Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Page 9
Fréttir 9Mánudagur 29. apríl 2013
samkynhneigð sé ekki afrísk, að
hún sé synd, að við séum andsetnar
eða að okkur sé borgað fyrir þetta.
Mér skilst að hér á Íslandi sé það
þannig að ef þú þolir ekki samkyn-
hneigða þá eigir þú við vanda að
stríða. Í Úganda er það öfugt, ef þú
ert samkynhneigður stendur þú
frammi fyrir vanda.“
Lífstíðarfangelsi liggur við því
að stunda samkynhneigð en Kasha
segir að stjórnvöld vilji ganga
lengra og gera það refsivert að lýsa
yfir samkynhneigð. Þá hefur verið
til umræðu að herða lögin þannig
að dauðarefsing liggi við samkyn-
hneigðum kynmökum og margir
virðast ekki gera greinarmun á því og
barnaníði. „Ástandið hefur versn-
að mikið á síðustu árum. Á hverjum
degi hugsa ég að þetta sé of mikið
fyrir mig, út af depurðinni, reiðinni
og stressinu sem fylgir óréttlætinu.
Þess vegna verð ég að gera eitthvað í
því. Þess vegna ferðast ég um heim-
inn til þess að tala við fólk og þess
vegna er ég komin hingað. Ég mun
aldrei gefast upp.“ n
„Mun aldrei gefast upp“
n Kasha berst fyrir réttindum samkynhneigðra í Úganda n Hefur þurft að þola hótanir, líkamsárásir og handtökur
26. apríl 2013
n Þrettán samtök skipuleggja Grænu gönguna 1. maí
„Náttúru Íslands verði hlíft!“
Þ
rettán samtök um náttúru-
vernd hafa boðað til Grænu
göngunnar á miðvikudaginn,
þann 1. maí. Þátttakendur
eru hvattir til að mæta í grænum föt-
um og verður gengið niður Lauga-
veg í kjölfar kröfugöngu verkalýðs-
félaga. Í tilkynningu samtakanna
kemur fram að efnt sé til göngunn-
ar til að hvetja nýkjörið þing til góðra
verka í umhverfismálum. „Þingið
hefur ekki umboð til að framfylgja
virkjanastefnu á kostnað náttúr-
unnar. Á því kjörtímabili sem nú er
að hefjast verða teknar ákvarðanir
um mörg verðmæt náttúrusvæði, til
dæmis Mývatn og Reykjanesskaga.
Landskipulagsstefna sem gerir ráð
fyrir háspennulínu og virkjunum á
hálendinu mun koma til afgreiðslu
hjá Alþingi og fyrir liggur krafa um
stórar háspennulínur meðal annars
á Reykjanesskaga, í Skagafirði og
víðar á Norðurlandi. Krafa grænu
göngunnar er að náttúru Íslands
verði hlíft.“
Lítið var rætt um umhverfismál í
aðdraganda þingkosninganna sem
nú eru afstaðnar. Kannanir benda þó
til þess að meirihluti Íslendinga sé
andsnúinn aukinni stóriðju. Þannig
reyndust 44 prósent aðspurðra
andvíg virkjanaframkvæmdum í
Bjarnarflagi við Mývatn en 30,5 pró-
sent fylgjandi í nýlegri könnun sem
Capacent-Gallup gerði fyrir Land-
vernd. Í sömu könnun sögðust 51,3
prósent vera andvíg því að fleiri ál-
ver yrðu reist hér á landi en 30,9 pró-
sent voru því hlynnt. Þrátt fyrir þetta
nutu þeir tveir flokkar mest fylgis í
kosningunum sem tekið hafa afger-
andi afstöðu gegn því að umhverfinu
sé hlíft.
Lagt verður af stað frá Hlemmi
klukkan 13:30 og lýkur göngunni
með því að grænum fánum verður
stungið niður á Austurvelli. n
johannp@dv.is
Leggjast gegn stóriðju 13 samtök um
umhverfisvernd boða til Grænu göngunnar.