Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Blaðsíða 3
Fréttir | 3Mánudagur 5. september 2011
Hægri Hönd Finns við
völd í Heilsugæslunni
Stýrði rekstri heilsugæslunnar
Helgi S. Guðmundsson stýrði rekstrarsviði
Heilsugæslunnar í Reykjavík þegar gerðir
voru hagstæðir leigusamningar við Íslenska
aðalverktaka og tengda aðila.
því til þess að Heilsugæsla höfuð-
borgarsvæðisins yrði áfram á Bar-
ónsstígnum.
Segir ráðuneytið hafa tekið
ákvörðunina
Helgi S. Guðmundsson segir að-
spurður um málið að aðkoma
hans að flutningi á höfuðstöðvum
heilsugæslunnar upp í Mjódd hafi
ekki verið nein. „Hún var nákvæm-
lega engin. Ég var það íhaldssam-
ur að ég vildi vera áfram í Heilsu-
verndarstöðinni við Barónstíg. En
það voru stjórnvöld sem ákváðu að
fara með heilsugæsluna þarna upp
eftir sem að mér fannst óráð á sínum
tíma. Svo endaði með því að ég fór
aldrei þarna upp eftir því ég hætti,
þótt það hafi ekki verið út af þessu.
Mín aðkoma að þessu máli var því
fyrst og fremst sú að ég barðist gegn
þessum flutningum því mér fannst
passa að Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins væri þarna,“ segir Helgi S.
Aðspurður um hvort hann hafi
komið að gerð annarra leigusamn-
inga sem Heilsugæsla Reykjavík-
ur gerði meðan hann starfaði þar,
meðal annars í heilsugæslustöðinni
í Glæsibæ. „Nei. Ég skrifaði aldrei
undir neitt og hafði ekkert með
þetta að gera. Það er þannig að það
er ráðuneytið sem sér um þessi mál
fyrst og fremst. Við höfðum aldrei
neitt að gera með ákvarðanir um
húsnæði, hvorki ég né Guðmund-
ur [forstjóri Heilsugæslunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, innskot blaða-
manns] ... Það var alltaf ráðuneytið
sem sá um þetta. Ég kom aldrei að
því,“ segir Helgi.
29. ágúst
„September er
sumarmánuður“
n Berin gætu eyðilagst í næturfrosti aðfaranótt föstudags
n Kólnar þegar líður á vikuna n Ný hitabylgja um næstu helgi
Þ
að er henni Irenu sem ber að
þakka þessi hlýindi sem ver-
ið hafa, jafnvel þótt hún beri
ábyrgð á miklu tjóni ann-
ars staðar,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur.
Veðrið síðustu daga hefur ver-
ið með ágætum, nema einna helst á
Vestfjörðum, og tveggja stafa hitatöl-
ur hefur mátt sjá á kortum dag eftir
dag. Sigurður, eða Siggi, segir að því
miður þá dragi nokkuð úr hlýindum
næstu daga og aðfaranótt fimmtu-
dags gæti næturfrost orðið til þess að
skemma ber víða um land. Un næstu
helgi verður þó aftur komin hita-
bylgja, ef svo fer sem á horfir.
Næturfrost fyrir helgi
Siggi segir að hitabeltislægðin Irena
sé að gefast upp, en hún olli miklu
tjóni í Bandaríkjunum í síðustu viku.
Hér hefur hún hins vegar verið mein-
laus og haft í för með sér mikil hlýindi
fyrir Íslendinga. „Það er skemmti-
legt að hún skyldi hitta á Ljósanótt í
Reykjanesbæ,“ segir Siggi.
Hann segir að nú og næstu daga
taki við heldur haustlegra loftslag en
um næstu helgi sé von á öðrum hlý-
indakafla. „Það er ekki annað að sjá
en að á fimmtudaginn og aðfaranótt
föstudags minni haustið svolítið á sig.
Það eru horfur á að það verði hægt
norðlæg átt með frosti á hálendinu og
töluverðu næturfrosti víða um land.
Það lítur út fyrir vætu fyrir norðan og
austan þannig að það gæti gránað á
heiðum og það gæti orðið slydda á
fjallvegum,“ segir hann. Hann bend-
ir hins vegar á að strax á föstudaginn
víki kalda loftið fyrir annarri hlýrri
sendingu sunnan úr höfum.
Berin gætu skemmst
Aðspurður hvort útlit sé fyrir að
næturfrostið verði það mikið að ber
skemmist segir Siggi að svo gæti far-
ið. „Já, ég myndi segja það. Við erum
að tala um frost í einhverjar klukku-
stundir.“
Hann segir að það verði mun
kaldara veður á norðurhelmingi
landsins en á suðurhelmingnum.
Berin gætu því sloppið við að eyði-
leggjast á láglendi sunnan og vestan
heiða – um það sé þó erfitt að segja.
„Ef þau komast yfir kuldann þá
má segja að það gæti orðið fyrsta
flokks berjaveður hér og þar á land-
inu um næstu helgi.“ Hann segir að
nokkur væta geti fylgt hlýindunum.
Hann vill þó setja þann fyrirvara við
orð sín að það sé óvanalega erfitt að
spá fyrir um veður þegar hitabeltis-
lægðir stýra veðri og vindum.
Spáir ágætu hausti
Siggi segist ekki sjá annað í kortun-
um en að haustið verði ágætt. Í það
minnsta hafi engin alvöru haust-
lægð boðað komu sína. „Við skulum
muna að september er sumarmán-
uður og er talinn sem slíkur. Þótt það
komi skot og skot með vindi og rign-
ingu þá koma líka hlýir og góðir dag-
ar inn á milli. Þótt brekkan sé niður á
við þessa vinnuvikuna þá verður gott
veður um næstu helgi.“
Hann segir þó að það verði að
viðurkennast að norðlægar átt-
ir séu aldrei spennandi á Norður-
landi. Hann ráðleggur því engum að
ferðast þangað nema þurfa þess síðari
helming vikunnar, í það minnsta ekki
til að elta gott veður. „Það verður eig-
inlega að viðurkennast að almennt
séð hefur þetta verið skítasumar fyrir
norðan og austan.“
Hann segir þó að á mánudag og
þriðjudag gæti hitinn verið 13 til
14 gráður norðan- og austanlands,
heldur hærri en fyrir sunnan og vest-
an og hitinn sunnan- og vestanlands
verði þó líklega áfram yfir 10 stigum.
„Á meðan við höfum tveggja stafa
hitatölur þá erum við þokkalega sátt,“
segir Siggi sem var reyndar staddur í
30 stiga hita á Spáni þegar DV ræddi
við hann. Hann segir að Íslendingar
megi vel við veðrið una þessa dag-
ana. Á Norðurlöndunum og víða í
Evrópu hafi verið grenjandi rigning
undanfarna daga.
„Veðrið er svolítið að breytast á Ís-
landi. Rok og rigning verður ekkert
alltaf ofan á lengur, eins og kannski
var áður á haustin. Nú er oft hægt að
notast við regnhlífar,“ segir hann að
lokum.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Gott haust Siggi sér engar haustlægðir í kortunum.
Einmuna veðurblíða Þessi ungmenni létu fara vel um sig á
grjótgarðinum til móts við Borgartún í gær, sunnudag. Aftur verður
hlýtt um næstu helgi. MyNd GuNNar GuNNarSSoN
„ Þótt brekkan
sé niður á við
þessa vinnuvikuna
þá verður gott veður
um næstu helgi.