Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2011, Qupperneq 20
20 | Sport 26. október 2011 Miðvikudagur
Ö
ryggisnefnd MotoGP-
kappakstursins segir að
ekki hafi verið hægt að
koma í veg fyrir hrylli-
legt slys sem varð hinum 24
ára Ítala, Marco Simoncelli, að
aldurtila á brautinni í Sepang í
Malasíu á sunnudaginn. Sim-
oncelli rann af hjóli sínu þvert
yfir brautina á öðrum hring og
fór í veg fyrir tvö hjól með þeim
afleiðingum að hjálmur hans
brotnaði af honum. Simoncelli
lést af völdum áverka á höfuð,
háls og bringu.
„Við höfum gert miklar ör-
yggisráðstafanir í MotoGP og
við erum ánægðir með þær
breytingar,“ segir Franco Unc-
ini, formaður öryggisnefndar
MotoGP. Ekki hefur verið
banaslys í MotoGP-mótaröð-
inni síðan árið 2003 en í fyrra
lést nítján ára japanskur strák-
ur í Moto2-mótaröðinni. Sjálf-
ur lá Uncini í dái eftir að hafa
lent í svipuðu slysi og Simon-
celli árið 1983.
„Því miður höfum við ekk-
ert vald á örlögunum. Þegar
eitthvað svona gerist þá erum
við varnarlaus. Við verðum að
sætta okkur við það að stund-
um gerast hlutir, hræðilegir
hlutir, sem ekkert er hægt að
gera í,“ segir Uncini.
Ítalska þjóðin er harmi
slegin yfir dauða Simoncelli
sem var einn dáðasti íþrótta-
maður landsins, aðeins 24 ára
að aldri. Hann var gjarnan
kallaður Súper-Sic. Þeir leikir
í ítölsku A-deildinni í fótbolta
sem leiknir voru á sunnudag-
inn hófust allir með einnar
mínútu þögn í virðingarskyni
við Simoncelli og þá hafa íbú-
ar í heimabæ hans, Coriano,
keppst við að leggja blóm og
kransa við tröppur kirkjunnar
í bænum.
Reiknað er með að íbúar fái
að berja líkið augum í borgar-
leikhúsi Coriano í dag, mið-
vikudag.
tomas@dv.is
Ekki hægt að koma í veg fyrir slysið
n Ítalska þjóðin harmi slegin yfir andláti Marco Simoncelli
V
ið United-menn erum
auðvitað í sjokki yfir að
hafa tapað svona stórt.
Ég hef heyrt í foreldr-
um sem tala um það
að barnið þeirra hafi einfald-
lega grátið eftir úrslitin. Það var
víða sorg hjá stuðningsmönn-
um,“ segir Steinn Jakob Óla-
son, formaður Manchester Uni-
ted-klúbbsins á Íslandi. Eins og
frægt er orðið beið Man chester
United sinn stærsta ósigur á
heimavelli í 56 ár um helgina
þegar Manchester City rúllaði
yfir liðið, 6–1. United tapaði 5–0
fyrir City árið 1955. Þar að auki
hefur United ekki fengið á sig
sex mörk á heimavelli frá árinu
1930, eða í rúm áttatíu ár. Steinn
Jakob segir að sunnudagurinn
hafi verið svartur fyrir stuðn-
ingsmenn United um heim all-
an og hann setur spurningar-
merki við uppstillingu stjóra
United, Sir Alex Ferguson, í
leiknum.
Einkennileg uppstilling
„Ég var svolítið hissa á uppstill-
ingunni í upphafi leiksins. Ég
er til dæmis ekki að fatta þetta
dálæti hans á Jonny Evans og
það kom mér svolítið á óvart
að hann skyldi byrja með Dar-
ren Fletcher inn á,“ segir Steinn
Jakob en Fletcher er nýkominn
á skrið aftur eftir að hafa glímt
við veikindi um nokkurra mán-
aða skeið. Nemanja Vidic og
Phil Jones hefðu auk þess verið
betri kostir en Jonny Evans. „Rio
Ferdinand er orðinn hægari en
hann var og ég sé fyrir mér að
Ferguson þurfi eitthvað að end-
urmeta þessar áherslur sínar.“
City var yfir í hálfleik 1–0
en strax í upphafi síðari hálf-
leiks braut Jonny Evans á Mar-
io Balotelli þegar sá síðarnefndi
var við að sleppa í gegnum vörn
United. Evans fékk rauða spjald-
ið, leikmenn City gengu á lagið
og skoruðu hvert markið á fætur
öðru gegn andlausum United-
mönnum. Steinn segir að fleira
í uppstillingu Ferguson hafi
komið honum á óvart. Þannig
hefði hann frekar viljað sjá Jav-
ier Hernandez í byrjunarliðinu í
stað Danny Welbeck.
Sakna Cleverley
Þó að United-liðið spili blúss-
andi fótbolta á köflum er það
mat margra að það vanti skap-
andi leikmann á miðjusvæðið.
Wesley Sneijder, einn besti
miðjumaður heims, var orð-
aður við United í allt sumar en
kaupin eru sögð hafa strandað
á launakröfum Sneijders. Steinn
tekur undir þessa skoðun og
segir að United-liðið sakni hins
unga Toms Cleverley sem spil-
aði eins og engill í upphafi móts,
áður en hann meiddist fyrir sex
vikum. „Þeir voru að spila rosa-
lega vel þegar hann var inni í
liðinu. Hann er mjög efnilegur
leikmaður en Ferguson veit
það manna best að leikmenn
meiðast og það er ekki hægt að
treysta á að einn leikmaður spili
alla leiki. Þess vegna verða aðr-
ir að vera til taks. Auðvitað hefði
hann átt að sjá það fyrir að hann
þyrfti skapandi miðjumann. Ég
sé nú fyrir mér að Sneijder hafi
horft á þennan leik og kannski
séð að hann hefði getað orðið
ágætis viðbót.“
Þriggja liða barátta
Þrátt fyrir þennan slæma ósig-
ur segist Steinn líta björtum
augum á framtíðina. Af feng-
inni reynslu sé ekki hægt annað
en að treysta á Sir Alex Fergu-
son. „Hann er innan um þessa
leikmenn alla daga og nýtur
ómældrar virðingar úti um allan
heim. Ég hefði hins vegar viljað
sjá aðra uppstillingu, en kannski
er maður orðinn svo góðu van-
ur,“ segir Steinn og hlær. Hann
segir að þrjú lið muni berjast um
titilinn í vor; Manchester Uni-
ted, Manchester City og Chel-
sea. „Þetta City-lið verður ekki
stoppað svo auðveldlega. Þeir
virðast hafa ótakmarkað fjár-
magn og kaupa bara leikmenn
í þá stöður sem þeir vilja. En
þetta verður þriggja liða keppni
og verður tæpt þegar upp verður
staðið,“ segir Steinn en segist þó
að sjálfsögðu vona að rauða lið-
ið í Manchester standi uppi sem
sigurvegari þrátt fyrir allt sem á
undan er gengið.
n Formaður Manchester United-klúbbsins segir stuðningsmenn vera í áfalli n Furðar sig á
liðsuppstillingu Sir Alex Ferguson í leiknum n Liðið vantar meiri sköpunargáfu á miðjuna
Svartur dagur
í sögu United
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Knattspyrna
Erfið helgi Sunnudagurinn var erf-
iður Steini, eins og öllum stuðnings-
mönnum Manchester United.
Niðurlæging Manchester United
beið sinn stærsta ósigur á heimavelli
í 56 ár um helgina. MyNd REUtERS
Ný braut í
New Jersey
Eftir fjögurra ára hlé frá Form-
úlu 1 stefnir í að Bandaríkin fái
tvær keppnir frá og með árinu
2013. Nú þegar eru áætlanir
komnar vel á veg fyrir keppn-
ina í Austin í Texas á næsta ári
og stefnir nú í að New Jersey
verði næsta braut árið 2013.
Mögulegt er að brautin í New
Jersey verði götubraut þar sem
keppt verður á strætum borg-
arinnar en þá þyrfu borgaryfir-
völd að finna fjármuni til þess
hjá fjársterkum aðilum sem
væru til í að koma að málum.
Ekki hefur verið keppt í For-
múlu 1 í Bandaríkjunum síðan
2007 en erfiðlega hefur gengið
að gera íþróttina vinsæla þar
í landi.
Vill tánings-
stjörnu
Kenny Dalglish, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, er sagður ætla
að landa táningsstjörnunni
Seyi Ojo frá MK Dons en Chel-
sea er einnig sagt í enskum
miðlum vera á höttunum eftir
miðjumanninum. Er Chelsea
sagt tilbúið að borga allt að 1,5
milljónum punda fyrir þennan
fjórtán ára leikmann sem nú
þegar er búinn að leika fyrir
U16 ára lið Englands. Hann
er eitt mesta efnið í Bretlandi
í sínum aldursflokki og segir í
Daily Mirror að Dalglish ætli
að drífa sig að landa stráknum
áður en Chelsea kemst of
nærri.
Skortir and-
stæðinga
Það eru ekki mikið fleiri
menn sem hnefaleikakappinn
Manny Pacquiao getur keppt
við samkvæmt þjálfara hans,
Freddie Roach. Pacquiao hef-
ur beðið lengi eftir tækifæri
til að berjast við Floyd May-
weather Jr. en það virðist ólík-
legra með hverjum deginum
sem líður. „Auðvitað viljum
við Mayweather en við erum
orðnir ansi þreyttir á að heyra
að hann vilji ekki berjast við
Manny. Vonandi breytist það,“
segir Roach. Pacquiao hefur
unnið 53 af 58 bardögum sín-
um á ferlinum og ekki tapað
síðan árið 2005.
dáður Marco Simoncelli lét lífið í
hræðilegu slysi á sunnudaginn.