Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2011, Side 20
20 | Sport 5. september 2011 Mánudagur Skagamenn meistarar ÍA tókst loks að innbyrða 1. deild- ar titilinn með sigri á Gróttu um helgina, 2-1. Stefán Þórðarson og Einar Logi Einarsson skoruðu mörk heimamanna. ÍA er fyrir löngu búið að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni en erfiðlega hefur gengið hjá liðinu að tryggja sér titilinn. Á sama tíma vann Selfoss lið BÍ/Bolungarvík- ur, 4-3, í mögnuðum leik á Selfoss- velli og fór þar með langleiðina upp í Pepsi-deildina á ný ásamt ÍA. Tap Gróttu gegn Skaganum þýðir að um næstu helgi mætir liðið Leikni í sannkölluðum sex stiga fallslag. Settu heimsmet 4x100 metra boðhlaupssveit Jamaíku rúllaði upp keppinautum sínum í lokagrein heimsmeistaramótsins í frjálsum íþróttum en mótinu lauk á sunnudaginn. Usain Bolt hljóp síðasta sprettinn fyrir Jamaíku sem bætti heimsmet sitt í greininni þegar félagarnir fjórir hlupu á 37,04 sek- úndum. Þetta voru önnur gullverð- laun Bolts á mótinu en hann vann einnig 200 metra hlaupið með yfir- burðum. Eins og allir vita þjófstart- aði hann í 100 metra hlaupinu og varð af gullinu þar. Frakkar fengu silfrið í 4x100 metra boðhlaupinu og sveit Sankti Kitts og Nevis hreppti bronsverðlaunin. Hættir aldrei með Englandi Wayne Rooney er hægt og bítandi að vinna aftur hugi og hjörtu stuðn- ingsmanna enska landsliðsins eftir að hann gagnrýndi þá eftir marka- laust jafntefli gegn Alsír á HM í Suð- ur-Afríku fyrir ári. Rooney skoraði tvö mörk fyrir England sem vann Búlgaríu, 3-0, í undankeppni EM fyrir helgi. „Það sem gerðist, gerðist, en ég er viss um að stuðningsmenn- irnir sjá að ég gef 100 prósent í alla leiki. Ég mun spila fyrir England þar til einhver segir að ég megi það ekki lengur. Ég er svo stoltur af því að spila fyrir þjóð mína,“ segir Wayne Rooney. Á föstudaginn var lauk sex mán- aða banni Kolos Toure, varn- armannsins sterka hjá Man- chester City, frá fótboltaiðkun, en hann var dæmdur í bann eftir að í blóði hans fannst efnið bendroflu- methiazide. Toure hefur ávallt haldið því fram að hann hafi ekki vísvitandi notað efnið en það var í megrunar- töflum sem hann fékk frá eiginkonu sinni. Toure hefur mátt æfa með City undanfarnar tvær vikur til að koma sér í form en hann sat allan tímann á bekknum í landsleik Fílabeins- strandarinnar um helgina. „Ég er búinn að hlaða batteríin og er í betra formi en nokkurn tíma áður þannig að ég mun ýta fast á eft- ir mínu tækifæri í liðinu. Vonandi verður þetta eins og að City-liðið hafi keypt nýjan leikmann,“ segir Toure. Erfiðast við bannið fannst honum þó að útskýra það fyrir ungri dóttur sinni. „Hún sagði að fólk í skólanum væri að segja: „Pabbi þinn er að nota eiturlyf.“ Það sárnaði mér mjög mik- ið. Það er stór munur á því að nota megrunartöflur og fíkniefni. Ungir krakkar heyra orðið bönnuð lyf og hugsa strax kókaín og eitthvað þann- ig,“ segir Toure sem veit að það verð- ur erfitt að komast í City-liðið sem hefur farið frábærlega af stað á tíma- bilinu. „Það verður ekki auðvelt en ég mun reyna mitt allra besta eins og alltaf. Ég er bara svo ánægður að vera kominn aftur. Ég mun gera allt sem ég get fyrir liðið, klúbbinn og stuðn- ingsmennina. Ég hreinlega get ekki beðið eftir því að byrja,“ segir Toure, sem verður þó væntanlega ekki í liðinu sem mætir Wigan um næstu helgi. tomas@dv.is „Pabbi þinn er að nota eiturlyf“ n Sex mánaða banni Kolos Toure er lokið Kominn aftur Bann Toures er á enda. Mynd ReuTeRS H eimsmeistaramótinu í frjáls- um íþróttum lauk í Daegu í Suður-Kóreu á sunnudag- inn en þar höfðu 1.848 kepp- endur frá 203 löndum barist um 141 medalíu á níu daga tímabili. Bandaríkjamenn urðu hlutskarpast- ir einu sinni sem oftar og fengu alls 25 medalíu, þar af 12 gullverðlaun. Næstir komu Rússar með nítján verð- launapeninga, þar af níu gull og Ke- níumenn, sem sópuðu upp nánast öllum lengri hlaupum, nældu sér í sautján verðlaunapeninga, þar af sjö gullverðlaun. Á lokadeginum á sunnudaginn fengu Bandaríkjamenn þrenn gullverðlaun. Christian Tay- lor vann þrístökkið með stökki upp á 17,96 metra sem er lengsta stökk ársins. Þá unnu boðhlaupssveit- ir Bandaríkjanna bæði 4x100 metra hlaup kvenna og 4x400 metra hlaup karla. Verður reglunum breytt? Stóra málið á HM í Suður-Kóreu er þjófstart fljótasta manns heims, Usains Bolts. Nýju reglurnar um þjófstart eru þannig að eitt þjófstart nægir til að dæma þann sem þjóf- startar úr keppni. Hingað til hefur fyrsta þjófstart gilt sem áminning fyr- ir allan hópinn og sá næsti sem ætl- ar of fljótt af stað er dæmdur úr leik. Upprunalega reglan var sú að allir fengu eina áminningu. Mikið hefur verið rætt og ritað um þjófstart Bolts og er mikill þrýstingur á að breyta þessari reglu til fyrra horfs. Vilja menn ekki sjá slík vörusvik að fullur völlur sem var einungis kominn til að sjá Bolt hlaupa 100 metra verði af því vegna eins þjófstarts. Er nú til um- ræðu að breyta reglunni áður en ól- ympíuleikarnir hefjast í Lundúnum á næsta ári. n HM í frjálsum lokið í Suður-Kóreu n Bandaríkjamenn náðu í þrenn gullverðlaun á lokadegi n Rússar og Keníumenn sópuðu að sér verðlaunum n Þjófstart Bolts stóra mál mótsins Bandaríkjamenn með flest gull Skákaði þeirri bestu Hin brasilíska Fabiana Murer vann einu verðlaun þjóðar sinnar þegar hún fékk gull í stangarstökki og skákaði þar með Yelenu Isinbajevu. Þýskir karlmenn kasta lengst Evrópumeistarinn Matthias de Zordo vann spjótkast karla en samlandar hans, Robert Harting og David Storl, unnu kringlukastið og kúluvarpið. Stökk hæst Rússinn Anna Chicherova vann hástökk kvenna og hafði betur en sjálf Blanka Vlasic. Flest gull Boðhlaupssveit Bandaríkjanna í 4x400 metra hlaupi karla vann ein af 25 verðlaunum Bandaríkjamanna á HM í frjálsum. Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Frjálsíþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.