Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Blaðsíða 17
Þ
ótt ég dýrki einkaframtak,
kraftinn sem því fylgir og sé
þakklátur því fólki sem hell-
ir olíu á gangverk þjóðar-
skútunnar skýtur þó stund-
um upp þeirri hugsun hvort ekki sé
þörf á vélarverði. Einhverjum sem
skondr ast öðru hvoru niður í lest og
tékkar á mannskapnum, hvort ekki
sé allt í lagi.
Einkavæðing bankanna var horn-
staur frjálshyggjunnar, frá honum
strengdir vírar sem síðar urðu að
verstu gaddavírsflækju íslenzkr-
ar viðskipta- og þroskasögu. Kom í
ljós að einkaframtakinu var hand-
stýrt, sölugóssinu skipt flokkspóli-
tískt, kaupendur lánuðu hver öðrum
peninga frá lánardrottnum sem ekki
voru til. Við hrunið kom svo í ljós
að einkaframtakinu hafði láðst að
borga. Og fólkið sem gæta átti hags-
muna seljandans, þ.e.a.s. þjóðarinn-
ar, yppir bara öxlum og segist ekkert
skilja í þessu en góðærið var gott á
meðan var.
Og nú rekur hver fúakvisturinn
annan. Harpa, stórkarlaleg arfleifð
einkaframtaksins, trónir nú fullbú-
in á hafnarbakkanum, glæsihöll en
landsmönnum til efnahagslegrar
íþyngingar um ókomin ár. Stjórn-
málamenn, sem bar skylda til að
verja þjóð sína fyrir umframálögum,
tóku við þessari óútfylltu ávísun og
framlengdu þar með líf hinnar gjald-
þrota hugmyndafræði sem einka-
væðir gróða en ríkisvæðir tap. Sigling
með erlenda blaðamenn húsinu til
dýrðar mun vekja alla heimsbyggð-
ina til umhugsunar um þessa litlu
eyþjóð sem neitaði að borga Icesave.
Bygging hátæknisjúkrahúss er
sömuleiðis arfleifð sama óyndis, ger-
ræðisleg draumórahugmynd góð-
ærisins svokallaða sem smýgur nú
inn í hallærið í skjóli ónýtra stjórn-
málamanna. Enda margir gæðingar
fengið þarna spenatott og hanga
sumir enn. En landsmenn finna á
eigin skinni stórkostlegan niður-
skurð grunnþjónustunnar, aflagnir
gamalla og gróinna smásjúkrahúsa
og atgervisflótta heilbrigðisstétta.
Landspítalinn í núverandi mynd
slumpast á horriminni og forsvars-
menn segja frekari niðurskurð
ómögulegan nema þjónusta verði
skert. Samt ætla stjórnvöld að ráðast
í byggingu heils vísindaþorps. Manni
verður orðfall en þessari þjóðarmar-
tröð þarf að linna.
Hrammur einkavæðingarinnar
virðist einkar þungur þegar kemur
að skuldavanda heimilanna. Réttur
skuldarans er óvirtur og missi hann
eign sína kaupir lánardrottinn hana
á kjörum langt undir markaðsvirði.
Selur svo aftur á markaðsvirði en
skuldin með öllu sínu hrunálagi er
kirfilega eyrnamerkt skuldaranum
sem hímir nú undir beru lofti eigna-
laus. Bankinn innheimtir þannig
megnið af verði eignarinnar og held-
ur skuldaþrælnum að auki. Ég bara
spyr, hvar eru stjórnvöld? Þau hljóta
í krafti eignarhluta síns í hrunbönk-
unum að hafa eitthvað að segja um
vinnubrögðin og eiga að hlutast til
um jafna ábyrgð lántaka og lánveit-
anda. Sérlega þar sem framferði
bankanna orsakaði hækkun lánanna
fremur en framferði skuldarans.
Svo er það blessaður kvótinn.
Þar eru lánaafskriftir á hraðbergi
án eignaupptöku. Fyrirtæki njóta
þannig velvildar bankanna sem al-
menningur gerir ekki. Stjórnvöld eru
sinnulaus hvað þetta varðar og út-
deila árlega til þessara sömu fyrir-
tækja aflaheimildum þjóðarinnar
án þess að gera neinar athugasemd-
ir við afskriftir, skuldahala og kenni-
töluflakk. Meira að segja yfirlýstum
markmiðum landsmálanna er fórn-
að til að raska ekki þessu einkahag-
kerfi.
Allt ofangreint stríðir gegn al-
mannahagsmunum. Enda er þjóðin
ekki spurð og allar tillögur í þá veru
kæfðar í fæðingu. Samantekið er ljóst
að réttkjörin stjórnvöld megna ekki
að stjórna þessu landi, annaðhvort
vegna vanmáttar gegn hagsmuna-
öflum eða vegna þess að þau eru sjálf
hluti þessa einkahagkerfis sem út-
deilir gæðum landsins að eigin geð-
þótta og án jafnræðis. Hvort heldur
sem er hljóta landsmenn til hægri
og vinstri að sjá ranglætið. Hug-
myndafræðin er ekki lengur meg-
inmarkmiðið heldur að skapa ein-
hvern grundvöll svo hún sé möguleg.
Það verður ekki gert nema með einu
allsherjar grettistaki þar sem lands-
málaborðinu er lyft upp á endann og
ekki niðursett fyrr en allt er runnið af
því. Eftir það getum við aftur skriðið
heim.
Umræða | 17Mánudagur 5. september 2011
Með hvaða liði heldur þú í enska boltanum?
„Tottenham.“
Vilhjálmur Rúnarsson
17 ára nemi
„Leeds United.“
Birgir Þór Björnsson
18 ára „myndarlegi strákurinn í Kvennó“
„Liverpool.“
Bjarki Hreinn Viðarsson
18 ára nemi
„Arsenal.“
Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson
18 ára nemi
„Liverpool.“
Steingrímur Hermannsson
17 ára nemi
1 Þessi tvö eiga ekki að hittast Lindsay Lohan hreifst af ólátabelgn-
um Chris Brown á MTV-verðlaunahá-
tíðinni.
2 Sótti um nám en var synjað Háskóli Íslands veitir engar undan-
þágur frá kröfum sínum til nemenda í
leikskólakennaradeild.
3 Jónsi skar í fingur Jónsi í Í svörtum fötum skar sig við matargerð og sagði
frá því á Facebook.
4 Björn Ingi segist vinur Þjóðverja sem voru reknir Þeir Werner Jenke
og Kai Renken voru reknir fyrir að
hafa komið að fasteignaverkefnum
með Íslendingum.
5 Eyðilögðu minnisvarða Skemmd-arvargar krotuðu á minnisvarða í Pól-
landi sem stendur þar sem um 400
gyðingar brunnu inni í hlöðu í seinni
heimsstyrjöldinni.
6 Töfrar og brjálæði Telma Kristín Emilsdóttir skellti sér ein síns liðs í
ferðalag á framandi slóðir í Indlandi.
7 Stjórnvöld létu undan ofbeldi Breta og Hollendinga Ólafur
Ragnar Grímsson segir að stjórnvöld
hafi látið undan þrýstingi og ofbeldi
Breta og Hollendinga.
Mest lesið á dv.is
Myndin Flott Skemmtiferðaskipið Crown Princess var mikilfenglegt að sjá við Sundahöfn á sunnudag. Skipið er á meðal stærstu skemmtiferðaskipa í heiminum og gerði fólk sér ferð niðrá höfn í blíðunni til að berja skipið augum. MynD DaVíð ÞóR
Maður dagsins
Gaman þegar
maður getur
eitthvað
Ólafur Bragi Jónsson
Ólafur Bragi Jónsson er nýkrýndur Íslands-
meistari í torfæruakstri. Þetta er í annað
skipti sem Ólafur Bragi hampar Íslands-
meistaratitlinum og ekki í það síðasta að
eigin sögn. Ólafi Braga líst ágætlega á
nýliðana í sportinu en kallar þá kjúklinga
sem eigi erfitt með að finna hjólin undir
bílnum.
Hver er maðurinn?
„Ólafur Bragi Jónsson, ófæruökuþór.“
Hvar ertu alinn upp?
„Ég er alinn upp hér á Egilsstöðum.“
Hvað drífur þig áfram?
„Hestöfl.“
Áttu þér fyrirmyndir?
„Það eru allir þessi toppar frá því í gamla
daga, Eyjólfur Skúlason og þessir gæjar.
Maður hélt auðvitað alltaf með sínum heima-
mönnum. Það var ekki séns að maður færi að
halda með einhverjum utan af landi.“
Hvað finnst þér best að borða?
„Það er svo margt. Bara allt sem er óhollt.
Nautalund með béarnaise-sósu og frönskum.
Hljómar það ekki vel?“
Hvað er skemmtilegt við torfæru-
akstur?
„Það er flest allt. Vinnan og félagsandinn og
svo sakar ekki að sigra. Það er alltaf gaman
þegar maður getur eitthvað.“
Hvar er besta torfærubrautin?
„Hún er hér á Egilsstöðum. Hér er skemmti-
legasta svæðið og skemmtilegustu keppn-
irnar sem geta verið mjög erfiðar. Þær reyna
á pung og stórt hjarta enda hefur sýnt sig að
þeir sem hafa þorið eru vanalega ofarlega.“
Hvernig líst þér á nýju ungu öku-
þórana?
„Kjúklingana? Þeir eru ágætir og verða
örugglega fínir þegar þeir verða búnir að finna
hjólin undir bílnum og bensíngjöfina.“
Er torfæra bara fyrir stráka?
„Nei, nei, það eru alltaf einhverjir kvenmenn
sem flækjast með og þær standa sig bara
vel.“
Hvað þarf til að verða góður í
torfæruakstri?
„Það er svo margt í þessu. Maður þarf að geta
gert við bílinn og haft hann góðan og svo þarf
að kunna að keyra vel.“
Hvað tekur við?
„Daglegt líf. Að mæta í vinnu og hugsa um sig
og fjölskylduna.“
Ætlarðu að vinna íslandsmeistara-
titilinn í þriðja skiptið?
„Maður veit aldrei. Jú, jú það kemur örugglega
að því eitthvert árið.“
Hin vammlausa stjórnsýsla
Dómstóll götunnar
„Harpa, stórkarla-
leg arfleifð einka-
framtaksins, trónir nú
fullbúin á hafnarbakkan-
um, glæsihöll en lands-
mönnum til efnahags-
legrar íþyngingar um
ókomin ár.
Lýður
Árnason
Kjallari