Fréttablaðið - 18.12.2015, Page 58
✿ Sjö sinnum í undanúrslit á stórmótum á sex árum
3
2009
HM
8
2
Sigrar
Töp
1
2011
HM
8
1
Sigrar
Tap
1
2010
EM
7
1
Sigrar
Tap
1
2012
ÓL
5
2
1
Sigrar
Töp
Jafnt
2
2012
EM
6
2
Sigrar
Töp
1
2014
EM
7
1
Sigrar
Töpsæti
2013
HM
5.
6 1
Undan-
úrslit
2015
HM
6 1
Þórir Hergeirsson sést hér stjórna norska kvennalandsliðinu í sigurleiknum á móti Svartfjallalandi í átta liða úrslitum HM kvenna í Danmörku. Þetta var sjötti sigurleikur norska liðsins í röð. Fréttablaðið/AFP
Handbolti Þórir Hergeirsson er enn
á ný búinn að koma kvennalandsliði
Noregs í handbolta í undanúrslit á
stórmóti en norsku stelpurnar unnu
Svartfjallaland í átta liða úrslitunum
og mæta Rúmeníu í undanúrslitum í
kvöld.
Þetta er í sjöunda sinn á átta stór-
mótum liðsins undir hans stjórn sem
norsku stelpurnar spila um verðlaun
og það eru góðar líkur á því að fimmta
gullið sé á leiðinni. Norska kvenna-
landsliðið er sannur gleðigjafi fyrir
norsku þjóðin fyrir jól og það hefur
nánast hægt verið að treysta á það
undanfarin ár að norsku stelpurnar
spili og fagni sigrum í jólamánuðinum.
Norska liðið þykir nú afar sigur-
stranglegt á mótinu enda margir á
því að leikurinn við Svartfjallaland
hafi verið hálfgerður úrslitaleikur á
mótinu. Ofan á það bætist að dönsku
stelpurnar töpuðu fyrir Rúmeníu í
framlengingu í átta liða úrslitunum og
rússneska liðið datt út á móti Póllandi.
R ú s s a r n i r u n n u e i n m i t t
norska liðið í fyrsta leik en síðan
þá hafa stelpurnar hans Þóris
unnið sex leiki í röð á mótinu.
Þórir var enginn nýgræðingur þegar
hann tók við norska landsliðinu af
Marit Breivik árið 2009.
Þórir hafði aðstoðað Marit Breivik
í átta ár og átt mikinn þátt í fjórum
gullverðlaunum og þremur silfurverð-
launum norska liðsins á þeim tíma.
Þórir á því mikið í þeim ótrúlega
árangri norska liðsins að vera að spila
um verðlaun í ellefta sinn á síðustu tólf
stórmótum.
Tap í fyrsta leik boðar gott
Tapið í fyrsta leik á móti Rússum var
í þriðja sinn sem norska liðið hefur
tapað fyrsta leik á stórmóti síðan Þórir
tók við og það ætti bara að boða gott
því í bæði hin skiptin, á HM 2011 og
ÓL 2012, fagnaði Þórir og stelpurn-
ar með gullið um hálsinn í mótslok.
Norska liðið vann líka sinn
50. stórmótaleik undir stjórn
Þóris á þessum HM en sá sigur
kom einmitt á móti Rúmeníu í
riðlakeppninni, mótherjunum
í undanúrslitunum í kvöld.
Rúmenska liðið vann bara Púertó
Ríkó og Kasakstan í riðlakeppn-
inni en er búið að slá út Danmörku
í útsláttarkeppninni. Þetta er þegar
orðinn besti árangur Rúmenanna á
HM undanfarin 42 ár en rúmensku
stelpurnar hafa fjórum sinnum
orðið í fjórða sæti á þessum tíma.
Sex úrslitaleikir á sex árum?
Nú er að sjá hvort þær rúmensku haldi
áfram að koma á óvart á heimsmeist-
aramótinu en flestir veðja þó á það að
Þórir komi liðinu í sjötta úrslitaleikinn
á sex árum.
Vinni þær norsku leikinn
í kvöld bíður liðsins úrslita-
leikur á móti annaðhvort Pól-
landi eða Hollandi á sunnudaginn.
ooj@frettabladid.is
Gleður norsku þjóðina fyrir hver jól
Þórir Hergeirsson er sannur íslenskur jólasveinn fyrir norsku þjóðina en norsku stelpurnar eru enn á ný að fara spila um verðlaun á
stórmóti rétt fyrir jólin. Norska kvennalandsliðið mætir spútnikliði Rúmeníu í kvöld í undanúrslitaleik á HM kvenna í Danmörku.
Körfubolti Fyrri umferð Dominoʼs
deildar karla í körfubolta klárast í kvöld
þegar Njarðvíkingar taka á móti Grindavík
í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Það er við hæfi
að þessi lið mætist í lokaumferðinni enda í
sömu stöðu þar sem bandarískir atvinnu-
menn beggja liða hafa yfirgefið sín lið.
Njarðvíkingar unnu sinn fyrsta leik eftir
að Marquise Simmons var rekinn og það
á heimavelli Haukanna, einu af liðunum
sem munu keppa við þá um heimvallarrétt
í úrslitakeppninni.
Grindvíkingar þekkja það líka að spila
án Bandaríkjamanns og eru líka með fleiri
sigurleiki en tapleiki þegar þeir hafa spilað
án bandarísks leikmanns á þessari leiktíð.
Grindvíkingar unnu aftur á móti alla þrjá
sigra sína Kanalausir áður en Eric Wise
kom til liðsins. Grindavík hefur jafnframt
tapað síðustu þremur deildarleikjum
sínum þar sem liðið hefur aðeins skorað
71,3 stig að meðaltali í þeim.
Grindvíkingar hefðu vissulega þurft á
nýju blóði að halda til að rífa sig upp úr
ládeyðu síðustu vikna en fá nú að mæta
kanalausu liði eins og var raunin þegar
þeir löbbuðu yfir ÍR-inga í Seljaskólanum
í október.
Annars hefur Kanalausu liðunum gengið
vel í Dominoʼs deild karla í vetur og hafa
samanlagt unnið 9 leiki af 14 sem þýðir
64 prósent sigurhlutfall. Haukarnir unnu
níunda leikinn á Egilsstöðum í gær.
Leikur Njarðvíkur og Grindavíkur verður
sýndur beint á Stöð 2 Sport og klukkan
22.00 munu Kjartan Atli Kjartansson og
félagar fara yfir alla umferðina í Dominoʼs
körfuboltakvöldi. – óój
Kanalaus lið mætast í síðasta leik ársins í Ljónagryfjunni í kvöld
GrindavíK
Með Eric Wise
5 leikir 1 sigur, 4 töp
Án Kana
5 leikir 3 sigrar, 2 töp
tindaStóll
Með Jerome Hill
8 leikir (3 sigrar, 5 töp)
Án Kana
2 leikir (2 sigrar)
ír
Með Jonathan Mitchell
7 leikir (3 sigrar, 4 töp)
Án Kana
3 leikir (1 sigur, 2 töp)
njarðvíK
Með Marquise Simmons
9 leikir 5 sigrar, 4 töp
Án Kana
1 leikur 1 sigur
fSu
Með Chris Anderson og
Chris Woods
8 leikir (1 sigur, 7 töp)
Án Kana
2 leikur 1 sigur, 1 tap
HauKar
Með Stephen Madison
10 leikir 6 sigrar, 4 töp
Án Kana
1 leikur 1 sigur
Haukur Helgi Pálsson er að skila Kanatölum í
Njarðvíkurliðunu. FréTTAblAðið(PJETUr
Kanalausu liðin í Domino’s
9 sigrar 64% 5 töp 36%14 leikir
Grindvíkingar unnu fyrstu þrjá
deildarleiki sína í vetur án banda-
rísks leikmanns en hafa síðan aðeins
unnið 1 af 7 leikjum sínum í Dom-
inos̓ deild karla.
1 8 . d e S e m b e r 2 0 1 5 f ö S t u d a G u r30 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-9
8
0
0
1
7
B
B
-9
6
C
4
1
7
B
B
-9
5
8
8
1
7
B
B
-9
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K