Fréttablaðið - 18.12.2015, Síða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
1 8 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F Ö s T U d A G U r50 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Hljómsveitin Fufanu gaf út sína fyrstu plötu fyrir skömmu en hún ber titilinn Few More Days To Go. Platan hefur nú
þegar fengið prýðisdóma í erlend
um miðlum og til dæmis gaf breska
tónlistartímaritið NME plötunni
4 punkta af 5 mögulegum og The
Line Of Best Fit 8,5 punkta af 10
mögulegum. „Það er mjög fínt að
fá svona dóma, maður tekur samt
mismikið mark á svona dómum
en við erum allavega mjög ánægð
ir með þessa plötu. Þetta var langt
ferli, við byrjuðum að búa til demó
fyrir næstum því tveimur árum.
Platan var búin að vera tilbúin frek
ar lengi áður en hún kom út en við
vorum samt lengi að finna hvernig
við vildum að hún hljómaði. Þetta
er búið að vera langt ferli og það er
mikill léttir á að hún sé komin út,“
segir Guðlaugur Einarsson, annar af
stofnmeðlimum sveitarinnar. Plat
an er komin út víða en One Little
Indian gefur hana út í Evrópu fyrst
svo fylgja aðrar heimsálfur eftir en
Smekkleysa á Íslandi.
Í upphafi var hljómsveitin teknó/
elektrónískt dúó, Captain Fufanu
sem varð til þegar Hrafnkell Kaktus
Einarsson og Gulli voru enn tán
ingar. Stefnan tók stakkaskiptum
og hljómsveitin tók upp strauma
sem leiða hugann til hins myrka
evrópska stíls á 8. og 9. áratugnum.
Hljómsveitin og hennar stefna
breyttist árið 2013 og fleiri með
limir komu í sveitina, sem hefur
undanfarið ár verið ákaflega iðin
við tónleikahald. Með sveitinni
spila fleiri menn í dag. „Við vorum
sex á túrnum með John Grant og
verðum sex eitthvað áfram, Erling
Bang, Einar Helgason, Karl Torsten
Ställborn og Jón Atli Helgason og
við Kaktus,“ bætir Gulli við.
Eins og fyrr segir hefur sveitin
spilað víða á árinu en er nú komin
til Íslands á nýjan leik eftir að hafa
verið í tónleikaferð með John Grant
um Evrópu. „Við erum búnir að
vera að spila mjög mikið erlendis
og erum orðnir mun þéttari en við
vorum fyrir ári.“
Fufanu varð ein mest umtalaða
nýja hljómsveitin á Iceland Air
waves hátíðinni í fyrra og í kjöl
farið hófst mikið ævintýri. Sveitin
spilaði tónleika í fyrsta sinn í Bret
landi, á JaJaJakvöldi í London og
hitaði upp fyrir Damon Albarn á
tónleikum í Albert Hall, þar sem
hún náði athygli Brians Eno. Í janú
ar spilaði Fufanu á Eurosonic áður
en leið hennar lá aftur til Bretlands
þar sem hún hitaði upp fyrir The
Vaccines á tónleikaferðalagi þeirra
í mars og apríl en uppselt var á alla
tónleikana. „Það var rosa fínt að
túra með The Vaccines. Það var smá
áskorun fyrir okkur því við vorum
að spila fyrir allt annan áhorfenda
hóp en við erum vanir. Við fundum
mikið eftir túrana hvað við urðum
miklu betri eftir að hafa spilað
svona mikið,“ bætir Gulli.
Á ferðalaginu hitaði Fufanu einn
ig upp fyrir Bo Ningen á tvennum
tónleikum á Hoxton Bar & Grill og
í júní hitaði Fufanu upp fyrir Blur
á stærðarinnar tónleikum í Hyde
Park.
Sveitin er nú þegar farin að huga
að upptökum á nýjum lögum.
Hvernig lítur næsta ár út hjá Fuf
anu? „Við ætlum að halda áfram
að gera góða músík og spila á tón
leikum og ætlum ekki að hætta. Það
er alveg nóg að gera og við erum að
verða komnir með lög í aðra plötu.
Það ekkert túrplan komið eins og
er. Við erum samt að fara til Bret
lands í viku þar sem við verðum
aðalhjómsveit kvöldsins eða
„headline“,“ segir Gulli.
gunnarleo@frettabladid.is
Af í
NME HHHH
The Line Of Best Fit HHHH
London Evening Standard HHH
Irish Times HHHH
Uncut HHH
Mojo HHHH
Góð GAGnrýni erlendis
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Hyde Park
Fyrsta plata hljómsveit-
arinnar Fufanu hefur
fengið prýðisdóma
í erlendum miðl-
um. Annasamt ár
að baki.
Hljómsveitin Fufanu hitaði meðal
annars upp fyrir Blur, The Vaccines
og John Grant á árinu.
1
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:4
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
B
B
-8
E
2
0
1
7
B
B
-8
C
E
4
1
7
B
B
-8
B
A
8
1
7
B
B
-8
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
1
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K