Fréttablaðið - 18.12.2015, Qupperneq 72
Þetta var bara hugdetta, ég var að hjóla einhvern tímann í sumar og datt í hug að það gæti verið skemmtilegt að hafa þema jól,“ segir Hólm-
fríður Helga Sigurðardóttir sem ásamt
fjölskyldu sinni heldur upp á Stjörnu-
stríðsjól í ár.
Öllu er til tjaldað á heimilinu og
jólaskrautið að sjálfsögðu allt í Stjörnu-
stríðsstíl og mest allt búið til af fjöl-
skyldumeðlimum en jólatréð er skreytt
með Stjörnustríðsfígúrum. „Ég leitaði
að myndum á netinu, prentaði þær út
og plastaði svo. Ég er kennaranemi og á
mína eigin plöstunarvél, svona staðal-
búnaður kennarans,“ segir hún og hlær
en á vegg í stofunni er merki The Rebel
Alliance formað úr jólaseríum.
Það er þó ekki einungis skrautið sem
fylgir ákveðnu þema þetta árið því fleiri
hlutar jólahalds fjölskyldunnar verða
sveipaðir Stjörnustríðsljóma þetta árið.
„Við höldum jólaboð annan í jólum þar
sem verður Star Wars og náttfataþema,
fólk má ráða hvort það mætir í náttföt-
um eða búningum,“ segir Hólmfríður
glöð í bragði en einnig munu jólaföt
fjölskyldunnar bera keim af þemanu
Að aðfangadag verða meira að segja
Star Wars þemaföt og bíður Hólmfríður
spennt eftir geislasverðspilsi sem hún
fær sent að utan og í sendingunni
koma einnig piparkökuform sem
að sjálfsögðu falla að þemanu, það
er því ljóst að það verða ein alls-
herjar Star Wars jól á heimilinu.
„Fyrst ætluðum við að halda
Harry Potter jól en svo setti ég þetta
í samhengi og hugsaði að auðvitað
myndi ég halda Star Wars jól. Pabbi
minn dó í fyrra og hann var mjög mikill
Star Wars maður þannig þetta er svona
svolítið fyrir hann. Hann hefði kunnað
að meta þetta því honum fannst jólin
og allt þetta kapphlaup við tímann
skrýtið. Hann vildi bara hafa þetta
rólegt.“
Hólmfríður segir að sér hafi alla tíð
þótt jólin fremur skrýtinn tími og eftir
að hún varð mamma hafi henni fundist
pressan um að halda hin fullkomnu jól
aukast. „Ég var alltaf að hugsa að næstu
ár fengi ég mér svona jólaskraut og þá
yrði allt fullkomið og ég myndi elda
svona marga rétti og allt yrði fullkomið
um jólin.“
Hún segir börnin ekki síður hafa
gaman af þessum óhefðbundnu jóla-
skreytingum. „Þau eru brjálæðislega
spennt og finnst þetta æðislegt. Við
horfðum fyrst á Star Wars með þeim
í janúar og þau klæddu sig upp í Star
Wars búninga á öskudaginn,“ segir hún
og heldur áfram: „Þau alveg heilluðust
af þessu, ég held að þetta sé þeim eigin-
lega bara í blóð borið að elska Star Wars
og bara nördalega hluti yfirhöfuð.“
Líkt og gefur augaleið er Hólmfríður
sjálf mikill aðdáandi Stjörnustríðs og
hefur verið í langan tíma og mun hún
á næstunni fá sér Stjörnustríðshúðflúr
sem vinur hennar vinnur nú að því að
hanna. Hún segist vonast til þess að
þemajólin séu komin til að vera. Fyrir-
komulagið minnki stressið yfir að allt
þurfi að vera fullkomlega skreytt, geri
aðventuna enn skemmtilegri auk þess
sem börnin fái að taka fullan þátt og
strax er farið að ræða þemu næstu ára.
„Ég er búin að lofa börnunum að hafa
Harry Potter jól næst og svo er mað-
urinn minn búinn að biðja um Blues
Brothers jól. Við erum líka búin að
ræða Múmínálfajól og Star Trek jól,“
segir Hólmfríður glöð í bragði að
lokum. gydaloa@frettabladid.is
Haldið upp á jólin
í Stjörnustríðsstíl
Jólatré Hólmfríðar Helgu Sigurðardóttur og fjölskyldu er skreytt
með Stjörnustríðsfígúrum og auk þess verða jólafötin í anda
Stjörnustríðs. Stefna á að halda Harry Potter jól á næsta ári.
Hólmfríður
Helga ásamt
dóttur
sinni en
Hólmfríður
segir börnin
hæstánægð
með fyrir-
komulagið.
Aðventukransinn er engin
undantekning frá þemanu.
Skreytt hefur
verið hátt og lágt
á heimilinu.Jólatréð er þakið
plöstuðum Stjörnu-
stríðsfígúrum og á
bak við sést glitta í
Leiu prinsessu. Jabba the Hutt í
góðum félagsskap.
FréttAbLAðið/Ernir
Vikan 28.10–3.11.
01.11.-22.11.2015
Ævisögur2
Mikael með magnaða bók
Fréttablaðið
Stundin
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r44 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Lífið
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-C
9
6
0
1
7
B
B
-C
8
2
4
1
7
B
B
-C
6
E
8
1
7
B
B
-C
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K