Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Page 2
2 Fréttir 29. apríl 2013 Mánudagur
Útgáfa DV í vikunni
DV kemur ekki út miðvikudaginn
1. maí, á verkalýðsdaginn. Næsta
blað kemur því út föstudaginn 3.
maí. Starfsmenn DV óska lesend-
um gleðilegs sumars með þökk
fyrir veturinn sem er að baki.
Úrslit
kosninga
Framsóknarflokkurinn vann stór-
sigur í þingkosningunum á laugar-
dag og bætti við sig 9,6 prósentu-
stigum frá síðustu kosningum.
Flokkurinn er með 19 þingmenn
og hlaut 24,4 prósent atkvæða.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk jafn-
marga þingmenn en stendur uppi
sem stærsti flokkurinn með 26,7
prósent atkvæða. Athygli vekur að
hann bætti aðeins við sig þrem-
ur prósentustigum frá kosning-
um ársins 2009. Samfylkingin beið
afhroð og fékk aðeins 13 pró-
sent atkvæða og níu þingmenn.
Vinstrihreyfingin grænt framboð
fylgdi fast á eftir Samfylkingunni
og fékk 10,9 prósenta fylgi og sjö
þingmenn. Björt framtíð fékk sex
þingmenn og Píratar þrjá. Önnur
framboð náðu ekki inn manni.
Tölvuleikja-
hátíð í Hörpu
Eve Fanfest, 10 ára afmælishá-
tíð tölvuleiksins Eve Online,
var haldin með pompi og prakt
í Hörpu um helgina. Að sögn
forsvarsmanna hátíðarinnar gekk
hún afar vel en þar voru nýjungar
kynntar við tölvuleiki CCP, það
er Eve Online og DUST 514. Sin-
fóníuhljómsveit Íslands lék tón-
listina úr Eve Online á tónleik-
um í síðustu viku og var gefinn út
geisladiskur með tónlistinni í til-
efni hátíðarinnar. Jafnframt kom
út 200 blaðsíðna bók um sögu
leiksins og vöxt og viðgang fyrir-
tækisins.
K
osningavökur stjórnmála-
flokkanna fóru fram víðs
vegar um Reykjavík að kvöldi
laugardags. Blaðamenn DV
fóru í heimsókn til nokkurra
flokka, fylgdust með stemningunni
og ræddu við frambjóðendur.
Sigurstemning á Borginni
Sigurstemning og gleði var ríkjandi á
kosningavöku Framsóknarflokksins
sem fram fór á Hótel Borg á laugar-
dagskvöld. Formanninum Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni var fagnað
sem hetju þegar hann leit við á vök-
unni skömmu eftir miðnætti. „Ég er
fyrst og fremst ánægður með þess-
ar tölur vegna þess að nú er Fram-
sóknarflokkurinn í stöðu til að ná í
gegn þeim málum við höfum barist
fyrir,“ sagði hann þegar DV náði tali
af honum og vísaði sérstaklega til
skuldaniðurfellinganna sem flokk-
urinn boðar.
Flokkurinn vann sögulegan sig-
ur um helgina með 24,4 prósent at-
kvæða og 19 þingsæti. Þannig hef-
ur fylgi flokksins tvöfaldast undir
forystu Sigmundar sem tók við for-
mennskunni í janúar árið 2009.
Sigmundur steig stórt skref þegar
hann varði minnihlutastjórn Sam-
fylkingarinnar og Vinstri grænna
það ár og hafa sjálfstæðismenn
uppnefnt hann sem „guðföður
vinstristjórnarinnar“ vegna þess. Á
kjörtímabilinu sem nú var að ljúka
hafa framsóknarmenn hins vegar
tekið einarða afstöðu gegn öllum
stærstu málum ríkisstjórnarinn-
ar. Andstaða flokksins við Icesave-
samningana, dómur EFTA-dóm-
stólsins í málinu og síðast en ekki
síst háleit loforð um niðurfellingu
skulda hafa eflaust átt stærstan þátt
í stórsigri flokksins.
„Best að vera bara jákvæður“
Sigmundur var afar eftirsóttur á
kosningavökunni en að honum
þyrptust stuðningsmenn flokks-
ins, glaðir í bragði, og föðmuðu
hann að sér. Þá vildu ófáar ung-
meyjar að teknar væru myndir af
sér með hinum sigurstranglega
formanni. Hann lét sig snemma
hverfa og sagðist þurfa að líta við á
fleiri stöðum.
Frosti Sigurjónsson, sem kjörinn
var á þing í Reykjavíkurkjördæmi
norður, var einn helsti arkitektinn
á bak við stefnu flokksins í skulda-
málum og hörkuna sem flokkurinn
hefur lofað að beita kröfuhafa og
„hrægammasjóði“. Hann var kampa-
kátur þegar DV náði af honum tali.
„Þetta er náttúrulega bara frábært,“
sagði hann. „Okkar kosningabarátta
hefur byggst á jákvæðni og hún hef-
ur verið málefnaleg. Og það virkar
stundum best að vera bara jákvæð-
ur.“ Þegar Frosti var spurður hvort
hann teldi líkur á að Framsóknar-
flokkurinn myndaði ríkisstjórn með
vinstriflokkum sagðist hann ekki
vera í neinni stöðu til að svara því.
„Við viljum bara starfa með þeim
flokkum sem eru tilbúnir að starfa
með okkur að okkar málum,“ sagði
hann.
Sorgarbragur Samfylkingar
Það var vægast sagt dapurleg stemn-
ing á kosningavöku Samfylkingarinn-
ar sem fram fór í Rúgbrauðsgerðinni
í Borgartúni. Þegar blaðamann DV
bar að garði var fámennt á staðnum
en viðstaddir sungu Maístjörnuna í
tregafullum moll. Upp úr miðnætti,
þegar línurnar voru teknar að skýr-
ast, tíndust frambjóðendur flokksins
til síns heima, en þá var ljóst að Sam-
fylkingin hefði beðið afhroð í kosn-
ingunum.
Þungt var yfir Árna Páli Árna-
syni, formanni flokksins, þetta kvöld
en Össur Skarphéðinsson, einn af
helstu forsvarsmönnum Samfylk-
ingarinnar frá stofnun hennar, tók
ósigrinum af æðruleysi. Hann sagð-
ist hafa séð tímana tvenna í stjórn-
málunum en var augsýnilega afar
svekktur yfir niðurstöðum kvöldsins.
Sjálfstæðismenn í sveiflu
Það var allt annað uppi á teningunum
á kosningavöku sjálfstæðismanna á
Hótel Nordica við Suðurlandsbraut.
Þegar formaður flokksins, Bjarni
Benediktsson, mætti á svæðið var
honum fagnað gríðarvel af flokksfé-
lögum sínum með dynjandi lófataki
og fagnaðarópum. Undir hljómaði
þemalagið úr Star Wars-kvikmynd-
unum sem færði innkomu for-
mannsins ákveðinn hetjublæ.
Blaðamaður DV ræddi stuttlega
við Bjarna að loknum ræðuhöldum
og þurfti hann að hafa sig allan við til
þess að yfirgnæfa dúndrandi dans-
tónlist sem barst innan úr veislu-
sal Nordica. Sjálfstæðismenn höfðu
ágæta ástæðu til þess að fagna í ljósi
þess að flokkurinn fékk mest fylgi
allra og virtist meginþorri viðstaddra
hæstánægður með úrslitin. Þó mátti
heyra á formanni og varaformanni að
tilfinningarnar voru blendnar enda
niðurstaðan talsverð vonbrigði þegar
litið er til sögu flokksins. Þegar leið á
kvöldið létu frambjóðendur sig hverfa
en við tók allsherjarpartí þar sem ung-
liðar flokksins voru í broddi fylkingar.
Mikill meðbyr síðustu dagana
Það var létt yfir Katrínu Jakobs-
dóttur, formanni Vinstrihreyfingar-
innar græns framboðs, þegar DV sló
á þráðinn til hennar eftir að endan-
leg kosningaúrslit höfðu verið kunn-
gerð. „Við fundum mjög mikinn
meðbyr síðustu dagana fyrir kosn-
ingar og getum verið stolt af okkar
baráttu. Hún hófst í mikilli lægð en
við unnum okkur upp,“ segir Katrín.
Aðspurð hvort flokkurinn sé farinn
að setja sig í stjórnarandstöðustell-
ingar segir Katrín að nú muni flokks-
menn bíða og sjá.
„Við erum ekki í neinum stelling-
um. Það tekur auðvitað bara alltaf
við óvissa eftir kosningar, en aðalat-
riðið hjá okkur er að halda málefn-
unum okkar áfram á lofti. Við höf-
um náð gríðarlegum árangri í því að
breyta umræðunni um atvinnumál,
umhverfismál og skattamál á undan-
förnum árum. Við ætlum að halda
þessu áfram, sama á hvaða vettvangi
við gerum það.“ n
Fagnað sem hetju
n Ólík stemning á kosningavökum n Maístjarnan kyrjuð á vöku Samfylkingar
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Vinsæll formaður Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson er ótvíræður sigurvegari kosninganna.
Honum var vel fagnað á kosningavöku Fram-
sóknarflokksins sem fram fór á Hótel Borg.
Með öndina í hálsinum Hanna Birna Kristjánsdóttir, Friðjón Friðjónsson og Illugi
Gunnarsson fylgdust með nýjustu tölum með mikilli eftirvæntingu.
Vonbrigði Valgerður Bjarnadóttir og Helgi Hjörvar hafa skemmt sér betur en síðastliðið
laugardagskvöld. Þau halda þó bæði þingsætum sínum.
„Hún var búin að segja það við
fjölmiðla sem hún ætlaði að
segja,“ voru svörin sem fjölmiðla-
menn fengu þegar þeir spurðu
forsetann að því hvers vegna Jó-
hanna Sigurðardóttir, lét sig hverfa
út um aukadyrnar á fundarher-
bergi á Bessastöðum eftir fund
með forseta Íslands, þar sem Jó-
hanna baðst lausnar fyrir sig og
sitt ráðuneyti. Jóhanna og Ólaf-
ur Ragnar ræddu að hans sögn í
drjúga stund um liðið kjörtímabil.
Jóhanna vildi ekki veita fjölmiðla-
mönnum sem biðu hennar viðtal.
Út um hliðardyr