þú ert. Ef þú ert með svona mann sem bakpoka þá mun draga talsvert af þér,“ segir hann. Gott að æfa með Conor Allir eru sammála um að það henti Gunnari vel að berjast samtímis Conor McGregor, sem er nú orðinn UFC-meistari í fjaðurvigt. „Þeim finnst þægilegt að æfa sig saman, eru með sama þjálfara og hafa allt sitt lið í sama taktinum,“ segir Pétur Marinó. „Gunnari finnst sjálfum að það henti sér vel að æfa með öðrum bardagamönnum sem eru að berjast á sama tíma og hann og ég held að það sé rétt metið hjá honum.“ Guttormur segir að þeir séu ólíkir bardagamenn og það sé gott fyrir slíka menn að æfa saman. „Conor dregur svo marga Íra að sér og Írarnir elska Gunna líka. Ekki er það verra,“ bendir hann á. Guttormur hefur enn fremur ekki áhyggjur af að tapið um helgina muni gera nokkuð annað en að efla Gunnar. „Honum seinkar eitt- hvað á vegferð sinni upp metorða- stigann. Hann var spenntur fyrir því að keppa um titilinn á næsta ári en líklega verður ekki af því, sérstak- lega miðað við hvað það er mikið af sterkum mönnum í hans deild. En ég held að hann eigi eftir að vinna sig fljótt upp aftur og standa sig afar vel í næsta bardaga.“ Gunni á svo margt eftir ógert og það er fullmikil svartsýni að ætla að afskrifa hann núna. Halldór Halldórsson, Dóri DNA Hvernig á 2016 að vera fyrir Gunnar Nelson? Annar tónn eftir næsta bardaga „Ég vil að að Gunnar taki þrjá bardaga á næsta ári,“ segir Dóri DNA. „Ég reikna með að hann fái einhvern andstæðing sem er á svipuðum stað á styrkleikalist- anum og hann.“ Hann segir mikilvægt að Gunnar missi ekki dampinn þrátt fyrir tapið gegn Demian Maia um helgina. „Sérfróðir menn hafa talað um svínslegar bætingar hjá honum og við megum ekki vera of svartsýn. Eins og einhver góður maður sagði – ef þú tapar ekki af og til í MMA þá ertu að berjast við ranga fólkið.“ Fljótt aftur í hringinn „Ef Gunnar nær að vinna 3-4 bardaga á næsta ári þá er hann kominn við toppinn í sínum þyngdarflokki. Ég vil að hann fari fljótt aftur í hringinn svo að hann nái að minnsta kosti þremur bar- dögum á næsta ári,“ segir Gutt- ormur Árni Ársælsson. „Ég reikna með að næsti and- stæðingur Gunnars verði ein- hver sem er fyrir utan topp tíu á styrkleikalistanum. En ég hef ekki nokkrar áhyggjur af því að Gunnar muni ekki standa sig vel í næsta bardaga.“ Vorkenni næsta andstæðingi „Ég vil að Gunnar byrji á því að berjast við einhvern svipaðan and- stæðing og John Hath- away, sem hann átti upphaflega að mæta á UFC 189 í sumar. Einhvern sem er rétt utan við topp fimmtán en er samt sterkur, með reynslu og ágætisnafn,“ segir Pétur Marinó Jónsson. „Ég sé fyrir mér að Gunnar komi fáránlega sterkur til leiks og leiki sér að honum. Ég vorkenni næsta andstæðingi Gunnars,“ segir hann og bætir við að hann vilji fá þrjá bardaga á næsta ári. „Það hefur bara einu sinni gerst áður og það var í fyrra.“ 1 8 . D e S e M b e r 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U r28 S p O r T ∙ F r É T T A b L A ð i ð sport 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 B B -A B C 0 1 7 B B -A A 8 4 1 7 B B -A 9 4 8 1 7 B B -A 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.