Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 72

Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 72
Þetta var bara hugdetta, ég var að hjóla einhvern tímann í sumar og datt í hug að það gæti verið skemmtilegt að hafa þema jól,“ segir Hólm- fríður Helga Sigurðardóttir sem ásamt fjölskyldu sinni heldur upp á Stjörnu- stríðsjól í ár. Öllu er til tjaldað á heimilinu og jólaskrautið að sjálfsögðu allt í Stjörnu- stríðsstíl og mest allt búið til af fjöl- skyldumeðlimum en jólatréð er skreytt með Stjörnustríðsfígúrum. „Ég leitaði að myndum á netinu, prentaði þær út og plastaði svo. Ég er kennaranemi og á mína eigin plöstunarvél, svona staðal- búnaður kennarans,“ segir hún og hlær en á vegg í stofunni er merki The Rebel Alliance formað úr jólaseríum. Það er þó ekki einungis skrautið sem fylgir ákveðnu þema þetta árið því fleiri hlutar jólahalds fjölskyldunnar verða sveipaðir Stjörnustríðsljóma þetta árið. „Við höldum jólaboð annan í jólum þar sem verður Star Wars og náttfataþema, fólk má ráða hvort það mætir í náttföt- um eða búningum,“ segir Hólmfríður glöð í bragði en einnig munu jólaföt fjölskyldunnar bera keim af þemanu Að aðfangadag verða meira að segja Star Wars þemaföt og bíður Hólmfríður spennt eftir geislasverðspilsi sem hún fær sent að utan og í sendingunni koma einnig piparkökuform sem að sjálfsögðu falla að þemanu, það er því ljóst að það verða ein alls- herjar Star Wars jól á heimilinu. „Fyrst ætluðum við að halda Harry Potter jól en svo setti ég þetta í samhengi og hugsaði að auðvitað myndi ég halda Star Wars jól. Pabbi minn dó í fyrra og hann var mjög mikill Star Wars maður þannig þetta er svona svolítið fyrir hann. Hann hefði kunnað að meta þetta því honum fannst jólin og allt þetta kapphlaup við tímann skrýtið. Hann vildi bara hafa þetta rólegt.“ Hólmfríður segir að sér hafi alla tíð þótt jólin fremur skrýtinn tími og eftir að hún varð mamma hafi henni fundist pressan um að halda hin fullkomnu jól aukast. „Ég var alltaf að hugsa að næstu ár fengi ég mér svona jólaskraut og þá yrði allt fullkomið og ég myndi elda svona marga rétti og allt yrði fullkomið um jólin.“ Hún segir börnin ekki síður hafa gaman af þessum óhefðbundnu jóla- skreytingum. „Þau eru brjálæðislega spennt og finnst þetta æðislegt. Við horfðum fyrst á Star Wars með þeim í janúar og þau klæddu sig upp í Star Wars búninga á öskudaginn,“ segir hún og heldur áfram: „Þau alveg heilluðust af þessu, ég held að þetta sé þeim eigin- lega bara í blóð borið að elska Star Wars og bara nördalega hluti yfirhöfuð.“ Líkt og gefur augaleið er Hólmfríður sjálf mikill aðdáandi Stjörnustríðs og hefur verið í langan tíma og mun hún á næstunni fá sér Stjörnustríðshúðflúr sem vinur hennar vinnur nú að því að hanna. Hún segist vonast til þess að þemajólin séu komin til að vera. Fyrir- komulagið minnki stressið yfir að allt þurfi að vera fullkomlega skreytt, geri aðventuna enn skemmtilegri auk þess sem börnin fái að taka fullan þátt og strax er farið að ræða þemu næstu ára. „Ég er búin að lofa börnunum að hafa Harry Potter jól næst og svo er mað- urinn minn búinn að biðja um Blues Brothers jól. Við erum líka búin að ræða Múmínálfajól og Star Trek jól,“ segir Hólmfríður glöð í bragði að lokum. gydaloa@frettabladid.is Haldið upp á jólin í Stjörnustríðsstíl Jólatré Hólmfríðar Helgu Sigurðardóttur og fjölskyldu er skreytt með Stjörnustríðsfígúrum og auk þess verða jólafötin í anda Stjörnustríðs. Stefna á að halda Harry Potter jól á næsta ári. Hólmfríður Helga ásamt dóttur sinni en Hólmfríður segir börnin hæstánægð með fyrir- komulagið. Aðventukransinn er engin undantekning frá þemanu. Skreytt hefur verið hátt og lágt á heimilinu.Jólatréð er þakið plöstuðum Stjörnu- stríðsfígúrum og á bak við sést glitta í Leiu prinsessu. Jabba the Hutt í góðum félagsskap. FréttAbLAðið/Ernir Vikan 28.10–3.11. 01.11.-22.11.2015 Ævisögur2 Mikael með magnaða bók Fréttablaðið Stundin 1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r44 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð Lífið 1 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :4 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 B B -C 9 6 0 1 7 B B -C 8 2 4 1 7 B B -C 6 E 8 1 7 B B -C 5 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 8 0 s _ 1 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.