Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 26. október 2011 Miðvikudagur
Dúnsængur og
koddar fyrir veturinn
Ítölsk rúmföt frá Bellora
Laugavegi 87 - Sími: 511 2004
Fermingargjöfin í ár er
Dúnsæng frá Dún og Fiður
Laugavegi 87 l sími 511-2004
FERMINGARTILBOÐ
D
V
E
H
F.
2
01
1
Metfjöldi heim-
sótti DV.is
Alls heimsóttu 192.626 notendur
DV.is í liðinni viku samkvæmt tölum
Modernus og hafa aldrei fleiri not-
endur heimsótt vefinn í einni viku. Til
samanburðar má geta þess að í sömu
viku í fyrra heimsóttu 160 þúsund
notendur DV.is og í sömu viku fyrir
tveimur árum voru notendurnir 115
þúsund. Fjölgunin á einu ári nemur
því 17 prósentum og á tveimur árum
40 prósentum.
Flettingar á vefnum í nýliðinni viku
voru 4,85 milljónir og innlit rétt rúm-
lega milljón talsins.
DV.is er þriðji mest lesni vefur
landsins á eftir vísi.is og mbl.is sem
er mest lesinn, samkvæmt tölum
Modernus sem birtar eru á hverjum
mánudegi.
Baráttan heldur áfram:
„Við erum
að veiða
kvótalausir“
„Við erum að veiða kvótalausir og
erum að landa fiski á fiskmarkað til að
knýja stjórnvöld til að efna loforð sem
þau gáfu í kosningabaráttunni um að
breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu svo
menn geti lifað á því,“ segir Gísli Páll
Guðjónsson, kvótalaus sjómaður sem
réri til fiskjar frá Akranesi á þriðjudag,
þrátt fyrir að að hafa ekki yfir kvóta
að ráða. Hann var á leið í land þegar
DV ræddi við hann. „Við erum að fara
fram á rétt okkar til að stunda þá at-
vinnu sem við viljum og kjósum,“ seg-
ir hann og telur sig vera í fullum rétti
til að veiða. „Samkvæmt Sameinuðu
þjóðunum eru stjórnvöld að brjóta
á okkur með því að banna okkur að
kjósa þá atvinnu sem við viljum. Þetta
er brot á atvinnufrelsi okkar.“
Hann segist ekki óttast langan arm
laganna í kjölfar þess að hann réri án
kvóta. „Ef þeir svipta okkur veiðileyfi
þá fer það alla leið fyrir dómstóla.
Það er bara það sem þeir hafa ekki
þorað að gera hingað til. Ég er ekki sá
fyrsti sem hefur farið út án kvóta og
það verða fleiri. Þeir hafa ekki svarað
tölvupóstum og símtölum og vilja
ekki gefa upp hvað þeir ætla að gera.“
Hann segir fiskeríið hafa verið
sæmilegt: „Ég rétt skaust út og náði í
svona 20 kíló af þorski til að landa.“
Þ
orvaldur Þorvaldsson tré-
smiður og stofnfélagi í
Vinstri grænum hefur boð-
ið sig fram gegn Steingrími
J. Sigfússyni í formanns-
kjöri á landsfundi flokksins sem
fram fer um helgina. Hefði Þorvaldur
ekki boðið sig fram væri Steingrímur
sjálfkjörinn í stöðuna, en hann hefur
verið formaður frá stofnun flokksins
árið 1999.
Þorvaldur segir að Steingrímur
hafi sveigt VG langt frá þeirri braut
sem flokksmenn vilji að flokkurinn
sé á. Forysta flokksins hafi beinlínis
gengið í berhögg við stefnuyfirlýs-
ingu flokksins. „Það á við um aðildar-
umsókn að ESB og með því að hygla
bönkunum og fjármálaauðvaldinu á
kostnað almennings. Kreppunni er
velt yfir á almenning og fjármálaauð-
valdið hirðir gróðann en almenning-
ur tekur á sig tapið,“ segir Þorvaldur
formannsefni í viðtali við DV.
Vilja ekki breyta kerfinu
Steingrímur J. hefur verið nokkuð
sterkur sem formaður en ákveðinn
hópur innan flokksins vildi ekki láta
það gerast að hann fengi rússneska
kosningu á landsfundinum sem fram
fer um helgina. Þorvaldur er því stig-
inn fram á sjónarsviðið og freistar
þess að komast til æðstu metorða. „Í
kreppu er lag fyrir fólkið að samein-
ast, rísa upp og breyta forsendunum í
samfélaginu. Það þarf að breyta regl-
unum svo að markaðurinn ráði ekki.
Það þarf að brjóta upp þetta kerfi þar
sem markaðurinn stjórnar öllu. Kap-
ítalískt markaðskerfi veltir bara upp
vaxandi ójöfnuði,“ segir Þorvaldur.
Hann segist ekki hafa fundið
neinn raunverulegan vilja hjá Stein-
grími J. eða öðrum í forystu flokks-
ins til þess að breyta þessu kerfi hér
á landi. „Ekki nóg með það þá hefur
forystan ekki einu sinni samráð við
flokksmenn. Steingrímur J. er mjög
fælinn við að ræða við sína flokks-
menn, maður við mann um, ágrein-
ingsmál. Hann kemur bara upp í
pontu og heldur langar ræður og svo
fá aðrir tvær mínútur til að tjá sig. Það
er líka mjög erfitt að fá hann á fund,“
segir Þorvaldur og nefnir dæmi um
hóp sem stofnaður var fyrir tveimur
árum til að krefjast umbóta á sviði
húsnæðislána. „Hópurinn vildi létta
byrðinni af almenningi og var að
vissu leyti í anda Hagsmunasamtaka
heimilanna. Hópurinn vildi ræða
við Steingrím en hann kom sér allt-
af undan því. Þetta er eitt af mörgum
dæmum þar sem hann hefur farið
sínar eigin leiðir. Ég tel að óbreytt
ástand sé nánast að eyðileggja flokk-
inn.“
Reynslumeiri
Það ætti að teljast óvinnandi vegur
fyrir óþekktan mann að sigra sitj-
andi formann til 11 ára og forystu-
mann í ríkisstjórninni. Þorvaldur
er þó hvergi banginn. „Ég hef lengri
reynslu af pólitísku starfi en Stein-
grímur J. Ég hef verið stöðugt í pólitík
síðan 1974 þegar ég gekk í Alþýðu-
bandalagið. Ég er stofnfélagi í VG
en Steingrímur hefur kerfisbundið
komið í veg fyrir að ég hafi áhrif eða
gegni trúnaðarstörfum í VG – ekki
bara hann heldur hópur í kringum
hann. Ég hef hins vegar heilmikla
og víðtæka félagsmálareynslu og
hef þannig séð víðtækari og breiðari
reynslu en Steingrímur og aðra skír-
skotun en hann.“
Þorvaldur vill breyta því fyrir-
komulagi þar sem formaðurinn
raðar „já-bræðrum í kringum sig“,
eins og hann orðar það. Lýðræðis-
leg og sanngjörn niðurstaða þurfi að
koma úr umræðum. „Ekki bara að
einn maður hafi alla þræði á sinni
hendi og geti bara stjórnað þannig.
Þessi þráðapólitík er eitt af því sem
hefur háð VG.“
Albaníu-Valdi
Þorvaldur segir að þó hann sé
ekki jafnþekktur stjórnmálamaður
og Steingrímur J. þá sé hann vel
þekktur í ákveðnum hópum. Hann
gengst aðspurður við því að vera
lengst til vinstri í Vinstri grænum.
Hann hefur einnig fengið viður-
nefnið Albaníu- Valdi, sem hann
segir að gefi þó ekki alveg rétta
mynd af sér, en Albaníu var áratug-
um saman stjórnað af kommúnist-
um.
„Ég var formaður í Albaníufélag-
inu á sínum tíma og fór þangað
nokkrum sinnum. Ég hef orðið var
við það í gegnum tíðina að margir
hafa haft ranghugmyndir um mig og
talið að ég væri óhæfur í samstarfi,
væri sérvitur, þvergirðingslegur og
fleira í þeim dúr. Svo hefur fólk sagt
að það hafi skipt um skoðun eftir að
hafa kynnst mér og starfað með mér.
Ég veit að í gegnum 30 ár hefur ver-
ið kerfisbundið breidd út um mig
staðal ímynd sem á ekki við rök að
styðjast,“ segir Þorvaldur, formanns-
efni í VG.
Í formannsslag
við Steingrím J.
n Þorvaldur Þorvaldsson býður sig fram til formanns Vinstri grænna n Segir
Steingrím hafa kerfisbundið ýtt sér til hliðar n Nú er nóg komið af foringjaræðinu
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
„Ég hef lengri
reynslu af
pólitísku starfi
en Steingrímur J.
Formannsefni VG „Ég hef verið stöðugt í pólitík síðan 1974 þegar ég gekk í Alþýðubandalagið. Ég er stofnfélagi í VG en Steingrímur hefur
kerfisbundið komið í veg fyrir að ég hafi áhrif eða gegni trúnaðarstörfum í VG,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson. MyNd EyÞóR ÁRNASoN
Árni vill að ráðherrar svari
n Vill vita hversu margir hafa verið ráðnir án auglýsingar
M
ér hefur fundist að það þurfi
að vera gerður skýr grein-
armunur á milli starfa sem
eru pólitísk í eðli sínu og fag-
legra starfa í ráðuneytum,“ segir Árni
Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri
grænna, sem lagt hefur fram fyrir-
spurn á Alþingi til allra ráðherra um
ráðningar í ráðuneytum án auglýs-
inga. Árni spyr hversu margir starfs-
menn hafa verið ráðnir til starfa,
annarra en afleysingastarfa í ráðu-
neytunum án þess að það væri aug-
lýst, á árunum 2007–2011. Hann vill
fá svarið sundurliðað eftir árum og
hversu margir þessara starfsmanna
eru enn starfandi í ráðuneytunum.
„Að sjálfsögðu eru í ráðuneytinu
pólitísk störf, svo sem ráðherra og að-
stoðarmaður hans. Mér hefur fundist
að það ætti að vera mjög skýr greinar-
munur. Ákveðin störf eru pólitísk sem
koma og fara með ráðherrum en svo
eru önnur fagleg störf inni í ráðuneyt-
unum og þau á að auglýsa,“ segir Árni
Þór. Hann segist með fyrirspurnunum
vilja draga þá umræðu upp á borðið
aftur.
„Það hefur verið umræða af og til,
meðal annars í vor, um ráðningar án
auglýsinga og síðan var í tengslum
við stjórnarráðsfrumvarpið sem var
afgreitt í september rætt um hvernig
ætti að standa að ráðningum. Þetta
gerði það að verkum að mig langaði
að fá að vita hvort það væri mikið um
ráðningar af þessum toga,“ segir Árni.
Hann bendir á að þeir sem ráðnir
eru inn í ráðuneyti án auglýsingar séu
yfirleitt ráðnir undir þeim formerkj-
um að um tímabundin störf sé að
ræða. „Svo vilja þessi ráðningartímabil
stundum dragast og það er auðvitað
það sem ég er að reyna að draga fram,
hvort það sé mikið um það. Þess vegna
spyr ég einnig hvort menn séu ennþá í
þessum störfum.“ valgeir@dv.is
Árni Þór Sigurðsson „Að sjálfsögðu
eru í ráðuneytinu pólitísk störf, svo sem
ráðherra og aðstoðarmaður hans. Mér
hefur fundist að það ætti að vera mjög skýr
greinarmunur.“