Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 74
Khaled Mohamed Khaled er 40 ára plötusnúður sem hefur verið notið mikilla vinsælda og þá sérstaklega upp
á síðkastið með Snapchat-aðgangi
sínum. Hann hefur gert það gott
með tónlist sinni og vinnur reglu-
lega með helstu stjörnunum í hipp-
hopp- og R&B-heiminum.
Khaled fæddist í New Orleans og
byrjaði ungur að vinna í plötubúð
en þar kviknaði áhugi hans á hipp-
hopptónlist. Á meðan hann starfaði
þar hjálpaði hann ungum röppur-
um á borð við Lil Wayne, Birdman
og Mavado að koma sér á framfæri.
Hann færði sig fljótt yfir í að starfa
sem útvarpsmaður en þaðan fór
ferillinn almennilega á flug. Hann
hefur gefið út átta plötur en athygli
hefur vakið að hann hvorki syngur
á þeim né semur lögin.
Af hverju er DJ Khaled frægur?
Margir velt því fyrir sér fyrir hvað Dj
Khaled sé frægur fyrir nákvæmlega.
Flestir þekkja hann sem manninn
sem öskrar „DJ Khaled“ í byrjun
laga eða „We the best“. Fyrir utan
það syngur hann ekki í lögunum og
semur þau heldur ekki. Vinnan hans
felst fyrst og fremst í því að finna
upprennandi lagahöfunda, velja
flott lög og para þau við söngvara og
rappara. Hann gerir það vel og hefur
staðið fyrir mörgum slögurum sem
rata yfirleitt hátt á Billboard-listann
hverju sinni.
Hann vinnur reglulega með tón-
listarmönnum á borð við Drake,
Future, Chris Brown og Jeremih en
þeir lofsyngja hann allir. Hann býr
í flottu húsi, keyrir um á flottum
bílum og er með einkakokk sem
eldar fyrir hann á hverjum degi.
Hvað er hægt að læra
af DJ Khaled?
Það er óhætt að segja að ef einhverj-
um líður eins og lífið sé að leika
hann grátt þá er öruggt að DJ
Khaled geti gert eitthvað
í málunum. Hann er óendanleg
uppspretta innblásturs og góðra
strauma sem er oft nauðsynlegt inn
í lífið. Snapchat-aðgangurinn snýst í
grófum dráttum um að kenna fylgj-
endum hans hvernig á að ná árangri
í lífinu. Hann er ófeiminn við að leyfa
aðdáendum sínum að fylgjast með
lífi sínu. Það lítur þannig út að hann
leggi ekki símann frá sér yfir dag-
inn enda tekur hann meðal annars
upp myndbönd á meðan hann er í
sturtunni.
Venjulegur dagur hjá DJ Khaled
Dj Khaled byrjar á því að fara í lyft-
una á heimilinu sínu. Þannig kemur
hann sér niður í eldhús þar sem
kokkurinn hans er búinn að elda
morgunmat fyrir hann. Á boðstólum
eru yfirleitt hrærð egg, pylsur, beikon
og brauð.
Eftir það fer hann að vökva plönt-
urnar sínar og hugar að ljónastyttun-
um sínum. Það er einn mikilvægasti
parturinn af deginum að sögn hans.
Eftir það er kokkurinn hans tilbúinn
með hádegismat fyrir hann. Því
næst fer hann annaðhvort að keyra
um í Rolls
Royce inum
sínum eða
á sæþotu
o g h e i m -
sækir vini
sína eða fer
í stúdíóið að
vinna. Hann
endar yfirleitt
daginn á einum
vindli í sund-
lauginni. Áður
en hann fer að
sofa ber hann á
sig kókoskrem
enda inniheldur
það nauðsynleg
næringarefni fyrir
húðina. DJ Khaled
lifir hátt enda á
hann það skilið.
Þeir sem hafa
áhuga á að fylgja DJ
Khaled á Snapchat
geta bætt honum við
vinalistann undir not-
andanafninu djkhal
ed 305.
Yfir 2 milljónir manna fylgja
honum á Snapchat.
Hann hefur gefið út 8 plötur.
Talið er að eignir hans nemi um
17 milljónum dollara.
14 lög
hans hafa lent á Billboard 100 listanum.
Hann er með 2,5 milljónir
fylgjenda á Twitter.
LykiLLinn að veLgengninni
Chris Brown er einn af mörgum tónlistarmönnum sem vinna reglulega með
Khaled og lofsyngja hann.
Hver er DJ khaled?
Plötusnúðurinn DJ Khaled hefur verið að slá í gegn með Snapchat-aðgangi sínum þar sem hann sýnir fylgjendum
sínum hvernig á gera það gott í lífinu. Það er þó frekar óljóst hvers vegna og hvernig hann varð ríkur og frægur.
Gunnhildur Jónsdóttir
gunnhildur@frettabladid.is
Plötusnúðurinn er
virkur á Snapchat og
er aðgangurinn hans
mjög vinsæll.
DJ Khaled talar oft um
„lykilinn að velgengninni“.
Khaled er þekktastur fyrir að segja nafnið
sitt í byrjuninni á lögum sínum. Hann er þó
ekki mikið fyrir að syngja eða rappa.
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r46
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-B
5
A
0
1
7
B
B
-B
4
6
4
1
7
B
B
-B
3
2
8
1
7
B
B
-B
1
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K